Bændablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 202018
FRÉTTIR
Jurtalitapúsl Hespuhússins:
Fallegt, fræðandi og fjölskylduvænt
Á þessum undarlegu tímum
þegar erlendir ferðamenn láta
ekki sjá sig þá þurfa mörg fyr
irtæki að breyta um áherslur og
aðlagast breyttum aðstæðum.
Hespuhúsið í Ölfusi er opin jurta
litunarvinnustofa þar sem gestir
geta komið og kíkt í jurtalitunar
pottana, fræðst um gamalt hand
verk og keypt jurtalitað band.
Guðrún Bjarnadóttir náttúru
fræðingur, sem rekur Hespuhúsið,
segir að í ár hafi gestagangur verið
rólegri og þá hafi gefist tími til að
koma gamalli hugmynd í fram
kvæmd en það var jurtalitapúsluspil
sem er fræðslupúsluspil.
Þúsund bita púsl
„Púsluspilið er 1.000 bita púsl og
myndin er af jurtalituðum band
hnyklum sem litaðir hafa verið í
Hespuhúsinu. Með púslinu fylgir
spjald með mynd til að púsla eftir
og á bakhliðinni má sjá úr hvaða jurt
hver hnykill er litaður. Einnig fylgir
lítið bókarkorn með sögu jurtalitunar
á Íslandi. Púslið sjálft er í fallegum
poka og fræðsluefnið og púslið eru
svo í kassa. Púslbitarnir eru óhefð
bundnir en þeir eru mjög misjafnir í
lögun sem eykur skemmtunina því þá
má leita að bitum eftir lit og lögun.
Púsl eru sígild
Guðrún segir að mikill áhugi sé fyrir
púslus pilinu enda sameini það svo
margt sem varð vinsælt á COVID19
tímum eins og prjónaskap og púsl og
svo tenging þess inn í gamlar hefðir
og náttúrunýtingu sem vaknaði eftir
bankahrunið.
Púsluspilið er allt í senn falleg,
fræðandi og fjölskylduvæn jólagjöf.
Verkefnið var styrkt af Sambandi sunn
lenskra sveitarfélaga sem veitti átaks
styrki vegna COVID19 sem nefndust
Sóknarfæri ferðaþjónustunnar.
Hægt er að panta og fá upplýsingar
um spilið á www.hespa.is /VH
Jurtalitapúsl Hespuhússins.
Með púslinu fylgir spjald með mynd til að púsla eftir og á bakhliðinni má sjá
úr hvaða jurt hver hnykill er litaður. Einnig fylgir lítið bókarkorn með sögu
jurtalitunar á Íslandi.
Guðrún Bjarnadóttir náttúrufræðingur rekur Hespuhúsið. Mynd / Unnur Magna.
LÍF&STARF
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
AnnMarie Schlutz og maður henn
ar, Gunnar Gunnarsson, blaða
maður á Austurfréttum og Austur
glugganum, eiga og reka fyrirtækið
Sauðagull utan um framleiðslu á
vörum úr sauðamjólk. Gunnar
Jónsson, tengdapabbi AnnMarie, á
og rekur Egilsstaðabúið í Fljótsdal
en á búinu eru um 350–400 ær.
Nýverið kom á markað handgert
konfekt frá Sauðagulli með kara
mellufyllingu og unnið úr sauða
mjólk.
„Ég er með takmarkað hráefni
af mjólk sem ég get fengið og þá
þarf maður að hugsa hvernig maður
getur nýtt það sem best. Ostagerð er
sjálfsögð og fyrsta sem maður hugs
ar að gera sauðaost. En með því að
heimsækja sauðfjárbú erlendis, sem
við höfum gert, þá koma margar
hugmyndir, meðal annars þetta með
konfektið,“ útskýrir AnnMarie og
segir jafnframt:
„Sauðamjólk var um aldir nýtt
til manneldis hér á landi og unnið
úr henni skyr, smjör og ostar.
Þekking á þessu mjög svo íslenska
handverki hefur að mestu glatast.
Sauðagull stefnir á að endurvekja
handverkið með því að framleiða
einstakar matvörur úr sauðamjólk.
Með því er von mín að geta stutt
íslenska sauðfjárrækt og hvetja aðra
til að nýta þetta holla, bragðgóða og
næringarríka hráefni.“
Hægt er að panta hjá AnnMarie
í gegnum Facebooksíðu Sauðagull
eða í gegnum netfangið saudagull@
outlook.com /ehg
Úr sauðagulli verða
til ýmsar kræsingar
Ann-Marie Schlutz á veg og vanda að framleiðslu á sauðamjólk og selur
vörur undir merkjum Sauðagulls. Hún hefur aðstöðu til framleiðslu í félags-
heimilinu á Fljótsdal.
Lerkiaskjan utan um handgerða
konfektið er framleidd í samstarfi
við smið úr Fljótsdal, Hörð Má
Guðmunds son, en hún er úr lerki
úr Viðivallaskógi í Fljótsdal. Hún er
hönnuð sem eftirlíking af gamaldags
pennastokkum og hægt er að nota
hana undir ýmislegt eftir að konfekt-
molarnir hafa runnið ljúflega niður.
Osturinn, sem heitir Kubbur og er í
kryddolíu, er gerður eftir uppskrift að
fetaostuppskrift en vegna verndunar
heitisins má ekki kalla hann fetaost
því sá kemur upprunalega frá
Grikklandi.
Count on it.
LAUFBLÁSARI
SLÁTTUORF
GARÐSLÁTTUVÉL
SNJÓBLÁSARI
RAFHLAÐAN
HEKKKLIPPUR
60v
2,5Ah, 6,0Ah &
7,5Ah