Bændablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 202016
Jól og áramót eru í huga flestra
skemmtilegur tími þegar
fjölskyldan kemur saman og
gerir sér glaðan dag. Vinir og
vandamenn gefa hver öðrum
gjafir og gleyma gömlum
deilumálum, að minnsta kosti
um stundarsakir.
Sumir tengja jólin fæðingu
Krists aðrir halda upp á þau til að
fagna því að sólin fer að hækka á
lofti og börnin bíða spennt eftir
því að fá í skóinn.
Ekki síst núna þegar
COVID-19 hætta steðjar að er
nauðsynlegt að fólk sýni hvort
öðru hlýhug og verði gott við
hvað annað og gangi ekki fram
af sér í skemmtanahaldi. Nóg
er af sögum um stórkarlalegt
jólahald sem oft endar með
skelfingu.
Í Bárðar sögu Snæfellsáss
segir frá allsvakalegu jólaboði
sem Hít tröllkona stóð fyrir í
Hundahelli í Hítardal. Til veisl-
unnar bauð hún meðal annarra
Bárði Snæfellsás sem var af
risakyni í föðurætt, Gesti syni
hans og mörgum tröllum. Þar
var Surtur af Hellisfitjum og
Jóra úr Jórukleif, Kolbjörn í
Breiðdalsbotnum, Glámur og
Ámur úr Miðfjarðarnesbjörgum
og Guðlaugur úr Guðlaugshöfða.
Allt góð og gild þurs og drykkju-
tröll.
„Voru þá borð upp tekin
og matur á borinn, heldur
stórkostlegur. Drykkja var þar
mjög óstjórnleg, svo að allir
urðu þar ginntir. En er máltíð var
úti, spurðu þursar og Hít, hvað
Bárður vildi til gamans hafa.
Bárður bað þá fara til skinnleiks.
Stóðu þeir þá upp Bárður og
Surtur, Kolbjörn, Guðlaugur
og Gljúfra-Geir, og höfðu
hornskinnaleik; var þá ekki svo
lítið um þá, - þó var auðséð að
Bárður var sterkastur, þó hann
væri gamall. Bjarnfeld einn
stóran höfðu þeir fyrir skinn, og
vöfðu hann saman og köstuðu
honum á milli sín fjórir, en einn
var úti og skildi sá ná. Ekki var
gott að vera fyrir hrundningum
þeirra. Flestir stóðu uppi á
bekkjum nema Gestur, hann
sat kyrr á rúmi sínu. En þá er
Kolbjörn var úti, ætlar hann að
ná skinni fyrir Bárði og hljóp
heldur snarlega. En er Gestur sá
það, skaut hann fætinum fyrir
Kolbjörn, svo þursinn hraut þegar
út á bergið svo hart, að brotnaði
í honum nefið, - féll þá blóð um
hann allan. Varð þá upphlaup og
hrundningar heldur sterklegar;
vildi Kolbjörn hefna sín á Gesti.“
Jólin eru magnaður tími og
svo virðist sem öll náttúrulögmál
snúist á hvolf.
Á aðfangadagskvöldi jóla
er drengur, sem hafði ráðist til
starfa á prestsjörð, úti í hesthúsi
að kemba og hirða eldishesta
prestsins. Hann veit ekki fyrr
til en kona prestsins vindur
þar inn og gefur hún sig á tal
við dreng um ýmis málefni.
Þegar minnst varði dregur hún
beisli undan svuntu sinni og
leggur við drenginn og fylgir
því mikið töfraafl. Drengurinn
leyfir prestkonunni að fara á
bak sér og tekur hann svo á loft
eins og fuglinn fljúgandi. Fer
hann yfir fjöll og dali, kletta og
klungur og hvað sem fyrir er með
prestkonuna á bakinu. Meðan á
þessu stendur þykir drengnum
eins og hann vaði reyk.
Af ofangreindu má sjá að það
þarf ekki mikið til að jólin fari
úrskeiðis og jafnvel öll hátíðin
á versta veg. Reynum því öll
að vera góð við hvert annað og
hlakka til hækkandi sólar.
Það birtir allaf til að lokum.
/VH
STEKKUR
Kóngakrabbi er nýleg auðlind í
Norður-Noregi ef auðlind skyldi
kalla. Margir telja að tilkoma
krabbans sé umhverfisslys.
