Bændablaðið - 19.11.2020, Síða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 202046
Það sem af er ári hefur sala á
rafknúnum bílum slegið met og
þá aðallega í sölu á fólksbílum til
einkanota, en frá áramótum hafa
verið seldir yfir 2.400 rafmagns
bílar (þar af um 800 Teslur). Fá
fyrirtæki eru að kaupa sendibíla,
en nokkuð er um að fyrirtæki eru
með smærri rafmagnsbíla fyrir
starfsmenn.
Í nokkur ár hafa verið fáanlegir
litlir sendibílar, en miðað við
innkaupsverð, drægni í rafhlöðu og
stærð bílanna hefur sala á þeim verið
frekar lítil. Nú er kominn á markað
kínverskur rafmagnsbíll sem ætti að
henta töluverðum hópi þeirra sem
nota sendibíla.
Maxus Deliver 3–122 hestafla
100% rafmagnssendibíll
Í Skeifunni 17 er fyrirtækið Vatt sem
selur rafmagnsvespur og rafmagns-
bíla (þar sem Suzuki mótorhjól voru
seld áður). Nýlega komu til landsins
fyrstu Maxus Deliver sendibílarnir
sem framleiddir eru í Kína. Þeir
koma í nokkrum stærðum (langir
og stuttir) og eru með 122 hestafla
rafmagnsvél, uppgefin drægni er á
bilinu 235-340 km (fer eftir stærð
rafhlöðu).
Bílarnir eru framhjóladrifnir,
sjálfskiptir á verði frá 5.280.000
upp í 6.280.000. Við fyrstu sýn eru
bílarnir ekki ósvipaðir að stærð og
sendibíllinn Reunault Trafic, sem
ég vinn á, og með það í huga fór
ég í tæplega 100 km prufuakstur á
bílnum.
Snerpan sérstaklega skemmtileg
fyrstu metrana af stað
Þó að íburður sé ekki mikill og
ef lítið er af aukabúnaði eins og
blindhornsvara, einnig að miðstöð
er ekki skemmtileg, það vantar hita
í stýri og sæti, þá er samt nokkuð
þægilegt að sitja í bílnum. Útsýni
er gott fram á við og hliðarspeglar
eru stórir og góðir.
Eins og með alla bíla sem ég
prófa þá hávaðamældi ég bílinn á
90 km hraða. Miðað við að þetta
er rafmagnsbíll þá eru 74,1 desibel
frekar í hærri kantinum. Einnig ef
tekið er tillit til þess að hann var
á sumardekkjum. Ástæðan virðist
vera að bíllinn er frekar lítið ein-
angraður enda veghljóð aðeins yfir
meðallagi.
Í innanbæjarakstri er bíllinn
skemmtilega snarpur, aðeins örfáar
sek. upp í 60 km hraða. Til saman-
burðar er bíllinn sem ég vinn á um
50 hestöflum kraftmeiri, en er lengur
að ná 60 úr kyrrstöðu.
Eftir innanbæjaraksturinn fór ég
út fyrir bæinn til að skoða drægni
(rafhlaðan var hálfhlaðin þegar ég
fékk bílinn). Neðst í Mosfellsdalnum
stoppaði ég og fiktaði í öllum tökk-
um til að skoða hvað væri annað en
mótorarnir sem gætu haft áhrif á
drægnina. Ekkert virtist hafa áhrif á
uppgefna drægni nema miðstöðin,
því þegar hún var sett á fór drægnin
úr 114 km í 102. Það er sambærilegt
við aðra rafmagnsbíla. Það að vera
með miðstöðina í gangi er mesti raf-
magnsþjófnaðurinn gagnvart drægni.
Ágætis fjöðrun, en fullmikið
smásteinahljóð undir bílnum á
möl
Hjólbarðarnir eru ekki sérlega stórir
(185/65/15) og gefa þar af leiðandi
ekki mikið eftir í holum, en fjöðrunin
á bílnum er ágæt. Á malarvegi er bíll-
inn aðeins laus að aftan (var að vísu
með algjörlega tóman bíl sem má
hlaða allt að 1000 kg). Smásteinarnir
sem komu frá hjólbörðunum gáfu
fullmikið „baukahljóð“ í lítið ein-
angraðan undirvagninn. Það gæti
hugsanlega breyst við að ryðverja
undirvagninn. Annars var fjöðrunin
furðu góð á malarveginum.
Eftir blautan og moldugan
malar veginn var bíllinn í meðallagi
skítugur, en af einhverjum orsökum
virtist mesti skíturinn fara á
bakkmyndavélaaugað svo að lítið
sást aftur fyrir þegar næst þurfti að
bakka.
Plúsar og mínusar
Stærsti plúsinn er fyrir mér að bíllinn
henti best til innanbæjaraksturs. Ef
gengið er út frá 30.000 km ársnotkun
ætti þessi rafmagnsbíll að vera
hagkvæmur í rekstri og fljótur að
borga sig upp, því mín reynsla er að
sambærilegir díselbílar eyða á bilinu
9-13 lítrum af eldsneyti á hundraðið
innanbæjar.
Mínusarnir eru nokkrir:
Erfitt að halda jöfnum hita inni í
„ökumannsrýminu“, annaðhvort var
of heitt eða kalt. Það vantar hitamæli
sem sýnir útihita. Þá þarf að muna
eftir að kveikja og slökkva ljós til
að fá löglegan ljósabúnað í akstri,
vantar varadekk.
Eitt er þó varasamt við bílinn. Ef
maður þarf að opna vélarhúsið þá eru
ekki neinar lamir á vélarhlífinni. Mér
dauðbrá þegar ég opnaði hana upp
í vindinn og „húddið“ fauk upp og
af bílnum, en mér rétt tókst í tæka
tíð að grípa það áður en það færi í
framrúðuna. Þetta er eitthvað sem
mætti huga að og setja einhvers
konar öryggisspotta eða vír svo að
þetta gerist ekki. Annars er hægt að
nálgast meiri upplýsingar um Maxus
sendibílana og væntanlegan 7 sæta
Maxus fjölskyldubílinn á vefsíðu
Vatt ehf. á slóðinni www.vatt.is.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Kínverskur rafknúinn sendibíll
með allt að 340 kílómetra drægni
Maxus Deliver 3. Myndir / HLJ
Ágætis aðgengi í farangursrýmið.
Bakkmyndavélin er ágæt, en linsan safnar fljótt á sig óhreinindum.
Mér brá þegar ég opnaði „húddið“, engar lamir voru á vélarhlífinni.
Rétt náði að grípa vélarhlífina áður en hún lenti í framrúðunni.
Eftir fikt í öllum rafmagnstökkum komst ég að því að það var miðstöðin sem
stytti akstursdrægnina mest.
Miðað við rafmagnsbíl þá er hávað-
inn nokkuð mikill, en umhverfis-
hljóðin vega þar hæst.