Bændablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 16

Bændablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 202016 Jól og áramót eru í huga flestra skemmtilegur tími þegar fjölskyldan kemur saman og gerir sér glaðan dag. Vinir og vandamenn gefa hver öðrum gjafir og gleyma gömlum deilumálum, að minnsta kosti um stundarsakir. Sumir tengja jólin fæðingu Krists aðrir halda upp á þau til að fagna því að sólin fer að hækka á lofti og börnin bíða spennt eftir því að fá í skóinn. Ekki síst núna þegar COVID-19 hætta steðjar að er nauðsynlegt að fólk sýni hvort öðru hlýhug og verði gott við hvað annað og gangi ekki fram af sér í skemmtanahaldi. Nóg er af sögum um stórkarlalegt jólahald sem oft endar með skelfingu. Í Bárðar sögu Snæfellsáss segir frá allsvakalegu jólaboði sem Hít tröllkona stóð fyrir í Hundahelli í Hítardal. Til veisl- unnar bauð hún meðal annarra Bárði Snæfellsás sem var af risakyni í föðurætt, Gesti syni hans og mörgum tröllum. Þar var Surtur af Hellisfitjum og Jóra úr Jórukleif, Kolbjörn í Breiðdalsbotnum, Glámur og Ámur úr Miðfjarðarnesbjörgum og Guðlaugur úr Guðlaugshöfða. Allt góð og gild þurs og drykkju- tröll. „Voru þá borð upp tekin og matur á borinn, heldur stórkostlegur. Drykkja var þar mjög óstjórnleg, svo að allir urðu þar ginntir. En er máltíð var úti, spurðu þursar og Hít, hvað Bárður vildi til gamans hafa. Bárður bað þá fara til skinnleiks. Stóðu þeir þá upp Bárður og Surtur, Kolbjörn, Guðlaugur og Gljúfra-Geir, og höfðu hornskinnaleik; var þá ekki svo lítið um þá, - þó var auðséð að Bárður var sterkastur, þó hann væri gamall. Bjarnfeld einn stóran höfðu þeir fyrir skinn, og vöfðu hann saman og köstuðu honum á milli sín fjórir, en einn var úti og skildi sá ná. Ekki var gott að vera fyrir hrundningum þeirra. Flestir stóðu uppi á bekkjum nema Gestur, hann sat kyrr á rúmi sínu. En þá er Kolbjörn var úti, ætlar hann að ná skinni fyrir Bárði og hljóp heldur snarlega. En er Gestur sá það, skaut hann fætinum fyrir Kolbjörn, svo þursinn hraut þegar út á bergið svo hart, að brotnaði í honum nefið, - féll þá blóð um hann allan. Varð þá upphlaup og hrundningar heldur sterklegar; vildi Kolbjörn hefna sín á Gesti.“ Jólin eru magnaður tími og svo virðist sem öll náttúrulögmál snúist á hvolf. Á aðfangadagskvöldi jóla er drengur, sem hafði ráðist til starfa á prestsjörð, úti í hesthúsi að kemba og hirða eldishesta prestsins. Hann veit ekki fyrr til en kona prestsins vindur þar inn og gefur hún sig á tal við dreng um ýmis málefni. Þegar minnst varði dregur hún beisli undan svuntu sinni og leggur við drenginn og fylgir því mikið töfraafl. Drengurinn leyfir prestkonunni að fara á bak sér og tekur hann svo á loft eins og fuglinn fljúgandi. Fer hann yfir fjöll og dali, kletta og klungur og hvað sem fyrir er með prestkonuna á bakinu. Meðan á þessu stendur þykir drengnum eins og hann vaði reyk. Af ofangreindu má sjá að það þarf ekki mikið til að jólin fari úrskeiðis og jafnvel öll hátíðin á versta veg. Reynum því öll að vera góð við hvert annað og hlakka til hækkandi sólar. Það birtir allaf til að lokum. /VH STEKKUR Kóngakrabbi