Bændablaðið - 19.11.2020, Síða 1
22. tölublað 2020 ▯ Fimmtudagur 19. nóvember ▯ Blað nr. 575 ▯ 26. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Fimmtudaginn 12. nóvem-
ber stóð Fagráð í lífrænum
búskap fyrir málþinginu
Lífræn ræktun, umhverfi
og lýðheilsa. Málþingið var
haldið með fjarfundarfyrir-
komulagi.
Cornelis Aart Meijles
er umhverfisverkfræðing
ur og sérfræðingur hjá
Ráðgjafarmiðstöð land búnað
arins í hringrásarhagkerfum.
Hann ræddi aðallega um mikilvægi
þess að koma hinu mikla magni af
lífrænum úrgangi, sem ekki er nýtt í
dag, inn í hringrásina.
Hann lagði upp með þá staðreynd
að Ísland hefði mikla sérstöðu
í lífrænum landbúnaði því þar
eru verðmæti sköpuð úr öllum
auðlindum landsins; villtri náttúru og
líffjölbreytileika, jarðvegi, köldu og
heitu vatni, grænni raforku, kolsýru,
menningu og þekkingu.
Hins vegar vantar að hans
sögn heimafengin næringar
efni sem hráefni, áburðarefnin
og lífrænan úrgang sem er
undirstöðuáburður fyrir líf
ræna ræktun.
Cornelis segir að með
því að binda koltvísýring
í lífmassa og koma honum
fyrir í jarðvegi, megi binda
meira kolefni varanlega sem
„húmus“ í jarðvegi (sem
inniheldur lífverur eins og bakteríur,
örverur, sveppi og orma). Eitt prósent
meira húmus þýðir 70 tonna meiri
koltvísýringsbindingu á hektara. Það
séu einmitt mjög góðir möguleikar í
lífrænni ræktun, með nýtingu á líf
rænum úrgangi, að auka þetta húmus
og binda meira kolefni. Síðan nefndi
hann nokkur dæmi um það hvernig
binda mætti meira kolefni; til dæmis
í skógrækt og jarðvegi. /smh
– Sjá nánar á bls. 26-27
Cornelis Aart
Meijles
Ísland hefur mikla sérstöðu
í lífrænum landbúnaði
– segir Cornelis Aart Meijles umhverfisverkfræðingur
Samkvæmt skýrslu starfshóps,
sem falið var að greina þróun
tollverndar og stöðu íslensks land-
búnaðar gagnvart breytingum í
alþjóðlegu viðskiptaumhverfi,
jókst innflutningur landbúnaðar-
afurða verulega frá 2007 til 2019.
Í sumum tilfellum margfaldaðist
innflutningurinn.
Aukningin var mest í óunnum
kjötvörum, eða 333%, en sala á
innlendri framleiðslu jókst á sama
tíma um 15%. Innflutningur á unnum
kjötvörum jókst á þessu tímabili um
110% að magni til.
Innflutningur á hakkefni
hefur stóraukist
Starfshópurinn bendir á að stór
hluti innflutnings á síðari helmingi
tímabilsins er einkum nautahakkefni
og að einhverju leyti nautalundir, en
opnað var á tollkvóta á ákveðnum
tímabilum vegna skorts á framboði
á markaði. Vekur stóraukinn
innflutningur á kjöti sem skilgreint er
sem hakkefni í innflutningsskýrslum
óneitanlega athygli sem hlýtur að
leiða til frekari skoðunar. Ekki liggja
fyrir nákvæm gögn um innflutning
í gegnum þessa tollkvóta að því er
fram kemur í skýrslunni, en þegar
innflutningsgögn eru skoðuð eftir
mánuðum má sem dæmi áætla að
innflutningur á þessum tollkvótum
hafi verið allt að 990 tonn árið 2015
og 320 tonn árið 2016.
Ekki tekin afstaða til
ruðningsáhrifa
Ekki er lagt mat á það í skýrslunni
hvort stóraukinn innflutningur og
lægri tollar hafi haft ruðningsáhrif
í íslenskum landbúnaði eða leitt
til hægari framleiðsluaukningar en
annars hefði orðið. Tölur í skýrslunni
virðast þó benda til að svo sé.
Hins vegar er í skýrslunni sagt að
frá árinu 2011 hafi innflutningur
verið umfram það magn sem í
boði er að flytja inn á tollkvótum.
Þegar vörur eru fluttar inn umfram
tollkvóta er lagður á þær tollur, ýmist
almennur tollur eða lægri tollur skv.
viðskiptasamningum.
Tollar utan tollkvóta á kjöti
40% lægri en almennt gerist
Í skýrslunni er sagt að ljóst sé að
hlutdeild innflutnings hafi aukist
á kjötmarkaði síðustu ár. Hlutfall
innflutnings var á bilinu 4%–6% á
fyrstu þremur árum tímabilsins, en
14%–17% á síðustu þremur árunum.
Mikill meirihluti innflutnings
á kjöti utan tollkvóta í 2. kafla
tollskrár er fluttur inn frá ESB
ríkjum. Eru tollar þá 40% lægri en
almennur tollur. Á ostum og unnum
kjötvörum eru ekki aðrar ívilnanir
en tollkvótar.
