Bændablaðið - 05.11.2020, Blaðsíða 46

Bændablaðið - 05.11.2020, Blaðsíða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. nóvember 202046 Rafmagnsfjórhjól frá Tékklandi Ég var farinn að skammast mín fyrir að hafa lítið verið að skrifa um ökutæki fyrir þá sem hafa fyrsta ökuprófið, þ.e.a.s. „skell- inöðrupróf“, og heitir á fagmáli, öku réttindi fyrir létt bifhjól. R.A.G. Inport-export hefur hafið innflutning á rafmagnsfjórhjólum sem eru með götuskráningu fyrir 15 ára og eldri. Tæknivætt rafmagnsfjórhjól með innbyggðri þjófavörn sem lætur vita með miklum óhljóðum ef hjólið er snert af óviðkomandi. Ódýrt, vistvænt og án nokkurra gjalda Eins og önnur vistvæn farartæki eru nánast engin gjöld á hjólunum og er því verðið ekki nema 650.000 (enginn virðisaukaskattur á hjól- inu). Uppgefin vegalengd frá fram- leiðanda á fullhlöðnu hjólinu er 62 km, en í þeim kulda sem við búum við gæti ég trúað að hægt sé að ná á bilinu 40-45 km. Ég prófaði hjólið sem er innsiglað við 45 km hraðamörk á góðum inn- anbæjarrúnti í Reykjavík. Ég verð að viðurkenna að mér leið ekkert vel á stofnbrautunum þar sem bílarnir keyra á 80-90 að öllu jöfnu og ég í botni á litlu fjórhjóli, samt leiddist mér ekkert rúnturinn. Alls keyrði ég 25 km með allt í botni og lítið sem ekkert eftir af hleðslunni eftir mitt aksturslag sem var allt í botni allan tímann. Eftir að hafa lesið leiðbeiningarnar sá ég að ef ég hefði verið aðeins rólegri á gjöfinni hefði ég komist helmingi lengra. Samkvæmt bæklingi nær maður lengst á 35 km hraða sé öku- maðurinn og hleðsla ekki yfir 70 kg. Hentar eflaust mörgum notendum vel fyrir annað en leik Í huganum við prufuaksturinn varð mér hugsað til þess að eflaust væri þetta gott sem golfbíll ef sett væri upp festing fyrir settið aftan á hjólið því að það má bera töluverðan þunga. Einnig mætti nota þetta til að þjónusta göngustíga og á þeim stöðum þar sem fólk vill ekki mikinn hávaða í þjóðgörðum og á stöðum sem þola ekki mikið rask né hávaða. Einnig varð mér hugsað til sumar- bústaðahverfa, að vera með svona hljóðlátt hjól í sumarhúsabyggð þar sem fólk leitar eftir kyrrð og ró þá ætti þetta hjól ekki að raska rónni. Dekkin eru á 10 tommu felgum, frekar fínmunstruð og markaði ekki í grasið heima hjá mér þegar ég keyrði upp á það til að setja hjólið inn í sendibílinn minn. Þrátt fyrir að hafa reynt að spóla á grasinu, það mark- aði ekki í né skemmdi. Svo hljóðlátt var hjólið að þegar ég keyrði inn botnlangann heim til mín þá stóð nágranni minn úti á tröppum og sneri í mig baki og hrökk við þegar ég gusaði úr pollinum næstum á hann fyrir framan tröppurnar hans. Hann einfaldlega heyrði ekkert í mér þegar ég var að koma. Helstu tölur Hjólið heitir HECHT og er skráð 2,2 kílówött sem er um 2,9 hestöfl. Það er innsiglað á 45 kílómetra hraða að hámarki. Fjórhjólið er eldsnöggt að ná hámarkshraða, og fyrir þá sem vilja fara hraðar þá er örugglega ein- hvers staðar í hjólinu innsigli, en hvar veit ég ekki, enda fannst mér þessi hraði nóg fyrir gamlan mann eins og mig. Málin á hjólinu eru lengd 184 x b. 116 x h. 110 cm. Uppgefin drægni er 62 km við bestu aðstæður. Það tekur 8-15 tíma að fullhlaða hjólið (tók mig um 7 tíma að hlaða hjólið eftir minn akstur). Fjöðrun er stutt og frekar stíf og greinilega hugsuð fyrir malbik, en að fenginni reynslu úr mótorhjólaheiminum eru þessir litlu demparar alltaf frekar stífir fyrstu 20-100 km en mýkjast eftir það. Loftþrýstingurinn í dekkjunum var 14 psi. þegar ég fékk hjólið til prufu, en endaði í 7 psi. sem fór mun betur með mig sem ökumann. Hámarksþyngd hjólsins með ökumanni og farangri er 371 kg. Samkvæmt upplýsingum frá tryggingarfélaginu Sjóvá kostar um 30.000 að tryggja hjólið bæði í kaskó og skyldutryggingu. Nánari upplýsingar má finna um hjólið og innflytjandann á vefsíðunni www. rag.is eða á síðu framleiðanda www. hecht.cz. VÉLABÁSINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Hecht. Tékkneskt rafmagnsfjórhjól. Myndir / HLJ Aflið er ekki mikið, 2,2kw eru 2,9 hestöfl og hjólið innsiglað á 45 km hraða. Skálabremsur að framan, en diska að aftan.Skipt er áfram og afturábak með takka á stýri, en kemur bara í mælaborð þegar sett er í bakkgír. Ég virka stór á hjólinu, en það er hjólið sem er frekar lítið. Blátt númer þýðir að 15 ára mega keyra það. Fínar farangursgrindur eru á hjólinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.