er nýleg auðlind í Norður-Noregi ef auðlind skyldi kalla. Margir telja að tilkoma krabbans sé umhverfisslys. Krabbinn hefur skaðað lífríkið og truflað hefðbundnar veiðar. Á móti kemur að hann er eftirsóttur af matgæðingum og veiðar á honum skila umtalsverðum útflutnings- tekjum. Kóngakrabbi er ein stærsta krabbategund í heimi. Aðal heimkynni hans eru í norðan- verðu Kyrrahafi og í Beringshafi. Hann veiðist við Alaska og enska heitið er „Red king crab“. Hann finnst einnig Kyrrahafsmegin við Rússland, nánar til- tekið við Kam tsjatka- skagann. Á sjöunda áratug síðustu aldar ákváðu Rússar að flytja krabba frá Kamtsjatka yfir í Barentshafið og slepptu þeim í Murmanskfirði. Markmiðið var að skapa nýja sjávarauðlind við Murmansk. Þetta tiltæki Rússanna dró aldeil- is dilk á eftir sér. Krabbinn hélt sig ekki við Murmansk heldur dreifði sér smám saman vestur á bóginn yfir til Noregs og leitaði einnig austur með strönd Rússlands og út í Suður- Barentshaf. Spillti netunum og truflaði veiðar Fyrst varð vart við stöku krabba í norskri lögsögu á seinni hluta áttunda áratugarins og næstu árin á eftir lét hann sjá sig í sívaxandi mæli. Í byrjun tíunda áratugarins var kóngakrabbinn orðinn verulegt vandamál í Finnmörk, nyrsta fylki Noregs. Hann veiddist sem meðafli í þorskanet með tilheyrandi neta- tjóni og vandræðum við að greiða krabbann úr netunum. Krabbinn þótti hinn mesti ófögnuður og kvað svo rammt af ágengni hans að sjómenn sums staðar í Austur- Finnmörk gátu varla stundað veiðar á hefðbundnum slóðum. Óvelkomið lostæti Innrás krabbans olli miklu fjaðrafoki í norskum fjölmiðlum. Farið var hörðum orðum um risaskepnuna úr austri sem birtist eins og furðuvera úr framandi heimi. Stærstu krabb- arnir við Noreg geta orðið 8 kíló að þyngd eða meir. Stærstu krabbar sem fundist hafa í heiminum eru um13 kíló. Þegar strekkt er á fótum stærstu krabbanna geta verið 2 metrar á milli klónna. Sjómenn kröfðust þess að krabb- anum yrði útrýmt og margir eru þeirr- ar skoðunar enn. Umhverfissinnar tóku í sama streng. Vísindamenn telja hins vegar flestir að skaðinn sé skeður. Krabbinn sé kominn til að vera. Ekki sé hægt að útrýma honum nema með þátttöku Rússa og þaðan sé ekki samvinnu að vænta í slíkt verkefni. Fljótlega fóru menn að horfa til þess að kóngakrabbar eru eftirsóttar kræsingar sem sóma sér vel á bestu veisluborðum í heiminum. Þeir sáu pening í því að nýta krabbann enda selst hann á háu verði. Nú er svo komið að þessi óvelkomni ógn- valdur er orðinn verðmæt auðlind. Veiðar og vinnsla á honum styrkja stoðir atvinnulífs við sjávarsíðuna í Austur-Finnmörk þar sem víða eru brothættar byggðir. Afdrifarík áhrif á botndýralíf Kóngakrabbinn er skilgreindur sem framandi og ágeng tegund og ekki að ósekju. Rannsóknir norskra vísinda- manna hafa leitt í ljós að krabbinn hefur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir botndýralíf á þeim svæðum þar sem hann hefur hreiðrað um sig í miklum mæli í langan tíma. Samsetning botndýrategunda hefur meðal annars breyst af völdum hans. Tegundir eins og kræklingar og krossfiskar hafa horfið, að minnsta kosti stærstu