Bændablaðið - 19.11.2020, Qupperneq 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 20202
Mikil óvissa ríkir um áframhald
loðdýraeldis í Danmörku og
núverandi eigendur uppboðs
hússins Köbenhagen fur hafa
lýst því yfir að þeir munu hætta
starfsemi í lok ársins 2023. Hvað
tekur þá við veit enginn en einn af
möguleikunum er að nýir eigend
ur eignist uppboðshúsið og reki
það áfram en þá væntanlega á
breyttum forsendum. Líklegt er
að verð á skinnum muni hækka
vegna minnkandi framboðs.
Einar Eðvald Einarsson, bóndi að
Skörðugili og formaður Sambands
íslenskra loðdýrabænda, segir erfitt
að átta sig á ástandinu hvað varðar
loðdýraeldi í Danmörku.
„Ferli stjórnvalda í Danmörku
hvað varðar áframhaldandi loð
dýraeldi í landinu er búið að vera
tóm vitleysa. Í fyrstu fyrirskipa
stjórnvöld loðdýrabændum að lóga
öllum minkum í landinu vegna
hættu á að dýrin geti verið smitberar
á stökkbreyttri gerð af COVID19.
Tilskipunin var gefin út á blaða
mannafundi og bændum gefinn
frestur til 16. nóvember til að aflífa
dýrin og þeim sem gerðu það lofað
20 krónum dönskum í uppbót ofan
á aðrar bætur sem áttu að fylgja
niðurskurðinum. Á fundinum var
loðdýrabændum hreinlega hótað að
ef þeir færu ekki að þessum tilmæl
um um að slátra dýrunum fyrir 16.
nóvember þá mundi hið opinbera
skerast í leikinn og herinn jafnvel
settur í verkið og að allar bætur
mundu falla niður.“
Unnu dag og nótt
Einar segir að þetta hafi gert það
að verkum að bændurnir unnu dag
og nótt á vöktum og á fullum krafti
meðan þeir höfðu þrek til við að
lóga dýrunum.
„Það óraði engan fyrir því á þeim
tímapunkti að ákvörðun stjórnvalda
væri ólögleg. Þegar það kom í ljós
voru menn komnir mislangt með að
lóga dýrununum en það langt að það
var ekki aftur snúið.
Mér vitandi er alveg óljóst hve
mörg dýr eru eftir í dag en mörg
hundruð bú standa orðið tóm.
Einhverjir neita samt að pelsa líf
dýrastofninn og eru það sérstaklega
bændur sem eru á hreinu svæðun
um þar sem enginn bú hafa fallið.
Framhaldið er óljóst en það er samt
ljóst að búið er að eyðileggja grein
ina sem þá atvinnugrein sem hún
var. Hvað hægt verður að byggja
upp, hvernig hvort og hvenær verður
að koma í ljós en þeir bændur sem
nú þegar eru búnir að lýsa því yfir
að þeir byrji aftur gera ráð fyrir að
taka dýr í lok árs 2022.
Köbenhagen Fur lokað
„Núverandi eigendur uppboðs
hússins Köbenhagen Fur, sem
Íslendingar hafa verið í miklum
viðskiptum við, hafa gefið út að
þeir muni hætta rekstri á árinu 2023.
Uppboð verða með venjulegum
hætti 2021, 2022 og svo er stefnt að
einu eða tveimur uppboðum 2023.
Hvað gerist þá veit enginn.
