Bændablaðið - 19.11.2020, Page 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 202014
HLUNNINDI&VEIÐI
Thorvaldsenfélagið fagnar 145 ára afmæli í dag:
Ömmujól á jólakortum
félagsins 2020
Í dag fagnar góðgerðarfélagið
Thorvaldsenfélagið 145 ára afmæli,
en það var stofnað 19. nóvember
árið 1875 af 24 reykvískum konum.
Félagið hefur rekið verslunina
Thorvaldsenbazar í Austurstræti
samfleytt frá árinu 1901 þar sem
varningur er seldur til fjáröflunar
starfseminnar. Auk þess eru gefin út
jólakort ár hvert. Þetta árið prýð-
ir mynd eftir listakonuna Sigrúnu
Eldjárn jólakortin, sem nefnist
Ömmujól.
Thorvaldsenfélagið hefur í gegn-
um tíðina styrkt margvísleg málefni,
sem öll tengjast börnum á einn eða
annan hátt.
Stytta af Bertel Thorvaldsen
Þann 19. nóvember árið 1875 var af-
hjúpuð stytta af myndhöggvaranum
Bertel Thorvaldsen á Austurvelli en
það var afmælisdagur myndhöggv-
arans.
Nokkrar konur tóku sig saman
og skreyttu völlinn með fléttum úr
íslensku lyngi ásamt ljóskerjum til
þess að gera þessa stund sem hátíð-
legasta.
Samstarf þeirra gekk svo vel að
þær ákváðu að halda hópinn og
láta gott af sér leiða. Þar með varð
Thorvaldsensfélagið til. Allt starf
er unnið í sjálfboðavinnu. Fyrir um
það bil 30 árum kom fyrsta jóla-
kortið út.
Allur ágóði af sölu jólakortanna
rennur í sjóð til styrktar sykursjúk-
um börnum. Í kortinu er ljóð eftir
Þórarin Eldjárn, bróður Sigrúnar, sem
heitir Sálartýran.
HLAÐVARP BÆNDABLAÐSINS
Nördaþáttur fyrir
matgæðinga
FRÉTTIR
Jólakort Thorvaldsenfélagsins í ár prýðir mynd eftir listakonuna Sigrúnu
Eldjárn, sem nefnist Ömmujól.
Efri-Reykir í Bláskógabyggð:
Sjö milljarða króna baðlón og 100
herbergja hótel á teikniborðinu
Unnið er að útfærslu og fjármögn-
un á uppbyggingu baðlóns og 100
herbergja hótels á Efri-Reykjum í
Biskupstungum í Bláskógabyggð.
Það er Þróunarfélagið Reykir
ehf. sem stendur að framkvæmd-
inni en ferli undirbúnings, vinnsla
umhverfisskýrslu og skipulags-
ferlis hefur tekið rúm fjögur ár. Af
hálfu Þróunarfélagsins er vöktun á
lífríki í og við Brúará afar mikil-
væg til að tryggja lífríki svæðisins.
Vatnshelgunarlína liggur 100 metra
frá árbakka. Baðlón verða útbúin
með fullkomnum hreinsibúnaði til
að uppfylla skilyrði reglugerðar og
frárennsli verður meðhöndlað miðað
við ítrustu kröfur. Efri-Reykir eru
á milli Laugarvatns og Úthlíðar og
þar er afar gjöful borhola sem tekin
var í notkun árið 1988 og fóðrar m.a.
Hlíðarveitu. Borholan gefur af sér
45–50 lítra á sek. af 145 °C heitu
vatni og er með öflugri heitavatns-
holum á lághitasvæði á landinu. Þrátt
fyrir það eru áform um að boruð
verði viðbótarhola fyrir frekari orku-
vinnslu á svæðinu.
7 milljarða króna verkefni
Upphafleg áform voru um að byggja
tvö stór baðlón, þjónustubyggingu
og 100 herbergja hótel, aðstöðu-
hús fyrir starfsmenn og möguleika
á stækkun hótelsins í 200 herbergi.
Hámarks byggingarmagn hót-
els- og þjónustubyggingar verður
15.000 m2 en endanleg útfærsla
og stærð hefur ekki verið ákveðin.
Hugmyndirnar voru fyrst kynntar í
sveitarstjórn Bláskógabyggðar árið
2016 en nýlega var samþykkt að
gera ráð fyrir þeim í endurskoðun
á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Verkís hefur séð um undirbún-
ing og útfærslu verkefnisins sem
og alla vinnu við umhverfismál
og gerð umhverfisskýrslu fyrir
Þróunarfélagið.
