Bændablaðið - 19.11.2020, Page 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 202038
MENNING&MINNINGAR
BÆKUR& MENNING
Presturinn og þjóðfræðingurinn
Sigurður Ægisson hefur haft
áhuga á fuglum frá því hann man
eftir sér auk þess sem hann hefur
lengi haft áhuga á sögu, þjóð-
fræði og almennri náttúrufræði.
Sig urður sendi nýlega frá sér bók
sem heitir Íslensku fuglarnir og
þjóðtrúin.
Sigurður, sem er fæddur og
uppalinn á Siglufirði og býr þar,
segir að hann hafi unnið að þessu
nýjasta ritverki sínu meira og minna
í rúm 25 ár. „Í bókinni eru teknir til
skoðunar allir íslensku, reglubundnu
varpfuglarnir, 75 að tölu, auk
fjögurra annarra tegunda eins og
haftyrðils, hverafugls, keldusvíns,
snæuglu, í hérlendri og erlendi
þjóðtrú. Auk þess sem birt eru ljóð
og annað forvitnilegt efni sem þeim
tengist, þar á meðal ríflega 1.000
alþýðuheiti íslenskra fugla.“
Bústaður guðdómsins
Í aðfaraorðum bókarinnar segir
Sigurður að mannkynið hafi löngum
dáðst að fuglunum og hæfileika
þeirra að geta svifið vængjum
þöndum um loftin blá og komist
þannig nær ríki himnanna, þar sem
guðdómurinn átti oftar en ekki að
vera með bústað sinn.
„Í vitund fólksins urðu þeir
á einhverjum tímapunkti að
sendiboðum úr efra, hálfheilagir
eða þaðan af meira, og því
bráðnauðsynlegt að geta ráðið í
hverju þeir voru að reyna að koma til
skila með kvaki sínu, flugi eða öðru
atferli. Með tímanum varð úr þessu
mikið og flókið kerfi og ekki á færi
nema útvalinna, til dæmis presta eða
samsvarandi, að lesa í táknmálið.
Leifar þessa má greina í þjóð-
trú fyrri alda, sem og nútímans.
Ef hrafninn, til að mynda, kom
úr þessari áttinni eða hinni, eða
sat þarna og
gargaði svona
eða hinsegin,
merkti það allt
eitthvað sér-
stakt og gerir
enn í hugum
margra, jafnt
hér sem
erlendis.
S n e m m a
tóku menn að
leita skýringa
á hinum ólíku
mynstrum á
búki fuglanna
og um það varð
í aldanna rás til
aragrúi sagna.
Oft réð litur
hamsins einnig
miklu til um
hvaða dóm þeir
fengu, hvaða
augum þeir voru séðir.
Þessu riti er ætlað að beina
kastljósinu inn í þennan gamla
og forvitnilega veruleika, án þess
að koma með tilgátur um hvernig
á þessu eða hinu standi, nema í
einstaka tilviki.“
Hefur lagt sig eftir fuglaheitum
„Árið 1995 fór ég að safna efni í
fuglabók sem kom út ári síðar og
fékk nafnið Ísfygla. Þar birtust
meðal annars um 700 alþýðu- eða
aukaheiti fuglanna okkar, ýmist
tekin úr handritum, prentuðum
bókum eða af tungu fróðra manna og
kvenna, auk annars þjóðfræðiefnis.
En sökum þess að hver og ein
fuglategund hafði ekki nema eina
opnu til ráðstöfunar, varð margt
af slíku efni út undan. Ég fór því
bráðlega að huga að útgáfu annarrar
bókar, sem nú er loksins komin á
þrykk, um 25 árum síðar, og þar sem
bæst hafa við ríflega 300 aukaheiti
fuglanna, auk margs annars. Ég hef
ekki lagt mig eftir því að skilgreina
hvar á landinu viðkomandi fuglaheiti
tíðkuðust, það er líka annað mál
og flóknara og þarfnast nánari
rannsóknar.“
Ekki allt fallegt
Sigurður segir að eins og gefi að
skilja sé ekki allt fallegt sem við
blasi í gímaldi árþúsundanna, en það
er samt haft með að einhverju leyti,
til að skekkja ekki heildarmyndina.
„Annað væri sögufölsun, enda
ósanngjarnt að nota siðferðilegan
mælikvarða nútímans á það
sem á öldum áður þótti eðlilegt
og var stundað dagsdaglega og
kinnroðalaust.“
Hann segir að sig langi að halda
upplýsingaöfluninni áfram og þætti
vænt um að fá upplýsingar um ef
lesendur eiga í fórum sínum enn
önnur heiti en þessi sem honum
hefur tekist að grafa upp. Heimildir
að baki þessum aukaheitum, sem
hann varðveiti í gagnagrunni, séu
ekki tíundaðar í bókinni því þær
skipti hundruðum og myndu lengja
hana töluvert.
Viðmið Náttúrufræðistofnunar
„Ég ákvað að nota viðmið Náttúru-
fræðistofnunar Íslands þegar kom
að því að velja hvaða tegundir yrði
fjallað um, en þar á bæ er litið svo á
að 75 verpi hér reglubundið. Við þá
tölu bætti ég haftyrðli, keldusvíni og
snæuglu og hinu séríslenska fyrir-
bæri, hverafuglum.
