Bændablaðið - 19.11.2020, Side 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 2020 29
„Það er líka stundum frekar erfitt
hér í kringum sauðburðinn þegar
allt er á kafi í snjó, eins og til að
mynda var síðastliðið vor. Hjá okkur
fæddust rúmlega 1.300 lömb síðasta
vor. Sauðburðurinn getur því verið
býsna snúinn.
Við fengum stórvirkar vinnuvélar
hingað heim á liðnu vori til að
moka snjó frá útihúsunum, en allt
hefur nú blessast hjá okkur því
Jóhannes er ekki öðru vanur, hann
er útsjónarsamur og lætur sé hvergi
bregða þó aðstæður séu ekki eins
og best verður á kosið. Börnin
okkar eru líka dugleg að aðstoða á
álagstímum og eins munar verulega
um framlag grænlensku krakkanna,
þau eru mjög dugleg. Þrátt fyrir
allt brasið í vor og að þetta liti ekki
sérstaklega vel út skila lömbin sér
ákaflega þung og falleg af fjalli.
Við höfum í gegnum tíðina fengið
fólk hvaðanæva að frá Evrópu til að
aðstoða á álagstímum en grænlensku
krakkarnir bera af þegar kemur að
þátttöku í í sveitastörfunum,“ segir
Hjördís.
Hún bætir við að þó svo að jörðin
sé snjóþung og krefjandi að mörgu
leyti sé náttúrufegurð undir fjallgarði
Tröllaskagans mikil og möguleikar
á að stunda ferðaþjónustu árið um
kring séu fyrir hendi.
Ábúendur á Brúnastöðum hafa
gróðursett yfir 70 þúsund plöntur
í 32 hektara lands og segir Hjördís
að trén rjúki upp þrátt fyrir erfiðar
aðstæður. Þá er risastór garður við
bæinn, fullur af blómum en ræktun
er hennar líf og yndi. Þá kveðst hún
hafa mikla unun af því að vinna með
börnum og þau hafi verið farsæl í
starfi sem fósturforeldrar. Eins hafi
ferðaþjónustan gengið vel.
„Við erum ekki öðru vön en að
takast á við krefjandi og skemmtileg
verkefni. Lífið hefur verið okkur
gjöfult.“
Námskeiðið fyrsta skrefið
Þó svo að störfin heima á Brúna
störfum séu marvísleg hafa þau
Hjördís og Jóhannes nú bætt
heimavinnslunni við sína starfsemi.
Hún segir gleðilegt eftir langan feril
að nú séu fyrstu afurðir að koma
á markað. Upphafið má rekja til
þess að þau hjón sóttu námskeiðið
Matarsmiðjan, Beint frá býli sem
Farskóli Norðurands vestra hélt
á útmánuðum árið 2018 og segir
Hjördís það hafa verið algjörlega
frábært tækifæri, ekki síst vegna
þess að þátttakendur höfðu mikið
að segja um hvernig námskeiðið
var þróað.
„Við gátum svolítið stjórnað
ferðinni, það var hlustað á allar
okkar óskir og fyrirlesarar löguðu
sig að okkar þörfum og markmiðum
þannig að námskeiðið gagnaðist
einkar vel. Þetta var mjög praktískt
nám og það efldi mann mjög í því
að taka skrefið og koma upp eigin
aðstöðu,“ segir Hjördís.
Margir þeirra sem hafa áhuga
fyrir heimavinnslu eigin afurða
og matarhandverki þurfi þó ekki
að leggja út í þann kostnað sem
Brúnastaðahjónin fóru út í.
„Við erum svo lánsöm að á
Skagaströnd er vottuð vinnsla, vöru
smiðja sem rekin er af BioPol, og
þangað inn komast allir þeir sem
vilja þróa sína vöru og framleiðslu
fyrir mjög hóflegt fé,“ segir hún. „En
þegar verið er að vinna úr mjólk verð
ur ferlið snúið svo við kusum að fara
í þessar framkvæmdir hér heima.“
Hvorki einfalt né ódýrt ferli
Framkvæmdir við matarsmiðjuna
á Brúnastöðum hafa staðið yfir
í hálft annað ár, en Hjördís segir
ýmsar skýringar á þeim langa tíma.
Vöntun var á iðnaðarmönnum um
skeið, snjóþungur og erfiður vetur
sem og kórónuveiran hafi sett sitt
strik í reikninginn.
„Þetta var hvorki einfalt
ferli né ódýrt að fara út í þessar
framkvæmdir. Kröfurnar er miklar,
bæði hvað varðar húsnæði og einnig
öll leyfi sem til þarf. En nú erum við
komin með frábæra vinnuaðstöðu
og getum dundað okkur við
framleiðsluna fram á elliár ef
lukkan leyfir,“ segir Hjördís.
