Bændablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 29

Bændablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 2020 29 „Það er líka stundum frekar erfitt hér í kringum sauðburðinn þegar allt er á kafi í snjó, eins og til að mynda var síðastliðið vor. Hjá okkur fæddust rúmlega 1.300 lömb síðasta vor. Sauðburðurinn getur því verið býsna snúinn. Við fengum stórvirkar vinnuvélar hingað heim á liðnu vori til að moka snjó frá útihúsunum, en allt hefur nú blessast hjá okkur því Jóhannes er ekki öðru vanur, hann er útsjónarsamur og lætur sé hvergi bregða þó aðstæður séu ekki eins og best verður á kosið. Börnin okkar eru líka dugleg að aðstoða á álagstímum og eins munar verulega um framlag grænlensku krakkanna, þau eru mjög dugleg. Þrátt fyrir allt brasið í vor og að þetta liti ekki sérstaklega vel út skila lömbin sér ákaflega þung og falleg af fjalli. Við höfum í gegnum tíðina fengið fólk hvaðanæva að frá Evrópu til að aðstoða á álagstímum en grænlensku krakkarnir bera af þegar kemur að þátttöku í í sveitastörfunum,“ segir Hjördís. Hún bætir við að þó svo að jörðin sé snjóþung og krefjandi að mörgu leyti sé náttúrufegurð undir fjallgarði Tröllaskagans mikil og möguleikar á að stunda ferðaþjónustu árið um kring séu fyrir hendi. Ábúendur á Brúnastöðum hafa gróðursett yfir 70 þúsund plöntur í 32 hektara lands og segir Hjördís að trén rjúki upp þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Þá er risastór garður við bæinn, fullur af blómum en ræktun er hennar líf og yndi. Þá kveðst hún hafa mikla unun af því að vinna með börnum og þau hafi verið farsæl í starfi sem fósturforeldrar. Eins hafi ferðaþjónustan gengið vel. „Við erum ekki öðru vön en að takast á við krefjandi og skemmtileg verkefni. Lífið hefur verið okkur gjöfult.“ Námskeiðið fyrsta skrefið Þó svo að störfin heima á Brúna­ störfum séu marvísleg hafa þau Hjördís og Jóhannes nú bætt heimavinnslunni við sína starfsemi. Hún segir gleðilegt eftir langan feril að nú séu fyrstu afurðir að koma á markað. Upphafið má rekja til þess að þau hjón sóttu námskeiðið Matarsmiðjan, Beint frá býli sem Farskóli Norðurands vestra hélt á útmánuðum árið 2018 og segir Hjördís það hafa verið algjörlega frábært tækifæri, ekki síst vegna þess að þátttakendur höfðu mikið að segja um hvernig námskeiðið var þróað. „Við gátum svolítið stjórnað ferðinni, það var hlustað á allar okkar óskir og fyrirlesarar löguðu sig að okkar þörfum og markmiðum þannig að námskeiðið gagnaðist einkar vel. Þetta var mjög praktískt nám og það efldi mann mjög í því að taka skrefið og koma upp eigin aðstöðu,“ segir Hjördís. Margir þeirra sem hafa áhuga fyrir heimavinnslu eigin afurða og matarhandverki þurfi þó ekki að leggja út í þann kostnað sem Brúnastaðahjónin fóru út í. „Við erum svo lánsöm að á Skagaströnd er vottuð vinnsla, vöru­ smiðja sem rekin er af BioPol, og þangað inn komast allir þeir sem vilja þróa sína vöru og framleiðslu fyrir mjög hóflegt fé,“ segir hún. „En þegar verið er að vinna úr mjólk verð­ ur ferlið snúið svo við kusum að fara í þessar framkvæmdir hér heima.