Bændablaðið - 05.11.2020, Side 39

Bændablaðið - 05.11.2020, Side 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. nóvember 2020 39 LANDSSAMTÖK SKÓGAREIGENDA Ertu að hugsa um að kolefnisjafna þig? Síðustu misseri hafa kolefnis- mál verið töluvert í umræðunni. Mörg ríki heims hafa sett sér mjög metnaðarfull markmið varðandi það að draga úr losun kolefnis útí andrúmsloftið og er það hið besta mál. Við þurfum hins vegar öll að gera okkur grein fyrir því hvað það er mikilvægt að við hefjum öflugar aðgerðir strax og fyrsta skref okkar á að vera að draga eins mikið úr losun og við mögulega getum. Þetta á bæði við einstaklinga og fyrirtæki. Óraunhæft er við núverandi aðstæður að draga alveg úr losun og því þurfum við að grípa til mót- vægisaðgerða. Þar kemur kolefns- binding með skógrækt sterk inn. Við, sem viljum ekki bara kom- ast í núllið heldur komast yfir það, horfum því með jákvæðum augum til skógræktar sem bestu lausnarinn- ar hérlendis við bindingu kolefnis. Skógrækt hefur markvisst verið stunduð hér á landi í áratugi og mikið er til af góðum rannsóknum sem geta sýnt fram á kolefnisbindingu trjáa. Einnig er hægt að styðjast við þessar rannsóknir og áætla með nokkurri nákvæmni bindingu næstu ára og áratuga. Þessar rannsóknir sýna vel þá miklu bindigetu sem skógarnir búa yfir. Það má líka geta þess að skógar af öllum stærðum í öðrum löndum eru að gera mjög góða hluti við að hreinsa andrúms- loftið og má þar t.d. nefna Amzon skóginn, sem stundum hefur verið kallaður lungu jarðarinnar. Fólk og fyrirtæki hafa með auk- inni umhverfisvitund, farið að horfa til þess hvernig þau geta dregið úr sinni losun, minnkað kolefnissporið sitt. Margir eru orðnir mjög góðir í því að flokka og fyrirtæki eru byrj- uð með „grænt-bókhald“ og gera metnaðarfullar umhverfisskýrslur. Ein leið til þess að koma sér „í núllið“ (eða yfir núllið) er að fjár- festa í kolefniseiningum. Þá er búið að reikna út losun, oft yfir ákveðið tímabil og hægt að kaupa sér kolefn- iseiningar fyrir því sem uppá vantar. Hérlendis er markaður með þessar einingar frekar vanþróaður. Í dag er hægt að fá lausnir sem hafa lítinn rekjanleika og eru óvottaðar. Það er t.d. í boði sums staðar að kolefnisjafna ákveðnar ferðir, bensínlítra og ýmislegt fleira. Það er mikilvægt að huga að heiðarleika gagnvart heimkynnum okkar, jörðinni, og ekki síður okkur sjálfum þegar við ætlum að kolefnisjafna okkur og að við kaupum einingar af ábyrgum aðilum, sem byggja sitt verkefni á rannsóknum og hafa sýnileika. Öryggi og traust er hér eitt af lykilatriðunum. Við kaup á kolefniseiningum er því mikilvægt að fólk og fyrirtæki spyrji sig þeirra spurninga hvort að verkefnið sem það er að kaupa af sé trúverðugt, hvort að nægar rannsóknir liggi að baki kolefnisbindingunni og hvort að peningurinn skili sér ekki örugglega í kolefnisbindingu. Með því að vafra aðeins um netið, þá er hægt að nálgast upplýsingar um þónokkuð mörg verkefni sem bjóða upp á kolefnisbindingu. Líklegt er að fleiri verkefni komi til með að bjóða upp á þessa leið af kolefnisjöfnin í náinni framtíð eftir því sem umhverfisvitund verður sterkari. Ef þú ert í þessum hugleiðingum, þá er gott að kynna sér verkefnið vel sem býður uppá kolefniseiningar og velja vandlega. Kostir þess að fjárfesta í kolefn- iseinginum með skógrækt eru fjöl- margir, fyrir utan hversu tré eru öflug að binda kolefni. Stefnt er að því að fljótlega verði hægt að votta kolefniseiningar sem „framleidd- ar“ eru með skógrækt. Með skýru og ströngu útektar og vottunarferli verður hægt að rekja einingarnar og ganga úr skugga um að þær séu örugglega til staðar. Þetta þýðir þá að ef þú fjárfestir í vottuðum kolefn- inseiningum, þá getur þú verið alveg viss um að þær eru að skila sínu í því að efla umhverfið okkar. Það eru spennandi tímar fram undan í kolefnismálum. Við þurfum öll að leggjast á eitt með að draga úr losun og fjárfesta í kolefnisbindingarverkefnum sem starfa af ábyrgð. Skógrækt er leiðandi á heimsvísu varðandi kolefnisbindingu og mikil tækifæri eru hérlendis við að byggja upp öfluga skóga sem binda kolefni með nokkuð einföldum hætti. Með því leggjum við okkar af mörkum við að kolefnisjafna okkur, og jafnvel koma okkur í plús. Hafliði Hörður Hafliðason verkefnisstjóri Kolefnisbrúarinnar Rannsóknir sýna vel þá miklu kolefnisbindigetu sem skógarnir búa yfir. Mynd / Hlynur Gauti Sigurðsson Þaulreynd hús við Íslenskar aðstæður Stuttur afgreiðslutími Z STÁLGRINDARHÚS TÖLVUPÓSTUR sala@bkhonnun . is SÍMI 571-3535 VEFFANG www .bkhonnun . is Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is Vertu vinur okkar á Facebook Sæti og varahlutir í - Lyftara - Vinnuvélar - Vörubíla - Báta

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.