Hugsanlega verður starfsemin seld
og aðrir taka við rekstrinum og halda
áfram að halda uppboð. Við vitum
það ekki enn.“
Að sögn Einars er mjög slæmt
fyrir Íslendinga að missa öll þau góðu
sambönd sem tengjast meðal annars
núverandi rekstri Köbenhagen Fur
ásamt öllum þeim sem við höfum
getað leitað til varðandi ráðgjöf og
leiðbeiningar. Það er uppboðshús
í Finnlandi sem við getum farið í
viðskipti við en persónulega á ég
von á að það verði áfram starfsemi í
Kaupmannahöfn þrátt fyrri að núver
andi eigendur hætti starfsemi.“
Skinnaverð mun hækka
„Varðandi stöðuna á markaði þá er
allt sem bendir til þess að skinnaverð
muni hækka umtalsvert á komandi
sölutímabili og nú þegar er talað
um að þau hafi hækkað verulega
í viðskiptum manna á milli til
dæmis í Kína. Framboðið á næsta
sölutímabili verður líka mun minna
en áætlað var þar sem um helmingur
af því sem drepið er í Danmörku
er urðað án þess að nýta pelsinn. Á
árinu 2022 verður svo framboðið
enn þá minna og ljóst að það verður
lengi að stíga árin þar á eftir,“ sagði
Einar. /VH
FRÉTTIR
Mikill samdráttur hefur orðið
í framleiðslu á kindakjöti frá
1983 samkvæmt tölum Hagstofu
Íslands. Þannig er framleiðslan á
yfir standandi ári 2.750 tonnum
minni en fyrir 35 árum, árið 1985,
og 3.514 tonnum minni en hún var
1983 sem yfirlit Hagstofu íslands
nær til. Hefur framleiðslan verið
í niðursveiflu frá 2017 eftir 20 ára
stíganda þar á undan, eða frá því
botninum var síðast náð 1997.
Sauðfjárslátrun er nú lokið á
landinu og alls var slátrað samkvæmt
fyrirliggjandi tölum 49.237 af full
orðnu sauðfé og 485.245 dilkum, eða
samtals 534.482. Heildarfallþyngd
alls sauðfjárins var rúm 9.465 tonn,
en meðalþyngd dilka var 16,91 kg
sem er met. Er þetta 124 tonnum
minni heildarframleiðsla á kinda
kjöti en árið 2019. Inn í þessar tölur
vantar kjöt af fé sem slátrað hefur
verið en hefur ekki staðist mat af
einhverjum orsökum og því flokkað
sem úrkast. Þar er um að ræða 715
dilka og 1.538 fullorðið fé.
Mikil niðursveifla frá 1983 til
1997 og aftur frá 2017
Samkvæmt tölu Hagstofu Íslands
nam kindakjötsframleiðslan 12.979
tonnum árið 1983 og dróst stöðugt
saman fram til 1997 þegar hún var
komin niður í 7.903 tonn. Þá tók
sauðfjárræktin aftur kipp og fram
leiðslan jókst í 9.735 tonn árið 2000
þegar fé var talsvert fækkað. Árið
eftir (2001) voru framleidd 8.616
tonn og síðan var rólegur stígandi
í framleiðslunni allt til ársins 2017
þegar kindakjötsframleiðslan var
komin í 10. 619 tonn. Að öðru leyti
var nokkuð jafn stígandi þar til aftur
fór að dragast saman, eða í 10.487
tonn árið 2018, 9.598 tonn árið 2019
og nú eð framleiðslan komin niður
í 9.465 tonn, sem er 3.514 tonnum
minni framleiðsla en 1983.
Flestu fé var slátrað hjá SS
Samkvæmt samantekt á tölum
frá 12. nóvember var mest slátrað
hjá Sláturfélagi Suðurlands, eða
107.532. Kaupfélag Skagfirðinga
kom næst með 102.906 og
Sláturfélag KVH ehf. var í þriðja
sæti með 96.746. Þá kom Sláturhús
Norðlenska ehf. í fjórða sæti með
89.111 og SAH Afurðir ehf. voru í
fimmta sæti með 79.746 fjár.
Í sjötta til tíunda sæti voru;
Sláturfélag Vopnfirðinga ehf.
með 29.700, Fjallalamb ehf. með
27.839 fjár, Sláturfélag Vestur lands
með 795, Seglbúðir með 384 og
Sláturfélagið Búi ehf. en þar var
slátrað 374 sauðkindum. /HKr.
Mikill samdráttur í sauðfjárrækt frá 1983–2001 og aftur niðursveifla frá 2017 í kjölfar stíganda áranna þar á undan:
Framleiðslan úr haustslátrun 2020 er
um fjórðungi minni en fyrir 37 árum
Dilkar Samtals Samtals
Sláturleyfishafi stk. kg. Meðalvigt stk. kg. stk. kg.