Krabbinn hefur skaðað lífríkið og
truflað hefðbundnar veiðar. Á móti
kemur að hann er eftirsóttur af
matgæðingum og veiðar á honum
skila umtalsverðum útflutnings-
tekjum.
Kóngakrabbi er ein
stærsta krabbategund í
heimi. Aðal heimkynni
hans eru í norðan-
verðu Kyrrahafi og
í Beringshafi. Hann
veiðist við Alaska og
enska heitið er „Red
king crab“. Hann finnst
einnig Kyrrahafsmegin
við Rússland, nánar til-
tekið við Kam tsjatka-
skagann. Á sjöunda
áratug síðustu aldar
ákváðu Rússar að flytja
krabba frá Kamtsjatka
yfir í Barentshafið
og slepptu þeim
í Murmanskfirði.
Markmiðið var að
skapa nýja sjávarauðlind við
Murmansk.
Þetta tiltæki Rússanna dró aldeil-
is dilk á eftir sér. Krabbinn hélt sig
ekki við Murmansk heldur dreifði
sér smám saman vestur á bóginn yfir
til Noregs og leitaði einnig austur
með strönd Rússlands og út í Suður-
Barentshaf.
Spillti netunum og truflaði veiðar
Fyrst varð vart við stöku krabba
í norskri lögsögu á seinni hluta
áttunda áratugarins og næstu árin
á eftir lét hann sjá sig í sívaxandi
mæli. Í byrjun tíunda áratugarins
var kóngakrabbinn orðinn verulegt
vandamál í Finnmörk, nyrsta fylki
Noregs. Hann veiddist sem meðafli
í þorskanet með tilheyrandi neta-
tjóni og vandræðum við að greiða
krabbann úr netunum. Krabbinn
þótti hinn mesti ófögnuður og
kvað svo rammt af ágengni hans
að sjómenn sums staðar í Austur-
Finnmörk gátu varla stundað veiðar
á hefðbundnum slóðum.
Óvelkomið lostæti
Innrás krabbans olli miklu fjaðrafoki
í norskum fjölmiðlum. Farið var
hörðum orðum um risaskepnuna úr
austri sem birtist eins og furðuvera
úr framandi heimi. Stærstu krabb-
arnir við Noreg geta orðið 8 kíló að
þyngd eða meir. Stærstu krabbar sem
fundist hafa í heiminum eru um13
kíló. Þegar strekkt er á fótum stærstu
krabbanna geta verið 2 metrar á milli
klónna.
Sjómenn kröfðust þess að krabb-
anum yrði útrýmt og margir eru þeirr-
ar skoðunar enn. Umhverfissinnar
tóku í sama streng. Vísindamenn
telja hins vegar flestir að skaðinn
sé skeður. Krabbinn sé kominn til að
vera. Ekki sé hægt að útrýma honum
nema með þátttöku Rússa og þaðan
sé ekki samvinnu að vænta í slíkt
verkefni.
Fljótlega fóru menn að horfa til
þess að kóngakrabbar eru eftirsóttar
kræsingar sem sóma sér vel á bestu
veisluborðum í heiminum. Þeir sáu
pening í því að nýta krabbann enda
selst hann á háu verði. Nú er svo
komið að þessi óvelkomni ógn-
valdur er orðinn verðmæt auðlind.
Veiðar og vinnsla á honum styrkja
stoðir atvinnulífs við sjávarsíðuna í
Austur-Finnmörk þar sem víða eru
brothættar byggðir.
Afdrifarík áhrif á botndýralíf
Kóngakrabbinn er skilgreindur sem
framandi og ágeng tegund og ekki að
ósekju. Rannsóknir norskra vísinda-
manna hafa leitt í ljós að krabbinn
hefur haft afdrifaríkar afleiðingar
fyrir botndýralíf á þeim svæðum
þar sem hann hefur hreiðrað um sig
í miklum mæli í langan tíma.
Samsetning botndýrategunda
hefur meðal annars breyst af völdum
hans. Tegundir eins og kræklingar og
krossfiskar hafa horfið, að minnsta
kosti stærstu einstaklingarnir, og
lífmassi á sjávarbotni hefur minnkað.