Aðstaðan er nú að verða
tilbúin og þau komin með leyfi til
framleiðslunnar í hendurnar, en það
fékkst um miðjan júlí í sumar sem
leið. Síðan þá hafa þau mjólkað
um 35 geitur daglega. Mjólkin er
fryst og og unnið úr henni í lotum.
Stefnt er að því að fjölga í hópnum
og hafa í það minnsta 50 mjólkandi
geitur á bænum næsta sumar. Þá
segir Hjördís að einnig standi til að
mjólka ær í meira mæli til framtíðar
litið.
Brennur fyrir handverksostagerð
Mjólkurfræðingurinn og osta
gerðarmaðurinn Guðni Hannes
Guðmundsson á Akureyri hefur verið
þeim til aðstoðar, hann hannar ostana
og kennir þeim rétta handbragðið.
„Hann brennur fyrir hand
verksostagerð og er alltaf boðinn
og búinn að fórna helgarfríum til að
aðstoða við ostavinnsluna,“ segir
hún. „Við hefðum vart farið í þessa
vegferð með ostagerð nema af því við
erum svo ljónheppin að hann býr hér
steinsnar frá okkur,“ segir Hjördís en
Guðni Hannes hefur manna lengsta
reynslu af handverksostagerð hér á
landi.
Fjórar tegundir í fyrstu
Til að byrja með eru í boði fjórar
tegundir af geitaosti, salatostur, eða
feta sem kallaður er Fljóti, brie eða
hvítmygluostur sem kallast Ísar, þá
havartiostur sem heitir Knörr og loks
ítalskættaður geitaostur sem kallaður
er Brúnó.
„Við munum svo halda áfram að
gera tilraunir á nýjum ostategundum
næsta sumar og þá bæði úr sauða
og geitamjólk,“ segir Hjördís. „Og
maður minn hvað þetta er spennandi
og skemmtilegt fyrir matgæðinginn
og eldhúsfíkilinn mig.“
Mildar alla daga
Hjördís bætir við að það virðist henta
geitunum einkar vel að spranga um
undir fjallgarðinum, Guðni Hannes
sé einstaklega ánægður með gæði
mjólkurinnar sem bæði er próteinrík
og feit og henti því afar vel til
ostagerðar. Geiturnar á Brúnastöðum
fá líka hrat frá bruggverksmiðjunni
Segli á Siglufirði og eru fyrir vikið ef
til vill eilítið mildar alla daga.
Söluleyfið komið
og ostar á markað
„Við höfum aðeins verið að mjólka
kindur líka og það verður spennandi
að vinna með mjólkina úr þeim.
Vonandi verður mun meira gert
næsta sumar af því,“ segir hún en
söluleyfi fyrir ostana er rétt nýkomið
í hús þannig að undirbúningur að því
að koma þeim á markað er í fullum
gangi.
„Við erum að skoða hvar ostarnir
verði seldir, en þeir munu í það
minnsta verða í boði á vegum BioPol
sem hefur undanfarna mánuði verið á
ferðinni með vörur smáframleiðenda
um Norðurland vestra. Þetta er eins
konar bændamarkaður á hjólum og
fer á milli byggðalaga en einnig er
verið að stofna netverslun. Vonandi
getum við líka selt ostana fyrir
sunnan. Fólk virðist vera spennt fyrir
þeim þó við séum ekki farin að selja
þá enn,“ segir Hjördís.
Stefanía Hjördís Leifsdóttir og Jóhannes Ríkarðsson á Brúnastöðum með börnum sínum Ríkeyju Þöll, meistaranema
í umhverfisstjórnmálum í Stokkhólmi, Kristni Knörr, nema í landfræði við HÍ, Ólafi Ísari, sem útskrifaðist frá MA
síðasta vor og Leifi Hlé, sem er í 9. bekk.
Ostavinnslan í fullum gangi hjá Guðna Hannesi.
Salatosturinn Fljóti verðu seldur bæði í olíu með íslenskum kryddjurtum og líka vakúmpakkaður þannig að kaupendur
geti sett hann í sinn eigin kryddlög.
Geiturnar á Brúnastöðum fá líka hrat frá bruggverksmiðjunni Segli á Siglufirði
og eru fyrir vikið ef til vill eilítið mildar alla daga.
Mjólkurfræðingurinn og ostagerðar-
maðurinn Guðni Hannes Guðmunds-
son á Akureyri er einstaklega ánægð-
ur með gæði geitamjólkurinnar.