Bændablaðið - 19.11.2020, Síða 13
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 2020 13
Höfum opnað nýjan
sýningarsal og
útisýningarsvæði
Verið velkomin í
Trönuhraunið
Ávallt spritt og kaffi á
könnunni
Vallarbraut.is
S-4540050
jardir.is
Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu:
Þingeyjarsveit fékk verðlaun fyrir
uppbyggingu við Goðafoss
Þingeyjarsveit hlaut umhverfis
verðlaun Ferðamálastofu fyrir árið
2020 fyrir uppbyggingu innviða
við Goðafoss en sveitarfélagið
hefur staðið fyrir henni undanfarin
ár. Áætlað er að um 500 þúsund
manns heimsæki staðinn árlega.
Goðafoss í Þingeyjarsveit er
meðal stærstu fossa á Íslandi en
hann á sér forna og fræga sögu og
þykir einn af stórkostlegustu fossum
landsins. Hann er formfagur og
myndrænn en klettar á skeifulaga
fossbrúninni greina fossinn í tvo
meginfossa sem steypast fram af
hraunhellunni skáhallt á móti hvor
öðrum.
Vel að verki staðið
Verkefnið við umbætur á umhverfi
Goðafoss hefur verið umfangs-
mikið, en byggt var upp beggja
megin fossins til að vernda við-
kvæma náttúru, bæta ásýnd staðar-
ins og tryggja öryggi ferðamanna.
„Mjög vel var að verki staðið
þar sem heimamenn og fagaðilar
unnu náið saman allan tímann til
að skapa umhverfi sem bæði er
aðgengilegt og öruggt fyrir ferða-
manninn. Útsýnið að fossinum
er óhindrað og hægt er að skoða
hann allt árið,“ segir í frétt á vef
Ferðamálastofu.
Unnið að verkinu frá 2013
Verkefnið var unnið á árunum 2013
til 2019 en Þingeyjarsveit hlaut
fyrst styrk úr Framkvæmdasjóði
ferðamannastaða árið 2013 í
deiliskipulag og landslagshönnun
og síðan í 6 ár eftir það í stíga- og
pallagerð, merkingar, bílaplan og
uppgræðslu. Umhverfisverðlaun
Ferða málastofu eru hugsuð sem
hvatning og áminning til þeirra sem
koma að ferðaþjónustu um að huga vel
að umhverfinu í allri skipulagningu
og framkvæmd. Þau hafa verið veitt
árlega frá árinu 1995 og er þetta því
í 26. sinn sem þau eru afhent. /MÞÞ
Goðafoss í Þingeyjarsveit er meðal stærstu fossa á Íslandi en hann á sér forna og fræga sögu og þykir einn af
stórkostlegustu fossum landsins. Mynd / Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir
Hið sívinsæla
dagatal
Búsögu
nú fyrir árið 2021
er komið í sölu
á aðeins 2.000 kr.
Fallegar myndir
af dráttarvélum
og fræðandi texti.
Tilvalin jóla- eða tækifærisgjöf.
Sendum í pósti um land allt.
Sími 894-9330 og netfang: busaga@simnet.is
Útgefandi: Bús
aga, búnaðarsö
gusafn Eyjafjar
ðar
Dagatal2021
Dráttarvélar af
gerðinni Farma
ll úr safni Herm
anns Ólafssona
r í Grindavík
Hermann Th. Óla
fsson í Grindavík
á eitt fallegasta
einkasafn lands
ins af gömlum d
ráttarvélum auk
nokkurra gamall
a bíla. Safnið tel
ur
um 30 dráttarvél
ar sem allar eru v
el uppgerðar og
gangfærar. Safn
ið er varðveitt í b
jörtu og fallegu
húsnæði og allir
gripirnir bónaði
r
og glæsilegir á a
ð líta. Hermann
hefur alla tíð ver
ið safnari og þeg
ar hann sá í fyrs
ta sinn uppgerða
n Farmal Cub va
knaði hjá honum
löngun til að saf
na gömlum drát
tarvélum og ger
a þær upp. Drau
mur Hermanns e
r að víkka út hu
gmyndina um sa
fnið og bæta við
vélum sem teng
jast sjávarútvegi
og öðrum munu
m með áhugave
rða sögu. Opna
síðan safnið fyri
r almenningi og
búa til segul se
m
dregur að ferðam
enn til Grindavík
ur.
Bandarísk auglýsin
g frá International
Harvester.
Tónahvarf 3 • 203 Kópavogur • Sími: 544 4210 • GSM: 892 9399 • verkfaeriehf.is • info@verkfaeriehf.is
Verkfæri ehf. er nýr
umboðsaðili fyrir
Merlo S.p.A. á Íslandi
Tengiliðir:
Ólafur Baldursson framkvæmdarstjóri • 892 9399 • ob@vvv.is
Gunnar Sigðursson vörustjóri Merlo • 788 9399 • gs@vvv.is
Jóhann Sigurjónsson þjónustustjóri • 776 9399 • js@vvv.is
Verkfæri ehf. hefur tekið við Merlo umboðinu á Íslandi og mun þar af leiðandi sjá um alla
sölu og þjónustu á þeim tækjum. Ef ykkur vantar einhverjar upplýsingar um verð á tækjum
eða óskið eftir þjónustu, endilega hafið sambandi við okkur í netfangið merlo@vvv.is eða
hringið í síma 544 4210. Við munum aðstoðað ykkur eftir fremsta megni.
HUGVIT Í VERKI
ÖNNUMST ALLAR
ALMENNAR
VINNUVÉLAVIÐGERÐIR
VHE • Me l ab rau t 27 • 220 Ha fna r f j ö r ðu r • S ím i 575 9700
Fax 575 9701 • www.vhe . i s • s a l a@vhe . i s
Vönduð og góð þjónusta