Arkitekt er Orri Árnason hjá
Zeppelin Arkitektum. „Á þessu
stigi i COVID-faraldri er ekkert
hægt að fullyrða um það hvenær
framkvæmdir gætu hafist eða þeim
verði lokið. Kostnaðaráætlun verks-
ins hljóðaði upphaflega á 7 milljarða
króna en mun væntanlega taka ein-
hverjum breytingum,“ segir Orri,
arkitekt verkefnisins. /MHH
Hafliði Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Icelandic Lamb
og matreiðslumeistari, hefur
á undanförnu ári haldið úti
hlaðvarpi um mat og matar-
menningu sem hann kallar
Máltíð.
„Ég vissi að mig langaði til að
miðla sögum þeirra sem brenna
fyrir mat og veit persónulega
að í þeim hópi eru svo margir
ástríðufullir og skemmtilegir að
ég þóttist viss um að þetta yrði
skemmtilegt, sem hefur verið
raunin a.m.k. fyrir mig. Ég tók
nokkurra mánaða hlé í sumar
en er kominn af stað aftur og
mun halda mínu striki þangað
til ég verð uppiskroppa með
umræðuefni og viðmælendur.
Sem gerist líklegast seint. Á
sama tíma eru mörg hlaðvörp
sem fjalla um svipaða hluti,
en ég tel mig eiga erindi inn í
þá umræðu,“ segir Hafliði en
áhersla þáttanna endurspeglar
áhugasvið hans á hráefnum,
aðferðum til varðveislu, verkunar
og matargerðar.
„Áherslan er svolítið
sjálfhverf því þetta er nördaáhugi
á mat og matarmenningu. Ég vil
tala við fólkið með þekkinguna,
sem er kannski fyrst og fremst
fagfólk í matvælageiranum og
bændur.“
Hafliði ólst upp í sveit á
blönduðu búi og segist því
skilja hvað það þýðir að hafa
metnaðarfulla bændur sem sjá
okkur fyrir úrvals hráefni auk
þess sem hann starfaði lengi
í veitingageiranum. „Þar er
magnað að sjá hvað flinkasta
fagfólkið okkar getur skapað
og búið til gríðarleg verðmæti
úr gæða hráefnum. Svo er
auðvitað til margt fólk sem hefur
gríðarlegan áhuga á þessum
málaflokki án þess að hafa starfað
beint við greinina sem ég ætla
líka að spjalla við. Enda eðlilegt
þar sem matur og matarmenning
er svo stór þáttur í lífi allra og
partur af hversdeginum.“
– Hvernig finnst þér að miðla
upplýsingum gegnum hlaðvarp?
„Mér finnst miðillinn góður,
hann býður upp á umræðu í
dýptina sem er tæpast rúm fyrir í
hefðbundnu útvarpi og sjónvarpi.
Með lágum framleiðslukostnaði
er hægt að ná til ótrúlega margra
og efnið getur lifað góðu lífi
löngu eftir að það fyrst var gefið
út. Þeir sem nenna og hafa áhuga
á efninu hlusta á þáttinn minn
og hinir á eitthvað annað. Það
er eftirtektarvert hvað ungt fólk
nýtir formið mikið og sýnir að
það er erindi fyrir ítarlegt efni og
nördalega þætti fyrir afmarkaða
hópa.“
Á næstu misserum hyggst
Hafliði auka framleiðslu á
Máltíðum.
„Ég ætla fyrst og fremst
að hafa reglufestu í útgefnum
þáttum. Ég vil,, auk þess að
hafa tugi manna á lista yfir
væntanlega viðmælendur á
höfuðborgarsvæðinu, líka fara
með þáttinn út á land, hitta þar
kokka, veitingamenn, bændur,
sjómenn og fólk sem starfar
í nýsköpun. Segja söguna
af íslenskum hráefnum og
matarhefðum sem svo speglast í
nútímanum og fjölbreytileikanum
í áhrifum frá hæfileikafólki
af erlendum uppruna sem
auðgar okkar mannlíf og
matarmenningu. Svo er ég alltaf
opinn fyrir góðum tillögum að
efni og viðmælendum,“ segir
Hafliði. /ghp
Hafliði Halldórsson matreiðslumeistari og framkvæmdastjóri.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STARTARAR í flestar
gerðir dráttarvéla
Hafliði spjallaði við veitinga
manninn Þráin Frey Vigfússon í
síðasta þætti Máltíðar. Hann er
einn þeirra sem segir keppnis
matreiðslu hafa þróað hann sem
fagmann, en hann keppti sjálfur
lengi á þeim vettvangi ásamt því
að hafa þjálfað keppendur og
miðlað sinni reynslu áfram.
EfriReykir yfirlitsmynd: Yfirlitsmynd frá Zeppelin Arkitektum af baðlóninu og hótelinu á EfriReykjum. Nóg er af
heitu vatni á svæðinu. Skipulagssvæðið er 30 hektarar að stærð og liggur innan jarðarinnar EfriReykir í Bláskóga
byggð. Mynd / Orri Árnason