Bændablaðið - 19.11.2020, Side 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 202012
FRÉTTIR
Eyjólfur Pétur Pálmason, forstjóri Vélfangs. Mynd / TB
Vélfang er „Framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo“ árið 2020:
Þrátt fyrir COVID-19 verður árið líklega
metár í sölu á jarð- og heyvinnutækjum
Eyjólfur Pétur Pálmason for-
stjóri Vélfangs segir að þrátt fyrir
COVID-19 faraldursins þurfi
bændur að vinna sín verk til að
halda framleiðslu landbúnaðar-
afurða gangandi. Það þýði um
leiða að birgjar sem útvegi bænd-
um dráttarvélar, heyvinnslutæki
og annan búnað þurfi líka að
standa sig í að sinna allri þjónustu
í kringum það.
„Við höfum nokkuð getað haldið
okkar striki varðandi tækjasölu og
þjónustu við landbúnaðinn, en það
hefur verið aðeins minna að gera í
þjónustu við verktakabransann. Þrátt
fyrir allt sýnist mér að þetta verði
metár í sölu á jarð- og heyvinnu-
tækjum,“ segir Eyjólfur.
Hann segir að fréttir af öllum
þessum lokunum á ýmsum sviðum
hafi þó auðvitað valdið því að ein-
hverjir hafi þurft að draga úr sinni
starfsemi. Eigi að síður sé útkoman
í heildina ákveðin varnarsigur.
„Það hefur aðeins dregið úr bjart-
sýninni og þá bíða menn það af sér.
Annars er það helst íslenska krónan
sem hefur svolítið verið að stríða
okkur og öll innkaup verða dýrari.
Bændur geta þó ekki beðið enda-
laust og það þarf alltaf að endurnýja
búnað.“
Með JCB, CLAAS, Fendt, Kuhn,
Schäffer og Kverneland
Vélfang er sölu- og þjónustuaðili
á vélum fyrir verktaka, bændur,
sveitarfélög, sjávarútveg, fyrirtæki
og stofnanir. Helstu vörumerki
Vélfangs eru JCB, CLAAS, Fendt,
Kuhn, Schäffer og Kverneland.
Komu Schäffer liðléttingarnir til
þeirra fyrr á þessu ári. Vélfang rekur
síðan starfsstöðvar bæði í Reykjavík
og á Akureyri.
„Við erum líka stórir í sölu á
haugsugum, skítadreifurum, haug-
hrærum og öllu sem því fylgir.
Snemma tókum við þó þann pól
í hæðina að skilgreina okkur sem
sölu- og þjónustuaðila í vélum og
tækjum fyrir landbúnað og verk-
taka. Hins vegar höfum við ekki
farið út í að selja rekstrarvörur fyrir
landbúnaðinn, eins og rúlluplast,
net, áburð, rafmagnsgirðingar og
fleira.“
Fjárfestu í nýju húsnæði á
Akureyri
„Þá sýndum við okkar skuldbindingu
við þennan markað með mjög
stórri fjárfestingu í nýju húsnæði á
Óseyrinni á Akureyri fyrr á þessu
ári. Þangað fluttum við alla okkar
starfsemi fyrir norðan. Þar rekum
við tækjasölu og verkstæði með
5-6 starfsmönnum. Við teljum
að þetta sé rétta leiðin til að bæta
þjónustuna og auka sýnileika okkar
á þessu svæði. Þannig rekum við
öfluga þjónustu sjálfir á tveim
stöðum á landinu. Svo nýtum við
okkur verkstæði heimamanna á
öðrum stöðum og viljum treysta
það samstarf þannig að heimamenn
á hverjum stað geti þjónustað okkar
vélar. Það er mun hagkvæmara, bæði
fyrir okkur og viðskiptavinina, en
að senda þjónustubíla frá Reykjavík
eða Akureyri um langan veg í aðra
landshluta,“ segir Eyjólfur.
Framúrskarandi fyrirtæki
Creditinfo árið 2020
Nú í október sl. hlaut Vélfang
ehf. viðurkenningu frá Creditinfo
sjötta árið í röð fyrir að vera eitt
af Framúrskarandi fyrirtækjum
árið 2020. Aðeins um 2% skráðra
íslenskra fyrirtækja uppfylla
kröfurnar og komast á listann. „Það
er okkur í Vélfangi því mikill heiður
að ná inn á þennan lista sjötta árið í
röð en listinn er öflugur mælikvarði
á styrk og stöðugleika fyrirtækjanna
sem ná inn á listann.“ Til að ná inn
á listann þarf að uppfylla fjölmörg
skilyrði en þau eru:
• Hefur skilað ársreikningi til RSK
fyrir rekstrarárin 2017–2019
• Hefur skilað nýjasta ársreikningi
á réttum tíma
• Er í lánshæfisflokki 1, 2 eða 3
• Rekstrarhagnaður (EBIT) var
jákvæður rekstrarárin 2017–
2019
• Ársniðurstaða var jákvæð
rekstrarárin 2017–2019
• Eiginfjárhlutfall var a.m.k. 20%
rekstrarárin 2017–2019
• Framkvæmdastjóri er skráður í
fyrirtækjaskrá RSK
• Fyrirtækið er virkt samkvæmt
skilgreiningu Creditinfo
• Rekstrartekjur voru a.m.k. 50
m.kr. rekstrarárin 2017–2019
• Eignir voru a.m.k. 100 m.kr.
rekstrarárin 2017–2019
Þennan góða árangur 6 ár í röð þakka
stjórnendur Vélfangs frábæru og tra-
ustu starfsfólki fyrirtækisins ásamt
traustum hópi viðskiptavina. Þá hafa
margir af viðskiptavinum Vélfangs,
bæði bændur, verktakar og sjávar-
útvegsfyrirtæki líka staðið sig vel
í sínum rekstri og fjölmargir þeirra
hlutu viðurkenningu í ár. HKr.