Sláturfélag Suðurlands svf. 97.342 1.608.366 16,52 kg 10.190 251.040 107.532 1.859.406
Sláturfélag Vesturlands 625 10.781 17,25 kg 170 4.710 795 15.491
Sláturhús KVH ehf. 88.285 1.537.928 17,42 kg 8.461 220.200 96.746 1.758.128
SAH Afurðir ehf. 72.144 1.215.503 16,85 kg 6.951 182.497 79.095 1.398.000
Kaupfélag Skagfirðinga 93.957 1.590.141 16,92 kg 8.949 229.443 102.906 1.819.584
Sláturhús Norðlenska ehf. 80.435 1.366.515 16,99 kg 8.676 223.729 89.111 1.590.244
Sláturfélag Vopnfirðinga ehf. 27.201 450.439 16,56 kg 2.499 62.754 29.700 513.193
Fjallalamb hf. 24.697 418.011 16,93 kg 3.142 77.859 27.839 495.870
Sláturfélagið Búi svf. 250 4.395 17,58 kg 124 3.167 374 7.562
Seglbúðir 309 5.632 18,23 kg 75 2.062 384 7.694
Samtals 485.245 8.207.711 16,91 kg 49.237 1.257.461 534.482 9.465.172
*Samkvæmt fyrirliggjandi bráðabirgðatölum 12. nóvember
Heimildir: Sláturleyfishafar og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
Sauðfjárslátrun eftir sláturleyfishöfum 2020, fjöldi og magn*
Sauðfé, dilkar Sauðfé, fullorðið
Óvissa um framtíð loðdýraeldis í Danmörku
og uppboðshússins Köbenhagen fur
– Mjög slæmt fyrir Íslendinga að missa öll þau góðu sambönd, segir formaður Sambands íslenskra loðdýrabænda
V arðandi stöðuna á markaði þá er allt sem bendir til þess
að skinnaverð muni hækka
umtalsvert á komandi sölu-
tímabili og nú þegar er talað
um að þau hafi hækkað veru-
lega í viðskiptum manna á milli
til dæmis í Kína. Framboðið á
næsta sölutímabili verður líka
mun minna en áætlað var þar
sem um helmingur af því sem
drepið er í Danmörku er urðað
án þess að nýta pelsinn. Í síðustu viku hafa verið rakin
200 kórónuveirusmit í mann
fólk út frá sex minkabúum í
Danmörku. Ekki er upplýst
hvar í Danmörku viðkomandi
minkabú eru.
Faglegur framkvæmdastjóri
Statens Serum Institut í
Danmörku, Kåre Mølbak, segir
að þegar hugað er að áhættu
þáttum fyrir því að smitast af
kórónavírusnum, sé hættulegra
að starfa við loðdýrabúskap en
í heilbrigðisþjónustu. Nú þegar
hafa uppgötvast smit á 283 loð
dýrabúum í Danmörku, sem
er einn fjórði hluti slíkra búa í
landinu. Búið er að aflífa minka
á 265 búum til þessa. Þar að auki
er grunur um smit á 22 búum til
viðbótar.
Á þriðjudag sagði Mogens
Jensen af sér sem landbúnað
arráðherra Danmerkur eftir að
hafa sætt mikilli gagnrýni vegan
þessa máls. /ehg - Bondebladet
Aflífað á 265 búum til þessa
Einar Eðvald Einarsson. Uppboðshúsið Köbenhagen Fur í Danmörku hefur öðlast sess sem virtasta uppboðshús í skinnaiðnaði í heimin-
um. Þar hefur safnast upp mikil þekking og fagmennska í gegnum tíðina og ljóst að það mun hafa veruleg áhrif á
skinnaiðnaðinn ef það hættir starfsemi. Myndir / HKr.
Kínverskur skinnakaupandi að gæðameta minkaskinn hjá Köbenhagen Fur.
fyrir nokkrum árum þegar skinnaverð var í hæstu hæðum.