“ Hvorki einfalt né ódýrt ferli Framkvæmdir við matarsmiðjuna á Brúnastöðum hafa staðið yfir í hálft annað ár, en Hjördís segir ýmsar skýringar á þeim langa tíma. Vöntun var á iðnaðarmönnum um skeið, snjóþungur og erfiður vetur sem og kórónuveiran hafi sett sitt strik í reikninginn. „Þetta var hvorki einfalt ferli né ódýrt að fara út í þessar framkvæmdir. Kröfurnar er miklar, bæði hvað varðar húsnæði og einnig öll leyfi sem til þarf. En nú erum við komin með frábæra vinnuaðstöðu og getum dundað okkur við framleiðsluna fram á elliár ef lukkan leyfir,“ segir Hjördís. Aðstaðan er nú að verða tilbúin og þau komin með leyfi til framleiðslunnar í hendurnar, en það fékkst um miðjan júlí í sumar sem leið. Síðan þá hafa þau mjólkað um 35 geitur daglega. Mjólkin er fryst og og unnið úr henni í lotum. Stefnt er að því að fjölga í hópnum og hafa í það minnsta 50 mjólkandi geitur á bænum næsta sumar. Þá segir Hjördís að einnig standi til að mjólka ær í meira mæli til framtíðar litið. Brennur fyrir handverksostagerð Mjólkurfræðingurinn og osta­ gerðarmaðurinn Guðni Hannes Guðmundsson á Akureyri hefur verið þeim til aðstoðar, hann hannar ostana og kennir þeim rétta handbragðið. „Hann brennur fyrir hand­ verksostagerð og er alltaf boðinn og búinn að fórna helgarfríum til að aðstoða við ostavinnsluna,“ segir hún. „Við hefðum vart farið í þessa vegferð með ostagerð nema af því við erum svo ljónheppin að hann býr hér steinsnar frá okkur,“ segir Hjördís en Guðni Hannes hefur manna lengsta reynslu af handverksostagerð hér á landi. Fjórar tegundir í fyrstu Til að byrja með eru í boði fjórar tegundir af geitaosti, salatostur, eða feta sem kallaður er Fljóti, brie eða hvítmygluostur sem kallast Ísar, þá havartiostur sem heitir Knörr og loks ítalskættaður geitaostur sem kallaður er Brúnó. „Við munum svo halda áfram að gera tilraunir á nýjum ostategundum næsta sumar og þá bæði úr sauða­ og geitamjólk,“ segir Hjördís. „Og maður minn hvað þetta er spennandi og skemmtilegt fyrir matgæðinginn og eldhúsfíkilinn mig.“ Mildar alla daga Hjördís bætir við að það virðist henta geitunum einkar vel að spranga um undir fjallgarðinum, Guðni Hannes sé einstaklega ánægður með gæði mjólkurinnar sem bæði er próteinrík og feit og henti því afar vel til ostagerðar. Geiturnar á Brúnastöðum fá líka hrat frá bruggverksmiðjunni Segli á Siglufirði og eru fyrir vikið ef til vill eilítið mildar alla daga. Söluleyfið komið og ostar á markað „Við höfum aðeins verið að mjólka kindur líka og það verður spennandi að vinna með mjólkina úr þeim. Vonandi verður mun meira gert næsta sumar af því,“ segir hún en söluleyfi fyrir ostana er rétt nýkomið í hús þannig að undirbúningur að því að koma þeim á markað er í fullum gangi. „Við erum að skoða hvar ostarnir verði seldir, en þeir munu í það minnsta verða í boði á vegum BioPol sem hefur undanfarna mánuði verið á ferðinni með vörur smáframleiðenda um Norðurland vestra. Þetta er eins konar bændamarkaður á hjólum og fer á milli byggðalaga en einnig er verið að stofna netverslun. Vonandi getum við líka selt ostana fyrir sunnan. Fólk virðist vera spennt fyrir þeim þó við séum ekki farin að selja þá enn,“ segir Hjördís. Stefanía Hjördís Leifsdóttir og Jóhannes Ríkarðsson á Brúnastöðum með börnum sínum Ríkeyju Þöll, meistaranema í umhverfisstjórnmálum í Stokkhólmi, Kristni Knörr, nema í landfræði við HÍ, Ólafi Ísari, sem útskrifaðist frá MA síðasta vor og Leifi Hlé, sem er í 9. bekk. Ostavinnslan í fullum gangi hjá Guðna Hannesi. Salatosturinn Fljóti verðu seldur bæði í olíu með íslenskum kryddjurtum og líka vakúmpakkaður þannig að kaupendur geti sett hann í sinn eigin kryddlög. Geiturnar á Brúnastöðum fá líka hrat frá bruggverksmiðjunni Segli á Siglufirði og eru fyrir vikið ef til vill eilítið mildar alla daga. Mjólkurfræðingurinn og ostagerðar- maðurinn Guðni Hannes Guðmunds- son á Akureyri er einstaklega ánægð- ur með gæði geitamjólkurinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.