Annars hafa rúmlega 400 tegund-
ir sést á landinu og einhverjar reynt
varp og sumar þeirra munu eflaust
innan fárra ára bætast á þennan opin-
bera lista. Þar mætti nefna dvergmáf,
eyruglu, fjallkjóa, fjöruspóa, gráþröst
og skógarsnípu. Einnig hefði verið
fróðlegt að leyfa geirfuglinum, sem
og umferðarfarfuglum eins og bles-
gæs, margæs, rauðbrysting, sanderlu
og tildru, að fljóta með, en það verður
að bíða aukinnar og endurskoðaðrar
útgáfu á komandi árum.
Íslensku fuglarnir eiga sér margir
hverjir vetrarheimkynni erlendis.
Bræður þeirra og systur er auk þess
að finna víða um heim. Myndirnar í
bókinni, útbreiðslukortin og þjóðtrú-
arefnið eiga að undirstrika tengslin
og þessa dreifingu.“
Bækur um náttúru- og guðfræði
Sigurður er höfundur bókanna
Ísfygla: íslenskir fuglar: aves
Islandicæ , Íslenskir hvalir, fyrr og
nú, Íslenskar kynjaskepnur, Hvalir,
Icelandic trade with gyrfalcons:
from medieval times to the modern
era, Íslenska Biblían: ágrip rúm-
lega fjögurra alda sögu, og Gústi:
alþýðuhetjan, fiskimaðurinn og
kristniboðinn. Auk þess ritstýrði
hann Á sprekamó: afmælisrit til-
einkað Helga Hallgrímssyni náttúr-
fræðingi sjötugum, 11. júní 2005
og Örnólfsbók: afmælisrit tileinkað
Örnólfi Thorlacius 75 ára. Sigurður
hefur einnig skrifað fjölda greina í
innlend og erlend tímarit. /VH
Svifið á vængjum þöndum
• Í Japan er maríuerlan elskuð og dáð, ekki síst meðal Ainu-fólksins.
Þar er hún skapari lífsins, heilagur fugl.
• Gömul sögn í Noregi er að hrafninn sé elsta dýr jarðarinnar. Hann klekur
ekki út eggjunum sínum eins og aðrir fuglar gera, heldur leggur þau
nærri beljandi fossi og vatnið sér um framhaldið.
• Hér og þar í Mið-Evrópu er talið ólánsmerki ef brúðhjón sjá hrossa-
gauká vígsludeginum.
• Á Horni í Sléttuhreppi boðaði það rigningu, ef lómurinn stóð á öðrum-
fæti og skrækti.
• Egg haftyrðilsins er tiltölulega stórt miðað við fuglinn. Þegar stúlka-
fæðist á Grænlandi er henni því gefin festi með þurrkuðum haftyrð-
ilsfæti á, sem hún ber upp frá því. Á þetta að tryggja að hún eignist
mannvænleg og heilbrigð börn er þar að kemur.
• Þýski landfræðingurinn Sebastian Münster, sem uppi var á 16. öld,taldi
að stormsvölurnar yxu á trjám í votlendi eða á sjávarströndum, enda
fundust hreiðrin aldrei.
• Í Færeyjum var seyði af arnarkló í eina tíð notað sem meðal við gulsótt.
• Á Englandi sögðu grágæsir með atferli sínu hvernig veðrið yrði, þóbara
í nánustu framtíð. Fólst kúnstin í að reyna að sjá út hvaða tölustaf
þær mynduðu á hópflugi sínu; átti fólk þá jafn margar frostavikur í
vændum, frá þeim degi að telja.
• Í Danmörku, á miðsteinöld, um 9.600–4.000 árum f. Kr., voru andvana
fædd börn lögð á álftarvængi til eilífrar hvíldar.
• Írar halda því fram að tjaldurinn hafi í upphafi verið með sundfit, en að
máfur hafi fengið þau lánuð og ekki viljað skila þeim. Hinn síðarnefndi
er víst enn að hlæja sinni groddalegu röddu, þegar atvikið berst í tal,
en þolandinn hleypur um í fjörunni segjandi öllum frá þessu óréttlæti
klökkum rómi.
• Úr Rúmeníu kemur sá fróðleikur, að iðrandi syndarar fljúgi eftir and-
látið til himna í gervi snæuglu.
Fuglamolar
Í íslenskri heimild frá 18. öld segir að fuglinn halkíon verpi í bláhafi á ís og
geri sér hreiður úr fiskbeinum á sjö dögum fyrir sólhvörf á vetri, þau eru
nánar tiltekið 20.–23. desember, og liggi síðan á jafnmarga daga á eftir.
Mynd eftir ítölsku listakonuna Elenu Panetta, gerð sérstaklega fyrir bókina.
Sigurður Ægisson, prestur og þjóðfræðingur.
Branduglan á Havaí, sem meðal innfæddra kallast 'pueo', er elskuð og dáð
og virt, enda sögð heilagur fugl og í margra augum birting og holdgervingur
forna verndarandans Aumakua. Henni fylgja bara góðir straumar. Til hennar
er því iðulega leitað ef eitthvað bjátar á, til hjálpar og leiðsagnar. Hún
getur svarað beint eða þá í draumi eða í sýn eða með einhverju öðru tákni.
Akrýlmynd eftir þarlendu listakonuna Jessicu Taruni.