Meðalþyngd lamba í haustslátrun hjá Norðlenska á Húsavik nú var 0,690
kíló meiri en var í fyrra og sú næstmesta í sögu fyrirtækisins. Mynd / HKr.
Engin slátursala hjá Norðlenska í haust:
Meðalþyngd hefur aðeins
einu sinni verið hærri
– Gerð mældist nú 9,12 og hefur aldrei verið betri
Aðeins einu sinni áður hefur með-
alþyngd lamba hjá Norðlenska á
Húsa vík verið hærri en hún var nú
í nýliðinni sláturtíð, meðal þyngdin
nú var 16,99 kíló en hæsta með-
alþyngd var árið 2014 þegar hún
var 17,34 kíló. Meðal þyngdin nú
er 0,690 kíló meiri en var í fyrra.
Fita í ár var 6,57 og gerð 9,12 og
hefur aldrei verið hærri.
„Bændur hafa sannarlega unnið
vel í ræktunarmálum á liðnum árum
en ef við til gamans bökkum 15 ára
aftur í tímann til ársins 2005 þá var
meðal þyngd 15,11 kíló, fita 6,34
og gerð 7,57,“ segir Sigmundur
Hreiðars son, framleiðslustjóri Norð-
lenska á Húsavík. Alls var slátrað
hjá félaginu tæplega 90 þúsund fjár.
Engin slátursala í haust
Engin slátursala var hjá félaginu nú
í haust og segir Sigmundur það alls
ekki hafa verið auðvelda ákvörðun
að sleppa henni þetta árið, „einkum
í ljósi þess að við viljum fyrir alla
muni halda í þá aldagömlu hefð að
fólk taki slátur. Við mátum stöð-
una samt þannig núna að áhættan
af því að halda sölunni opinni á
þess um tímum væri of mikil,“ segir
Sigmundur.
Allt skipulag fyrirtæksisins
miðaðist við að halda slátrun áfram
óhikað og var t.d. hvorki bændum
né öðrum hleypt inn í starfsstöðina.
Sláturtíð gekk vel og ekkert óvænt
kom upp á. Menn lögðu mikið á sig
til að fá kórónuveiruna ekki inn í
fyrirtækið segir Sigmundur og það
hafi gengið eftir. „Stundum þarf
að taka óvinsælar ákvarðanir eins
og að sleppa slátursölu til að auka
öryggið.“
Sigmundur segir að vissulega
hafi verið töluvert hringt og spurt
út í slátursöluna en flestir sýnt því
skilning þegar málið var útskýrt.
Bændur sveigjanlegir
Hann segir starfsfólk eiga þakkir
skildar, það hafi lagt sitt lóð á
vogarskálar, án þess framlags hefði
þetta ekki verið hægt. Sömuleiðis
verktakar sem þjónusta fyrirtækið
og þá ekki síst vill Sigmundur þakka
bændum fyrir gott samstarf nú sem
fyrr, en mikið mæði á þeim og þeir
þurfi oft að vera mjög sveiganlegir
með t.d. afgreiðslu fjár. /MÞÞ
Vélfang fjárfesti í nýju húsnæði á Óseyrinni á Akureyri fyrr á þessu ári.
Margir íslenskir bændur og verktakar eru hrifnir af Fendt dráttarvélunum þó
þær séu sannarlega ekki þær ódýrustu á markaðnum. Eyjólfur Pétur segir
ekki óalgengt að menn sem einu sinni hafi prófað og keypt Fendt kaupi slíkar
vélar aftur og aftur. Hér má sjá nýja Fendt vél úr 900 Vario seríunni sem er
til í mörgum útgáfum og með mótorum sem skila frá 296 til 415 hestöflum.
„Sæðingarnar byrja 1. desem-
ber og lýkur 21. desember. Við
sendum sæði út í 15 til 20 þús-
und ær en nýtingin á sæðinu
er oft um 70%. COVID breyt-
ir því að ekki verða haldnir
hrútafundir nema á netinu. Við
verðum með 25 nýja hrúta á
stöðvunum, sem er í meira lagi,
oftast hafa þeir verið um 20,“
segir Sveinn Sigurmundsson,
framkvæmdastjóri Búnaðar-
sambands Suðurlands.
Sveinn sér um stöðina í
Þorleifskoti í Laugardælum og
Torfi Bergsson um stöðina á
Hvanneyri á Vesturlandi. Af þess-
um 25 nýju hrútum eru 13 hyrndir,
9 kollar, 1 feldhrútur, 1 forystu-
hrútur og svo ferhyrndur hrútur. Þá
eru 5 hreinhvítir hyrndir, svartur,
mórauður, grár og móflekkóttur.
„Hrútarnir eru valdir eftir tveim-
ur leiðum, annars vegar hrútar
sem hafa skarað fram úr á búun-
um og eru farnir að sýna sig sem
góðir ærfeður og hins vegar út frá
kjötmati í afkvæmarannsóknum
sem heppnuðust mjög vel þetta
haustið,“ segir Sveinn. Hrútaskráin
er í vinnslu og mun koma út alveg
á næstunni. /MHH
Sæðingarstöðvar á Suðurlandi og Vesturlandi:
25 nýir hrútar í boði
Hrúturinn Blossi frá Teigi í Fljótshlíð er einn af nýju hrútunum á sæðingar-
stöðvunum. Mynd / Halla Eygló Sveinsdóttir