Bændablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 38

Bændablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 202038 MENNING&MINNINGAR BÆKUR& MENNING Presturinn og þjóðfræðingurinn Sigurður Ægisson hefur haft áhuga á fuglum frá því hann man eftir sér auk þess sem hann hefur lengi haft áhuga á sögu, þjóð- fræði og almennri náttúrufræði. Sig urður sendi nýlega frá sér bók sem heitir Íslensku fuglarnir og þjóðtrúin. Sigurður, sem er fæddur og uppalinn á Siglufirði og býr þar, segir að hann hafi unnið að þessu nýjasta ritverki sínu meira og minna í rúm 25 ár. „Í bókinni eru teknir til skoðunar allir íslensku, reglubundnu varpfuglarnir, 75 að tölu, auk fjögurra annarra tegunda eins og haftyrðils, hverafugls, keldusvíns, snæuglu, í hérlendri og erlendi þjóðtrú. Auk þess sem birt eru ljóð og annað forvitnilegt efni sem þeim tengist, þar á meðal ríflega 1.000 alþýðuheiti íslenskra fugla.“ Bústaður guðdómsins Í aðfaraorðum bókarinnar segir Sigurður að mannkynið hafi löngum dáðst að fuglunum og hæfileika þeirra að geta svifið vængjum þöndum um loftin blá og komist þannig nær ríki himnanna, þar sem guðdómurinn átti oftar en ekki að vera með bústað sinn. „Í vitund fólksins urðu þeir á einhverjum tímapunkti að sendiboðum úr efra, hálfheilagir eða þaðan af meira, og því bráðnauðsynlegt að geta ráðið í hverju þeir voru að reyna að koma til skila með kvaki sínu, flugi eða öðru atferli. Með tímanum varð úr þessu mikið og flókið kerfi og ekki á færi nema útvalinna, til dæmis presta eða samsvarandi, að lesa í táknmálið. Leifar þessa má greina í þjóð- trú fyrri alda, sem og nútímans. Ef hrafninn, til að mynda, kom úr þessari áttinni eða hinni, eða sat þarna og gargaði svona eða hinsegin, merkti það allt eitthvað sér- stakt og gerir enn í hugum margra, jafnt hér sem erlendis. S n e m m a tóku menn að leita skýringa á hinum ólíku mynstrum á búki fuglanna og um það varð í aldanna rás til aragrúi sagna. Oft réð litur hamsins einnig miklu til um hvaða dóm þeir fengu, hvaða augum þeir voru séðir. Þessu riti er ætlað að beina kastljósinu inn í þennan gamla og forvitnilega veruleika, án þess að koma með tilgátur um hvernig á þessu eða hinu standi, nema í einstaka tilviki.“ Hefur lagt sig eftir fuglaheitum „Árið 1995 fór ég að safna efni í fuglabók sem kom út ári síðar og fékk nafnið Ísfygla. Þar birtust meðal annars um 700 alþýðu- eða aukaheiti fuglanna okkar, ýmist tekin úr handritum, prentuðum bókum eða af tungu fróðra manna og kvenna, auk annars þjóðfræðiefnis. En sökum þess að hver og ein fuglategund hafði ekki nema eina opnu til ráðstöfunar, varð margt af slíku efni út undan. Ég fór því bráðlega að huga að útgáfu annarrar bókar, sem nú er loksins komin á þrykk, um 25 árum síðar, og þar sem bæst hafa við ríflega 300 aukaheiti fuglanna, auk margs annars. Ég hef ekki lagt mig eftir því að skilgreina hvar á landinu viðkomandi fuglaheiti tíðkuðust, það er líka annað mál og flóknara og þarfnast nánari rannsóknar.“ Ekki allt fallegt Sigurður segir að eins og gefi að skilja sé ekki allt fallegt sem við blasi í gímaldi árþúsundanna, en það er samt haft með að einhverju leyti, til að skekkja ekki heildarmyndina. „Annað væri sögufölsun, enda ósanngjarnt að nota siðferðilegan mælikvarða nútímans á það sem á öldum áður þótti eðlilegt og var stundað dagsdaglega og kinnroðalaust.“ Hann segir að sig langi að halda upplýsingaöfluninni áfram og þætti vænt um að fá upplýsingar um ef lesendur eiga í fórum sínum enn önnur heiti en þessi sem honum hefur tekist að grafa upp. Heimildir að baki þessum aukaheitum, sem hann varðveiti í gagnagrunni, séu ekki tíundaðar í bókinni því þær skipti hundruðum og myndu lengja hana töluvert. Viðmið Náttúrufræðistofnunar „Ég ákvað að nota viðmið Náttúru- fræðistofnunar Íslands þegar kom að því að velja hvaða tegundir yrði fjallað um, en þar á bæ er litið svo á að 75 verpi hér reglubundið. Við þá tölu bætti ég haftyrðli, keldusvíni og snæuglu og hinu séríslenska