einstaklingarnir, og lífmassi á sjávarbotni hefur minnkað. Einnig hafa orðið breytingar á gerð á botnseti sem veikir lífsmöguleika mikilvægra botndýra. Norskir fiski- fræðingar benda á að hér sé lýst skammtímaáhrifum. Stóra spurn- ingin sé hver áhrifin verði til langs tíma. Við þeirri spurningu hafi þeir engin góð svör. Kóngakrabbar halda sig yfirleitt á talsverðu dýpi en á mökunartíman- um koma þeir upp á grunnsævi. Þá er hægt að finna þá á þriggja metra dýpi en annars eru þeir vanalega á 150 til 350 metra dýpi eða meir. Fjöldi skipa stundar krabbaveiðar Veiðar á kóngakrabba í norskri lög- sögu hófust nokkuð snemma en voru fremur litlar fyrst framan af. Eftir aldamótin tóku þær kipp. Mestur varð aflinn í Austur-Finnmörk rúm 2.600 tonn árið 2008 en hann hefur sveiflast eftir það, er mikið frá 1.000 tonnum upp í 2.000 tonn á ári. Kóngakrabbinn er veiddur í gildrur aðallega inni í fjörðum og við ströndina meðfram Austur- Finnmörk. Veiðum á því svæði er stýrt með heildarkvóta. Fjöldi þeirra skipa sem taka þátt í þessum veið- um er breytilegur en síðustu árin hafa skipin verið í kringum 700 að tölu. Þá eru ótaldir bátar sem mega stundar frjálsar veiðar við Vestur- Finnmörk sem vikið verður nánar að hér á eftir. Kvótinn hefur einnig verið breytilegur en er að meðaltali um 1.500 tonn af karlkröbbum á ári og um 50 tonn af kvenkröbbum. Skip og bátar hafa mismikinn kvóta en reynt hefur verið að umbuna þeim sjómönnum sem báru mestan skaða af krabb- anum. Um tuttugu fyrir- tæki vinna krabbann og löndunarhafnir eru um 30. Milljarða útflutningsverðmæti Góður markaður eru fyrir kóngakrabba því veiðar við Alaska hafa lengi verið í mikilli lægð. Kóngakrabbi er önnur verðmætasta skelfisktegundin í útflutningi norskra sjávarafurða og kemur næst á eftir rækjunni. Útflutningur krabbans nam 2.000 tonnum árið 2019 að verðmæti 642 milljónir norskra króna (9,6 millj- arðar íslenskra króna). Til samanburðar má nefna að útflutningur á rækjuafurðum nam rúmum 16 þúsund tonnum árið 2019 að verðmæti 1,1 milljarður norskra króna (16,4 milljarðar íslenskra króna). Síðustu ár hafa Norðmenn náð tökum á útflutningi á lifandi kóngakrabba sem eykur verðmæti hans verulega. Nú er svo komið að stærstur hluti krabbans er fluttur út lifandi. Megnið fer til Suður-Kóreu. Eitt norskt krabbafyrirtæki náði þeim árangri að hreppa útflutnings- verðlaun 2017 fyrir að flytja lifandi krabba til nafntoguðustu veitinga- staða heims, þeirra á meðal er hið heimsfræga Noma veitingahús í Danmörku. Veiðiráðgjöf byggð á jafnvægislist Útbreiðsla og þéttleiki kónga- krabbans er mest við Austur- Finnmörk. Stefna norskra stjórn- valda er tvíþætt, annars vegar að nýta kóngakrabbann sem auðlind en um leið hefta frekari útbreiðslu hans. Ef krabbastofninn fengi til dæmis að ná stærð sem miðaðist við hámarks- nýtingu og þéttleiki krabbans yrði of mikill er viðbúið að hann tæki á rás suður á bóginn. Til að ná þessu markmiðum stjórnvalda er heildarkvóti aðeins settur á veiðar í Austur-Finnmörk en veiðar í Vestur-Finnmörk eru frjálsar og engar aflatakmarkanir þar. Línan á milli liggur við bæinn Nordkapp. Norska