Bændablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 2020 17
ÓSÓTT STYRKLOFORÐ !
Lög um Framleiðnisjóð landbúnaðarins, FL, nr. 89/1966
falla úr gildi 31. desember 2020 og Matvælasjóður tekur
við öllum eignum hans og skuldbindingum frá þeim
tíma skv. lögum nr. 31/2020. Umsýsla Matvælasjóðs
verður í Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, ANR.
Umsýsla sjóðanna sem FL hefur haft með að gera fer
jafnframt inn í ANR. Þeir aðilar sem sjá fram á verklok
sinna verkefna til innheimtu styrkloforðs á allra næstu
dögum getað sótt styrkloforðið með skýrsluskilum til
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Að öðrum kosti flyst
afgreiðsla mála yfir í ANR.
Lokaskilafrestur skýrslna til grundvallar útborgunar
árið 2020 hjá FL er til og með 1. desember n.k.
Skýrslum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnes á netfangið fl@fl.is.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri FL, Sigríður
Bjarnadóttir, í síma 430-4300.
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyri – 311 Borgarnes – sími 430 4300
VANTAR ÞIG SEÐLA/KORTAVESKI?
Sendum frítt!
Netverslun - www.drangey.is
Kr. 11.200
Kr. 8.900
Kr. 7.400
Kr. 5.900
-20%
-20%
2. desember
13:00-18:00
Hvanneyri og Hesti í Borgarfirði
3. desember
13:00-18:00
Stóra Ármóti Suðurlandi
SAUÐFJÁRSÆÐINGAR
Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands heldur tvö námskeið
í sauðfjársæðingum í byrjun desember. Námskeiðin eru ætluð
sauðfjárbændum og öllum þeim sem hafa áhuga á eða starfa
við sauðfjársæðingar. Kennari er Þorsteinn Ólafsson dýralæknir.
Skráning og allar nánari upplýsingar á vef Endurmenntunar LbhÍ.
Á sauðfjársæðingarstöðvunum
er besta úrval landsins af erfðaefni.
Því fylgja engin smitefni.
Á námskeiðinu læra nemendur
rétt vinnubrögð og tímasetningar
til þess að tryggja sem bestan
árangur af sæðingunum.
Þorsteinn Ólafsson
dýralæknir
„
endurmenntun.lbhi.is
ENDURMENNTUN
LBHI
BÆKUR
&
MENNING
G
FRÉTTIR
Hólar í Öxnadal einkafriðaðir
vegna náttúruverndar
– Einkafriðlýsing er alþjóðlega viðurkennd og alþekkt í mörgum ríkjum
Hjónin Ólafur Valsson og Sif
Konráðsdóttir, landeigendur
jarðar innar Hóla í Öxnadal, hafa
ákveðið að stofna til svokallaðrar
einkafriðunar jarðarinnar. Það
gera þau vegna náttúruverndar-
gildis jarðarinnar og mun stærstur
hluti hennar njóta friðunar sem
óbyggð víðerni. Einkafriðun
landsvæða með þessum hætti er
nýmæli hérlendis.
Um er að ræða um 1500 hektara
landsvæði, eða 15 ferkílómetra, að
mestu óbyggð víðerni á Hóladal,
sem er 10 km langur og liggur í
suður frá Öxnadal að Kambskarði
í botni Skjóldals í Eyjafirði og að
jökli.
Ólafur segir að hugmyndin um
einkafriðun hafi kviknað á ferð
með fjölskyldunni í Namibíu fyrir
tveimur árum þar sem þau kynntust
margs konar einkafriðlýstum
svæðum. Víða um heim hvetji
stjórnvöld til slíkrar friðlýsingar.
Friðun jarðarinnar
markar tímamót
Ólafur segir að fyrr á öldum hafi
Hóladalur verið nýttur til beitar
fyrir nautgripi meðal annars en þar
er votlent og grösugt. Hefðbundinn
búskapur hafi lagst af á jörðinni á
síðustu öld og önnur starfsemi tekið
við á þessari öld.
„Fyrir mynni dalsins er miðja
fornrar megineldstöðvar með öskju
og framan hans er landslagsheild
með miklum berghlaupum
umkringdum háum tindum, þar
sem Hraundrangi er tignarlegastur.
Friðun jarðarinnar markar tímamót
að því leyti að íslenska ríkið hefur
enn ekki friðlýst neitt landsvæði
sem óbyggð víðerni, en einnig
sökum þess að engin formleg
einkafriðlýsing landsvæðis hefur enn
verið gerð á Íslandi. Einkafriðlýsing
er alþjóðlega viðurkennd og alþekkt
í mörgum ríkjum heims.“
Einkafriðlýsing
Að sögn Ólafs hefur verndun
landsvæða hér á landi jafnan verið
gerð með því að ríkið friðlýsi þau,
hvort heldur sem um er að ræða land í
eigu ríkisins eða einkaaðila. „Ekkert
mælir hins vegar gegn því að slík
verndun landsvæðis til langframa
sé gerð af félagasamtökum,
sjálfseignarstofnunum eða
einstaklingum.“
Alþjóðanáttúruverndar sam
bandið, International Union for
Conservation of Nature, IUCN,
hefur á seinni árum mælt með
einkafriðlýsingum sem viðbót við
friðlýsingar opinberra aðila og
gefið út sérstakar leiðbeiningar
þar um. Íslenska ríkið er aðili að
Alþjóðanáttúruverndar sambandinu
líkt og meirihluti ríkja heims.