fyrir- bæri, hverafuglum. Annars hafa rúmlega 400 tegund- ir sést á landinu og einhverjar reynt varp og sumar þeirra munu eflaust innan fárra ára bætast á þennan opin- bera lista. Þar mætti nefna dvergmáf, eyruglu, fjallkjóa, fjöruspóa, gráþröst og skógarsnípu. Einnig hefði verið fróðlegt að leyfa geirfuglinum, sem og umferðarfarfuglum eins og bles- gæs, margæs, rauðbrysting, sanderlu og tildru, að fljóta með, en það verður að bíða aukinnar og endurskoðaðrar útgáfu á komandi árum. Íslensku fuglarnir eiga sér margir hverjir vetrarheimkynni erlendis. Bræður þeirra og systur er auk þess að finna víða um heim. Myndirnar í bókinni, útbreiðslukortin og þjóðtrú- arefnið eiga að undirstrika tengslin og þessa dreifingu.“ Bækur um náttúru- og guðfræði Sigurður er höfundur bókanna Ísfygla: íslenskir fuglar: aves Islandicæ , Íslenskir hvalir, fyrr og nú, Íslenskar kynjaskepnur, Hvalir, Icelandic trade with gyrfalcons: from medieval times to the modern era, Íslenska Biblían: ágrip rúm- lega fjögurra alda sögu, og Gústi: alþýðuhetjan, fiskimaðurinn og kristniboðinn. Auk þess ritstýrði hann Á sprekamó: afmælisrit til- einkað Helga Hallgrímssyni náttúr- fræðingi sjötugum, 11. júní 2005 og Örnólfsbók: afmælisrit tileinkað Örnólfi Thorlacius 75 ára. Sigurður hefur einnig skrifað fjölda greina í innlend og erlend tímarit. /VH Svifið á vængjum þöndum • Í Japan er maríuerlan elskuð og dáð, ekki síst meðal Ainu-fólksins. Þar er hún skapari lífsins, heilagur fugl. • Gömul sögn í Noregi er að hrafninn sé elsta dýr jarðarinnar. Hann klekur ekki út eggjunum sínum eins og aðrir fuglar gera, heldur leggur þau nærri beljandi fossi og vatnið sér um framhaldið. • Hér og þar í Mið-Evrópu er talið ólánsmerki ef brúðhjón sjá hrossa- gauká vígsludeginum. • Á Horni í Sléttuhreppi boðaði það rigningu, ef lómurinn stóð á öðrum- fæti og skrækti. • Egg haftyrðilsins er tiltölulega stórt miðað við fuglinn. Þegar stúlka- fæðist á Grænlandi er henni því gefin festi með þurrkuðum haftyrð- ilsfæti á, sem hún ber upp frá því. Á þetta að tryggja að hún eignist mannvænleg og heilbrigð börn er þar að kemur. • Þýski landfræðingurinn Sebastian Münster, sem uppi var á 16. öld,taldi að stormsvölurnar yxu á trjám í votlendi eða á sjávarströndum, enda fundust hreiðrin aldrei. • Í Færeyjum var seyði af arnarkló í eina tíð notað sem meðal við gulsótt. • Á Englandi sögðu grágæsir með atferli sínu hvernig veðrið yrði, þóbara í nánustu framtíð. Fólst kúnstin í að reyna að sjá út hvaða tölustaf þær mynduðu á hópflugi sínu; átti fólk þá jafn margar frostavikur í vændum, frá þeim degi að telja. • Í Danmörku, á miðsteinöld, um 9.600–4.000 árum f. Kr., voru andvana fædd börn lögð á álftarvængi til eilífrar hvíldar. • Írar halda því fram að tjaldurinn hafi í upphafi verið með sundfit, en að máfur hafi fengið þau lánuð og ekki viljað skila þeim. Hinn síðarnefndi er víst enn að hlæja sinni groddalegu röddu, þegar atvikið berst í tal, en þolandinn hleypur um í fjörunni segjandi öllum frá þessu óréttlæti klökkum rómi. • Úr Rúmeníu kemur sá fróðleikur, að iðrandi syndarar fljúgi eftir and- látið til himna í gervi snæuglu. Fuglamolar Í íslenskri heimild frá 18. öld segir að fuglinn halkíon verpi í bláhafi á ís og geri sér hreiður úr fiskbeinum á sjö dögum fyrir sólhvörf á vetri, þau eru nánar tiltekið 20.–23. desember, og liggi síðan á jafnmarga daga á eftir. Mynd eftir ítölsku listakonuna Elenu Panetta, gerð sérstaklega fyrir bókina. Sigurður Ægisson, prestur og þjóðfræðingur. Branduglan á Havaí, sem meðal innfæddra kallast 'pueo', er elskuð og dáð og virt, enda sögð heilagur fugl og í margra augum birting og holdgervingur forna verndarandans Aumakua. Henni fylgja bara góðir straumar. Til hennar er því iðulega leitað ef eitthvað bjátar á, til hjálpar og leiðsagnar. Hún getur svarað beint eða þá í draumi eða í sýn eða með einhverju öðru tákni. Akrýlmynd eftir þarlendu listakonuna Jessicu Taruni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.