hafrannsóknastofnunin hefur það verkefni að meta veiði- stofninn og gefa ráð um árlegan kvóta. Ráðgjöfin fyrir árið 2020 er að veiða megi 1.530 tonn við Austur-Finnmörk. Í samræmi við stefnu stjórnvalda þarf norska Hafró að stunda eins konar jafnvægislist í ráðgjöf sinni, þ.e. gera ráð fyrir hæfilegri „ofveiði“ ef svo má að orði komast en þó ekki meiri en svo að unnt sé að viðhalda tiltekinni stofnstærð sem gæti tryggt ábatasamar atvinnuveiðarnar. Verður framrásin stöðvuð? Ekki eru allir á einu máli um að þessi stefna dugi til að hefta frekari framrás krabbans. Árið 2016 fannst kóngakrabbi fyrir utan Tromsø sunnar en nokkru sinni fyrr að talið er. Bent er á að kóngakrabbinn geti lagt langar leiðir að baki í fæðuleit. Vitað er að merktir krabbar hafa farið um 13 kílómetra á dag, 175 kílómetra yfir mánuðinn og 426 kílómetra á einu ári. Vísindamenn hjá Nofima, sem er sambærileg stofnun og MATÍS hér á landi, telja að það sé aðeins spurning um tíma, kannski tíu ár, hvenær krabbinn fari að veiðast við Þrændalög sem eru um miðbik Noregs. Þeir benda á að þótt kjörhitastig sjávar fyrir krabbann sé 3 gráður geti hann líka þrifist í 8 til 12 gráðu heitum sjó. Tíminn einn getur leitt það í ljós hvort kóngakrabbinn láti staðar numið við Finnmörk eða skríði lengra fram til suðurs. Grjótkrabbi, nýbúi við Ísland Ekki er hægt að skiljast við kóngakrabbann án þess að nefna frænda hans grjótkrabbann sem er nýbúi við strendur Íslands. Sumt er líkt með tilkomu þeirra á framandi slóð en annað ekki. Grjótkrabbinn fannst fyrst í Hvalfirði árið 2006. Náttúruleg heimkynni hans eru við Norður- Ameríku.Talið er að hann hafi borist hingað með lirfum í kjölvatni skipa. Grjótkrabbinn dreifði sér fljótt frá suðvesturhorni landsins, norður fyrir land og lengra austur. Nú er svo komið að hann finnst við rúm- lega 70% af strandlengjunni. Fyrir utan mikla útbreiðslu þá er þéttleiki hans víða mikill við Suðvesturland. Grjótkrabbi er framandi og ágeng tegund. Þar sem hann er þéttastur hefur hann rutt út vegi keppinaut- um í lífríkinu eins og bogkrabba og trjónukrabba. Áhyggjur eru af því að hann kunni að hafa töluverð áhrif á botndýralíf á grunnsævi við Ísland. Grjótkrabbinn er fremur stór krabbi, þótt hann jafnist ekki á við kóngakrabbann, og er hann veidd- ur við Norður-Ameríku. Hér við land hafa verið gerðar tilraunir til að nýta hann og eru vonir bundn- ar við að krabbinn geti orðið ágæt búbót í íslenskum sjávarútvegi. Undanfarin ár hefur krabba- veiðin verið sveiflukennd, fór mest í tæp 10 tonn árið 2019. Það met hefur þegar verið slegið í ár því aflinn var kominn í rúm 20 tonn í byrjun nóvember. Líklega er það merki um að grjótkrabbinn geti orði nýr verðmætur nytjastofn við Ísland. NYTJAR HAFSINS Innrás kóngakrabbans í norska lögsögu: Auðlind eða umhverfisslys Kóngakrabbi getur orðið risavaxið skrímsli. Mynd / Úr auglýsingariti fyrir Kirkenes/Trym Ivar Bergsmo Kóngakrabbi er mikið veiddur í gildrur, m.a. við hafísröndina við Alaska í norðanverðu Kyrrahafi. Mynd / deningsfooods.com Kjartan Stefánsson kjartanst@simnet.is Verum stillt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.