Bændablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 46

Bændablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 202046 Það sem af er ári hefur sala á rafknúnum bílum slegið met og þá aðallega í sölu á fólksbílum til einkanota, en frá áramótum hafa verið seldir yfir 2.400 rafmagns­ bílar (þar af um 800 Teslur). Fá fyrirtæki eru að kaupa sendibíla, en nokkuð er um að fyrirtæki eru með smærri rafmagnsbíla fyrir starfsmenn. Í nokkur ár hafa verið fáanlegir litlir sendibílar, en miðað við innkaupsverð, drægni í rafhlöðu og stærð bílanna hefur sala á þeim verið frekar lítil. Nú er kominn á markað kínverskur rafmagnsbíll sem ætti að henta töluverðum hópi þeirra sem nota sendibíla. Maxus Deliver 3–122 hestafla 100% rafmagnssendibíll Í Skeifunni 17 er fyrirtækið Vatt sem selur rafmagnsvespur og rafmagns- bíla (þar sem Suzuki mótorhjól voru seld áður). Nýlega komu til landsins fyrstu Maxus Deliver sendibílarnir sem framleiddir eru í Kína. Þeir koma í nokkrum stærðum (langir og stuttir) og eru með 122 hestafla rafmagnsvél, uppgefin drægni er á bilinu 235-340 km (fer eftir stærð rafhlöðu). Bílarnir eru framhjóladrifnir, sjálfskiptir á verði frá 5.280.000 upp í 6.280.000. Við fyrstu sýn eru bílarnir ekki ósvipaðir að stærð og sendibíllinn Reunault Trafic, sem ég vinn á, og með það í huga fór ég í tæplega 100 km prufuakstur á bílnum. Snerpan sérstaklega skemmtileg fyrstu metrana af stað Þó að íburður sé ekki mikill og ef lítið er af aukabúnaði eins og blindhornsvara, einnig að miðstöð er ekki skemmtileg, það vantar hita í stýri og sæti, þá er samt nokkuð þægilegt að sitja í bílnum. Útsýni er gott fram á við og hliðarspeglar eru stórir og góðir. Eins og með alla bíla sem ég prófa þá hávaðamældi ég bílinn á 90 km hraða. Miðað við að þetta er rafmagnsbíll þá eru 74,1 desibel frekar í hærri kantinum. Einnig ef tekið er tillit til þess að hann var á sumardekkjum. Ástæðan virðist vera að bíllinn er frekar lítið ein- angraður enda veghljóð aðeins yfir meðallagi. Í innanbæjarakstri er bíllinn skemmtilega snarpur, aðeins örfáar sek. upp í 60 km hraða. Til saman- burðar er bíllinn sem ég vinn á um 50 hestöflum kraftmeiri, en er lengur að ná 60 úr kyrrstöðu. Eftir innanbæjaraksturinn fór ég út fyrir bæinn til að skoða drægni (rafhlaðan var hálfhlaðin þegar ég fékk bílinn). Neðst í Mosfellsdalnum stoppaði ég og fiktaði í öllum tökk- um til að skoða hvað væri annað en mótorarnir sem gætu haft áhrif á drægnina. Ekkert virtist hafa áhrif á uppgefna drægni nema miðstöðin, því þegar hún var sett á fór drægnin úr 114 km í 102. Það er sambærilegt við aðra rafmagnsbíla. Það að vera með miðstöðina í gangi er mesti raf- magnsþjófnaðurinn gagnvart drægni. Ágætis fjöðrun, en fullmikið smásteinahljóð undir bílnum á möl Hjólbarðarnir eru ekki sérlega stórir (185/65/15) og gefa þar af leiðandi ekki mikið eftir í holum, en fjöðrunin á bílnum er ágæt. Á malarvegi er bíll- inn aðeins laus að aftan (var að vísu með algjörlega tóman bíl sem má hlaða allt að 1000 kg). Smásteinarnir sem komu frá hjólbörðunum gáfu fullmikið „baukahljóð“ í lítið ein- angraðan undirvagninn. Það gæti hugsanlega breyst við að ryðverja undirvagninn. Annars var fjöðrunin furðu góð á malarveginum. Eftir blautan og moldugan malar veginn var bíllinn í meðallagi skítugur, en af einhverjum orsökum virtist mesti skíturinn fara á bakkmyndavélaaugað svo að lítið sást aftur fyrir þegar næst þurfti að bakka. Plúsar og mínusar Stærsti plúsinn er fyrir mér að bíllinn henti best til innanbæjaraksturs. Ef gengið er út frá 30.000 km ársnotkun ætti þessi rafmagnsbíll að vera hagkvæmur í rekstri og fljótur að borga sig upp, því mín reynsla er að sambærilegir díselbílar eyða á bilinu 9-13 lítrum af eldsneyti á hundraðið innanbæjar. Mínusarnir eru nokkrir: Erfitt að halda jöfnum hita inni í „ökumannsrýminu“, annaðhvort var of heitt eða kalt. Það vantar hitamæli sem sýnir útihita. Þá þarf að muna eftir að kveikja og slökkva ljós til að fá löglegan ljósabúnað í akstri, vantar varadekk. Eitt er þó varasamt við bílinn. Ef maður þarf að opna vélarhúsið þá eru ekki neinar lamir á vélarhlífinni. Mér dauðbrá þegar ég opnaði hana upp í vindinn og „húddið“ fauk upp og af bílnum, en mér rétt tókst í tæka tíð að grípa það áður en það færi í framrúðuna. Þetta er eitthvað sem mætti huga að og setja einhvers konar öryggisspotta eða vír svo að þetta gerist ekki. Annars er hægt að nálgast meiri upplýsingar um Maxus sendibílana og væntanlegan 7 sæta Maxus fjölskyldubílinn á vefsíðu Vatt ehf. á slóðinni www.vatt.is. VÉLABÁSINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Kínverskur rafknúinn sendibíll með allt að 340 kílómetra drægni Maxus Deliver 3. Myndir / HLJ Ágætis aðgengi í farangursrýmið. Bakkmyndavélin er ágæt, en linsan safnar fljótt á sig óhreinindum. Mér brá þegar ég opnaði „húddið“, engar lamir voru á vélarhlífinni. Rétt náði að grípa vélarhlífina áður en hún lenti í framrúðunni. Eftir fikt í öllum rafmagnstökkum komst ég að því að það var miðstöðin sem stytti akstursdrægnina mest. Miðað við rafmagnsbíl þá er hávað- inn nokkuð mikill, en umhverfis- hljóðin vega þar hæst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.