Einnig hafa orðið breytingar á gerð
á botnseti sem veikir lífsmöguleika
mikilvægra botndýra. Norskir fiski-
fræðingar benda á að hér sé lýst
skammtímaáhrifum. Stóra spurn-
ingin sé hver áhrifin verði til langs
tíma. Við þeirri spurningu hafi þeir
engin góð svör.
Kóngakrabbar halda sig yfirleitt
á talsverðu dýpi en á mökunartíman-
um koma þeir upp á grunnsævi. Þá er
hægt að finna þá á þriggja metra dýpi
en annars eru þeir vanalega á 150 til
350 metra dýpi eða meir.
Fjöldi skipa stundar krabbaveiðar
Veiðar á kóngakrabba í norskri lög-
sögu hófust nokkuð snemma en voru
fremur litlar fyrst framan af. Eftir
aldamótin tóku þær kipp. Mestur
varð aflinn í Austur-Finnmörk rúm
2.600 tonn árið 2008 en hann hefur
sveiflast eftir það, er mikið frá 1.000
tonnum upp í 2.000 tonn á ári.
Kóngakrabbinn er veiddur í
gildrur aðallega inni í fjörðum og
við ströndina meðfram Austur-
Finnmörk. Veiðum á því svæði er
stýrt með heildarkvóta. Fjöldi þeirra
skipa sem taka þátt í þessum veið-
um er breytilegur en síðustu árin
hafa skipin verið í kringum 700 að
tölu. Þá eru ótaldir bátar sem mega
stundar frjálsar veiðar við Vestur-
Finnmörk sem vikið verður nánar
að hér á eftir.
Kvótinn hefur einnig verið
breytilegur en er að meðaltali um
1.500 tonn af karlkröbbum á ári og
um 50 tonn af kvenkröbbum. Skip
og bátar hafa mismikinn kvóta en
reynt hefur verið að umbuna þeim
sjómönnum sem báru
mestan skaða af krabb-
anum.
Um tuttugu fyrir-
tæki vinna krabbann og
löndunarhafnir eru um 30.
Milljarða
útflutningsverðmæti
Góður markaður eru fyrir
kóngakrabba því veiðar
við Alaska hafa lengi
verið í mikilli lægð. Kóngakrabbi er
önnur verðmætasta skelfisktegundin
í útflutningi norskra sjávarafurða
og kemur næst á eftir rækjunni.
Útflutningur krabbans nam 2.000
tonnum árið 2019 að verðmæti 642
milljónir norskra króna (9,6 millj-
arðar íslenskra króna).
Til samanburðar má nefna að
útflutningur á rækjuafurðum nam
rúmum 16 þúsund tonnum árið 2019
að verðmæti 1,1 milljarður norskra
króna (16,4 milljarðar íslenskra
króna).
Síðustu ár hafa Norðmenn
náð tökum á útflutningi á lifandi
kóngakrabba sem eykur verðmæti
hans verulega. Nú er svo komið að
stærstur hluti krabbans er fluttur út
lifandi. Megnið fer til Suður-Kóreu.
Eitt norskt krabbafyrirtæki náði
þeim árangri að hreppa útflutnings-
verðlaun 2017 fyrir að flytja lifandi
krabba til nafntoguðustu veitinga-
staða heims, þeirra á meðal er hið
heimsfræga Noma veitingahús í
Danmörku.
Veiðiráðgjöf byggð á jafnvægislist
Útbreiðsla og þéttleiki kónga-
krabbans er mest við Austur-
Finnmörk. Stefna norskra stjórn-
valda er tvíþætt, annars vegar að
nýta kóngakrabbann sem auðlind en
um leið hefta frekari útbreiðslu hans.
Ef krabbastofninn fengi til dæmis að
ná stærð sem miðaðist við hámarks-
nýtingu og þéttleiki krabbans yrði of
mikill er viðbúið að hann tæki á rás
suður á bóginn.
Til að ná þessu markmiðum
stjórnvalda er heildarkvóti aðeins
settur á veiðar í Austur-Finnmörk en
veiðar í Vestur-Finnmörk eru frjálsar
og engar aflatakmarkanir þar. Línan
á milli liggur við bæinn Nordkapp.