„Ég tel að landsvæðið sem ég
hef umráð yfir uppfylli skilyrði sem
verndarsvæði samkvæmt viðmiðum
Alþjóðanáttúruverndar sambandsins.
Málsmeðferð til skráningar
svæðisins sem verndarsvæðis í flokki
1b, eða wilderness area, stendur nú
yfir hjá helsta gagnabanka heims
um verndarsvæði, World Database
on Protected Areas, WDPA, sem
rekinn er af Umhverfisstofnun
Sameinuðu þjóðanna í samstarfi við
Alþjóðanáttúruverndar sambandið.
Ég á von á að skráningu ljúki
fljótlega. Friðun óbyggðra víðerna
er allströng friðun, en hún er talin
eiga við á langstærstum hluta
jarðarinnar Hóla og fer flokkunin
eftir markmiðum verndunarinnar.“
Hluti svæðisins á
Náttúruminjaskrá
Náttúruverndarráð setti friðlýsingu
hluta þess svæðis sem um ræðir í for
gang þegar árið 1978 með opinberri
skráningu þess á Náttúruminjaskrá.
Árið 2007 friðlýsti þáverandi um
hverfisráðherra aðliggjandi svæði
þegar Hraun í Öxnadal var lýst fólk
vangur.
Náttúrufræðistofnun Íslands
mælti með friðlýsingu alls svæðis
ins í álitsgerð til stjórnvalda 2013 og
í kjölfarið vann Umhverfisstofnun
að friðlýsingu ásamt sveitarfélaginu
og gerði formlega tillögu að henni.
Á árinu 2016 voru endurheimtir á
jörðinni 10 hektarar af votlendis
svæði í samstarfi við stjórnvöld og
hefur það svæði verið vaktað af
Landgræðslunni og er hluti af sam
starfi við nemendur Þelamerkurskóla
í verkefninu Skólar á grænni grein.
„Árið 2019 fólum við hjónin
óháðri rannsóknarstofu að gera
úttekt á svæðinu með tilliti til gildis
þess sem víðernasvæðis. Í kjölfarið
hófst málsmeðferð til skráningar
svæðisins í alþjóðlega gagnabanka
Umhverfisstofnunar Sameinuðu
þjóðanna sem víðernasvæðis og
stendur vinna við stjórnunaráætlun
yfir.“
Vonandi hvatning til aukinnar
friðunar
Ólafur segir að með einkafriðun
inni vilji hann og Sif sýna í verki
mikilvægi Hóla sem náttúruverndar
svæðis á landsvísu og skuldbinda
verndun þess til allrar framtíðar.
„Ég vona að þetta geti orðið
öðrum landeigendum, sem eru
vörslumenn lands sem mikilvægt
er að vernda, hvatning til að
huga að möguleikum sem felast í
einkafriðun, samhliða nýtingu þar
sem við á.“
„Það má nefna að Ráðgjafar
miðstöð landbúnaðarins er nú í
samstarfi við nokkra bændur á
Vesturlandi að vinna að tilraunaverk
efni í náttúruvernd í landbúnaði og
gæti einkafriðun verið meðal þess
sem kæmi til álita í því sambandi,“
segir Ólafur Valsson, dýralæknir og
eigandi Hóla í Öxnadal að lokum.
/VH
Hluti af korti Umhverfisstofnunar 28. febrúar 2014 af tillögu um friðlýsingu.
Ólafur Valsson, annar eigenda
jarðarinnar Hóla í Öxnadal. Hólafjall
í baksýn.
Mynd / Helga Österby Þórðardóttir.
Jólagleði fyrir alla fjölskylduna
Sjón þín, hugsun þín, skilningur
þinn er bók sem inniheldur 49
hugleiðingar og heilræði sem sett
eru upp í gamla sjónprófinu sem allir
krakkar og fullorðnir þekkja svo vel.
Höfundur texta sjónprófanna er
Svavar Guðmundsson sem er
lögblindur.
Sumir sjá bókina sem safn sjónprófa,
aðrir líta á hana sem þrautabók, í augum annarra er hún heilræðabók.
Skemmtun fyrir fólk á aldrinum átta til hundrað og átta ára.
Fæst í Pennanum/Eymundsson, Nettó, völdum
Krambúðum og Bókakaffinu.