Aukinni eftirspurn mætt að mestu
með innflutningi
Hlutfall verðmætis innflutnings af
framleiðsluvirði innanlands hefur
samhliða auknum innflutningi
hækkað úr 3–6% fyrstu ár tímabilsins
í 12–15% 2018 og 2019. Aukinni
eftirspurn hefur þannig verið mætt
að meira leyti með innflutningi
frekar en innlendri framleiðslu.
Aukinn svínakjötsinnflutningur
Markaðshlutdeild innflutnings
svínakjöts hefur aukist á tímabilinu.
Árið 2007 var hún í kringum 5% en
er á bilinu 20–24% árið 2019.
„Aukningu á seinni hluta
tímabilsins má að miklu leyti rekja
til opinna tollkvóta á svínasíðum,
sem helst í hendur við fjölgun
ferðamanna og neyslu þeirra á
beikoni. Áætlaður innflutningur á
opnum tollkvótum árin 2015 til 2018
er á bilinu 250–970 tonn,“ segir í
skýrsl unni.
Innflutningur á alifuglakjöti jókst
Innflutningur á kjúklingakjöti hefur
aukist á árunum 2007 til 2019,
líkt og á nauta og svínakjöti, en
þó heldur minna. Um þetta segja
skýrslu höfundar:
„Mögulega má það rekja til
þess að ekki þótti þörf á að opna
á tollkvóta á tímabilinu. Tollkvótar
eru nú orðnir samtals 1.115 tonn
sem er rétt undir því magni sem flutt
hefur verið inn árin 2017 til 2019.
Þá er meðtalinn 200 tonna tollkvóti
fyrir lífrænt ræktað og lausagöngu
kjúklingakjöt. Markaðshlutdeild
innflutnings er mæld á sama hátt
og fyrir svína og nautakjöt og er
aðeins á bilinu 2–4% árið 2007 en
er á bilinu 13–17% árið 2019. Sala
á innlendum afurðum var um 7.500
tonn árið 2007 en var orðin 9.800
tonn árið 2019. Á sama tíma jókst
innflutningur úr 177 tonnum í 1.283
tonn.“
136% aukning í mjólkurvörum
Innflutningur á mjólkurvörum jókst
um 136%, að miklu leyti vegna osta.
Innvegin mjólk frá bændum hefur á
sama tíma aukist um 23%. Mikil um
fjöllun hefur einmitt verið um meint
svindl við tollafgreiðslu varðandi
ostainnflutning.
Minnst var aukningin á inn
flutningi á plöntum, eða um 27%,
en gögn um heildarmagn innlendrar
framleiðslu lágu ekki fyrir við gerð
skýrslunnar.
Stóraukinn innflutningur á
grænmeti samfara samdrætti
í innlendri framleiðslu
Innflutningur á grænmeti hefur
aukist um 45%, en athyglisvert er
að sala á innlendu grænmeti hefur á
sama tíma dregist saman um 20%.
Þar vegur 34% sölusamdráttur í
kartöflum þyngst en einnig um
20% samdráttur í tómötum.
Framleiðsla getur hins vegar
sveiflast nokkuð milli ára vegna
tíðarfars. Á þessu tímabili, frá
2007 til 2019, jókst íbúafjöldi um
11% hér á landi og ferðamönnum
fjölgaði um 337%. /HKr.
Kýrnar á bænum Hurðarbaki í Flóa munu, eins og horfur eru nú, vinna það afrek annað árið í röð að vera afurðahæstu
kýr landsins að meðaltali yfir árið. Þegar skýrslum hafði verið skilað fyrir október voru þær í efsta sæti með 8.700 kg
hver, en á búinu, sem rekið er af Fanneyju Ólafsdóttur og Reyni Þór Jónssyni, eru 52,2 árskýr. Á árinu 2019 skiluðu
þær að meðaltali 8.678 kg á kú. Í öðru sæti í októberlok voru kýrnar hjá Guðlaugu Sigurðardóttur og Jóhannesi
Eyberg Ragnarssyni að Hraunhálsi í Helgafellssveit á Snæfellsnesi með 8.576 kg að meðaltali. Þær voru í þriðja
sætinu í fyrra. Í þriðja sætinu nú í október voru kýrnar hjá Guðrúnu Marinósdóttur og Gunnari Þór Þórissyni á
Búrfelli í Svarfaðardal með 8.495 kg að meðaltali. Mynd / HKr.
Skýrsla starfshóps um þróun tollverndar og stöðu íslensks landbúnaðar í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi:
Innflutningur á óunnu kjöti jókst
um 333% frá 2007 til 2019
– Innflutningur á hakkefni hefur stóraukist og innflutningur á mjólkurvörum jókst um 136% og um 45% á grænmeti
Hlakka til að takast á við
áskoranir greinarinnar
24
–25
Bændur á Norðurlandi duglegir
að afla sér nýrrar þekkingar
Geitaostur framleiddur
í heimavinnslu á
Brúnastöðum í Fljótum
28
–29
32
–33