Norska hafrannsóknastofnunin
hefur það verkefni að meta veiði-
stofninn og gefa ráð um árlegan
kvóta. Ráðgjöfin fyrir árið 2020
er að veiða megi 1.530 tonn við
Austur-Finnmörk.
Í samræmi við stefnu stjórnvalda
þarf norska Hafró að stunda eins
konar jafnvægislist í ráðgjöf sinni,
þ.e. gera ráð fyrir hæfilegri „ofveiði“
ef svo má að orði komast en þó ekki
meiri en svo að unnt sé að viðhalda
tiltekinni stofnstærð sem gæti tryggt
ábatasamar atvinnuveiðarnar.
Verður framrásin stöðvuð?
Ekki eru allir á einu máli um að
þessi stefna dugi til að hefta frekari
framrás krabbans. Árið 2016 fannst
kóngakrabbi fyrir utan Tromsø
sunnar en nokkru sinni fyrr að talið
er. Bent er á að kóngakrabbinn geti
lagt langar leiðir að baki í fæðuleit.
Vitað er að merktir krabbar hafa
farið um 13 kílómetra á dag, 175
kílómetra yfir mánuðinn og 426
kílómetra á einu ári.
Vísindamenn hjá Nofima, sem
er sambærileg stofnun og MATÍS
hér á landi, telja að það sé aðeins
spurning um tíma, kannski tíu ár,
hvenær krabbinn fari að veiðast
við Þrændalög sem eru um miðbik
Noregs. Þeir benda á að þótt
kjörhitastig sjávar fyrir krabbann
sé 3 gráður geti hann líka þrifist í
8 til 12 gráðu heitum sjó.
Tíminn einn getur leitt það í ljós
hvort kóngakrabbinn láti staðar
numið við Finnmörk eða skríði
lengra fram til suðurs.
Grjótkrabbi, nýbúi við Ísland
Ekki er hægt að skiljast við
kóngakrabbann án þess að nefna
frænda hans grjótkrabbann sem er
nýbúi við strendur Íslands. Sumt er
líkt með tilkomu þeirra á framandi
slóð en annað ekki.
Grjótkrabbinn fannst fyrst í
Hvalfirði árið 2006. Náttúruleg
heimkynni hans eru við Norður-
Ameríku.Talið er að hann hafi
borist hingað með lirfum í kjölvatni
skipa.
Grjótkrabbinn dreifði sér fljótt
frá suðvesturhorni landsins, norður
fyrir land og lengra austur. Nú er
svo komið að hann finnst við rúm-
lega 70% af strandlengjunni. Fyrir
utan mikla útbreiðslu þá er þéttleiki
hans víða mikill við Suðvesturland.
Grjótkrabbi er framandi og ágeng
tegund. Þar sem hann er þéttastur
hefur hann rutt út vegi keppinaut-
um í lífríkinu eins og bogkrabba
og trjónukrabba. Áhyggjur eru af
því að hann kunni að hafa töluverð
áhrif á botndýralíf á grunnsævi við
Ísland.
Grjótkrabbinn er fremur stór
krabbi, þótt hann jafnist ekki á við
kóngakrabbann, og er hann veidd-
ur við Norður-Ameríku. Hér við
land hafa verið gerðar tilraunir til
að nýta hann og eru vonir bundn-
ar við að krabbinn geti orðið ágæt
búbót í íslenskum sjávarútvegi.
Undanfarin ár hefur krabba-
veiðin verið sveiflukennd, fór mest
í tæp 10 tonn árið 2019. Það met
hefur þegar verið slegið í ár því
aflinn var kominn í rúm 20 tonn í
byrjun nóvember. Líklega er það
merki um að grjótkrabbinn geti
orði nýr verðmætur nytjastofn við
Ísland.
NYTJAR HAFSINS
Innrás kóngakrabbans í norska lögsögu:
Auðlind eða umhverfisslys
Kóngakrabbi getur orðið risavaxið skrímsli.
Mynd / Úr auglýsingariti fyrir Kirkenes/Trym Ivar Bergsmo
Kóngakrabbi er mikið veiddur í gildrur, m.a. við hafísröndina við Alaska í norðanverðu Kyrrahafi. Mynd / deningsfooods.com
Kjartan Stefánsson
kjartanst@simnet.is
Verum stillt