Bændablaðið - 05.11.2020, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. nóvember 2020 39
LANDSSAMTÖK SKÓGAREIGENDA
Ertu að hugsa um að kolefnisjafna þig?
Síðustu misseri hafa kolefnis-
mál verið töluvert í umræðunni.
Mörg ríki heims hafa sett sér mjög
metnaðarfull markmið varðandi
það að draga úr losun kolefnis
útí andrúmsloftið og er það hið
besta mál. Við þurfum hins vegar
öll að gera okkur grein fyrir því
hvað það er mikilvægt að við
hefjum öflugar aðgerðir strax og
fyrsta skref okkar á að vera að
draga eins mikið úr losun og við
mögulega getum. Þetta á bæði við
einstaklinga og fyrirtæki.
Óraunhæft er við núverandi
aðstæður að draga alveg úr losun
og því þurfum við að grípa til mót-
vægisaðgerða. Þar kemur kolefns-
binding með skógrækt sterk inn.
Við, sem viljum ekki bara kom-
ast í núllið heldur komast yfir það,
horfum því með jákvæðum augum
til skógræktar sem bestu lausnarinn-
ar hérlendis við bindingu kolefnis.
Skógrækt hefur markvisst verið
stunduð hér á landi í áratugi og mikið
er til af góðum rannsóknum sem
geta sýnt fram á kolefnisbindingu
trjáa. Einnig er hægt að styðjast
við þessar rannsóknir og áætla með
nokkurri nákvæmni bindingu næstu
ára og áratuga. Þessar rannsóknir
sýna vel þá miklu bindigetu sem
skógarnir búa yfir. Það má líka geta
þess að skógar af öllum stærðum
í öðrum löndum eru að gera mjög
góða hluti við að hreinsa andrúms-
loftið og má þar t.d. nefna Amzon
skóginn, sem stundum hefur verið
kallaður lungu jarðarinnar.
Fólk og fyrirtæki hafa með auk-
inni umhverfisvitund, farið að horfa
til þess hvernig þau geta dregið úr
sinni losun, minnkað kolefnissporið
sitt. Margir eru orðnir mjög góðir í
því að flokka og fyrirtæki eru byrj-
uð með „grænt-bókhald“ og gera
metnaðarfullar umhverfisskýrslur.
Ein leið til þess að koma sér „í
núllið“ (eða yfir núllið) er að fjár-
festa í kolefniseiningum. Þá er búið
að reikna út losun, oft yfir ákveðið
tímabil og hægt að kaupa sér kolefn-
iseiningar fyrir því sem uppá vantar.
Hérlendis er markaður með
þessar einingar frekar vanþróaður.
Í dag er hægt að fá lausnir sem hafa
lítinn rekjanleika og eru óvottaðar.
Það er t.d. í boði sums staðar að
kolefnisjafna ákveðnar ferðir,
bensínlítra og ýmislegt fleira. Það
er mikilvægt að huga að heiðarleika
gagnvart heimkynnum okkar,
jörðinni, og ekki síður okkur sjálfum
þegar við ætlum að kolefnisjafna
okkur og að við kaupum einingar
af ábyrgum aðilum, sem byggja
sitt verkefni á rannsóknum og hafa
sýnileika. Öryggi og traust er hér
eitt af lykilatriðunum. Við kaup á
kolefniseiningum er því mikilvægt
að fólk og fyrirtæki spyrji sig þeirra
spurninga hvort að verkefnið sem
það er að kaupa af sé trúverðugt,
hvort að nægar rannsóknir liggi
að baki kolefnisbindingunni og
hvort að peningurinn skili sér ekki
örugglega í kolefnisbindingu.
Með því að vafra aðeins um netið,
þá er hægt að nálgast upplýsingar
um þónokkuð mörg verkefni sem
bjóða upp á kolefnisbindingu.
Líklegt er að fleiri verkefni komi
til með að bjóða upp á þessa leið
af kolefnisjöfnin í náinni framtíð
eftir því sem umhverfisvitund
verður sterkari. Ef þú ert í þessum
hugleiðingum, þá er gott að kynna
sér verkefnið vel sem býður uppá
kolefniseiningar og velja vandlega.
Kostir þess að fjárfesta í kolefn-
iseinginum með skógrækt eru fjöl-
margir, fyrir utan hversu tré eru
öflug að binda kolefni. Stefnt er að
því að fljótlega verði hægt að votta
kolefniseiningar sem „framleidd-
ar“ eru með skógrækt. Með skýru
og ströngu útektar og vottunarferli
verður hægt að rekja einingarnar
og ganga úr skugga um að þær séu
örugglega til staðar. Þetta þýðir þá
að ef þú fjárfestir í vottuðum kolefn-
inseiningum, þá getur þú verið alveg
viss um að þær eru að skila sínu í
því að efla umhverfið okkar.
Það eru spennandi tímar fram
undan í kolefnismálum. Við
þurfum öll að leggjast á eitt með
að draga úr losun og fjárfesta
í kolefnisbindingarverkefnum
sem starfa af ábyrgð. Skógrækt
er leiðandi á heimsvísu varðandi
kolefnisbindingu og mikil tækifæri
eru hérlendis við að byggja upp
öfluga skóga sem binda kolefni með
nokkuð einföldum hætti. Með því
leggjum við okkar af mörkum við
að kolefnisjafna okkur, og jafnvel
koma okkur í plús.
Hafliði Hörður Hafliðason
verkefnisstjóri
Kolefnisbrúarinnar
Rannsóknir sýna vel þá miklu kolefnisbindigetu sem skógarnir búa yfir. Mynd / Hlynur Gauti Sigurðsson
Þaulreynd hús við Íslenskar aðstæður
Stuttur afgreiðslutími
Z STÁLGRINDARHÚS
TÖLVUPÓSTUR
sala@bkhonnun . is
SÍMI
571-3535
VEFFANG
www .bkhonnun . is
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta