Bændablaðið - 19.11.2020, Page 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 202022
UTAN ÚR HEIMI
Breska fjölskyldufyrirtækið JCB 75 ára
Löngu áður en tæknifyrirtæki
voru að monta sig af hógværri
byrjun sinni í bílskúr notaði
Joseph Cyril Bamford örlítinn
bílskúr til að búa til sína fyrstu
vöru, sturtuvagn sem smíðaður
var úr brotajárni úr seinni heims-
styrjöldinni. Í dag telja stjórnend-
ur fyrirtækisins að vetni verði
orkugjafi framtíðarinnar fyrir
vinnuvélar.
Fyrirtækið sem JCB dregur
nafn sitt af er skammstöfun á nafni
stofnandans, Joseph Cyril Bamford,
sem fagnar nú 75 ára afmæli sínu.
Var því sérstaklega haldið upp á það
fyrr á árinu þegar lokið var við smíð
á traktorsgröfu númer 750.000.
Á heimsvísu starfa nú 12.000
manns hjá fyrirtækinu sem er með
22 verksmiðjur í fimm löndum og
750 sölumenn og er með þjónustu
á 2.000 stöðum. Fyrirtækið er enn í
eigu Bamfor-fjölskyldunnar.
Til viðbótar við 75 ára afmælið á
alþjóða vísu, heldur JCB einnig upp á
50 ára afmæli sitt í Norður-Ameríku
þar sem fyrirtækið er með aðsetur á
yfir 300 stöðum.
Vélfang ehf. hefur verið
umboðsaðili JCB á Íslandi
samkvæmt samningi við JCB Sales
Ltd. sem gerður var 2009.
Helstu tímamót
á 75 ára ferli JCB
• 1953: Bamford finnur upp
fyrstu gröfu JCB, Mk 1, og býr
til eina vél með vökvaknúnum
gröfugálga (backhoe) að aftan
og skóflu að framan. Þarna
birtist fyrirtækismerki JCB
fyrst á vél og var skráð sem
vörumerki fimm árum síðar.
• 1962: Fyrirtækið Dancing
Diggers kom fram á
sjónarsviðið og varð fastur
liður á vörusýningum JCB. Þá
var líka hafin framleiðsla á JCB
3C traktorsgröfunni.
• 1964: Fyrirtækið flytur út fyrstu
vél sína til Bandaríkjanna, JCB
4C traktorsgröfu.
• 1970: JCB setur upp bandaríska
bækistöð í Whitemarsh, nálægt
Baltimore, Maryland.
• 1977: Loadall skotbómu-
lyftarinn er kynntur til sögunn-
ar og hefur síðan verið eitt
farsælasta tæki fyrirtækisins.
Fyrirtækið framleiddi 200.000
Loadall árið 2016.
• 1988: Hulunni svipt af JCB GT,
sýningareintaki af gröfu sem
getur keyrt á 100 km hraða á
klukkustund.
• 2000: Fyrstu vélarnar byrja að
rúlla af framleiðslulínunni í nýju
höfuðstöðvum JCB í Norður-
Ameríku í Savannah í Georgíu.
• 2004: JCB kynnir Dieselmax
mótorinn. Í kjölfarið kynnti
það nýju línu með því að setja
heimsmet með JCB Diselmax
straumlínubílnum, sem náði
350,092 mph á Bonneville Salt
sléttunni. Þetta heimsmet stend-
ur enn.
• 2005: Fyrirtækið fær 140
milljóna dollara verðlaun til
að útvega bandaríska hernum
sérútbúnar traktorsgröfur til
hernaðarverkefna, eða það
sem kallað er „High Mobility
Engineer Excavator“.
• 2013: JCB fagnaði framleiðslu
einnar milljónustu vélarinnar.
• 2017: JCB kemur inn á
markaðinn með fyrstu rafknúnu
gröfu sína, 19C-1E.
• 2018: Fyrirtækið setur nýja
X-Series gröfur á markað.
• 2019: JCB's Fastrac One setti
í júní það ár heimsmet með
hraðskreiðustu dráttarvélinni
sem skráð er á heimsmetabók
Guinness. Náði hún 103,6 mílna
hraða á klukkustund (167 km).
JCB var samt ekki sátt við
þennan árangur því að í október
sama ár kom fyrirtækið með
Fastrac Two sem náði 153.881
mílna hraða á klukkustund, eða
um 251 km og var neðalhraðinn
135.191 mph (um 218 km).
• 2020: Fyrirtækið gefur út að
framleiddar hafi verið 750.000
traktorsgröfur. Í júlí kynnti JCB
frumgerð af vetnisknúinni 20
tonna 220X beltagröfu, sem
JCB fullyrðir að sé sú fyrsta í
sínum flokki í heiminum fyrir
verktaka. /HKr.
Haldið upp á framleiðslu á JCB traktorsgröfu númer 750.000 í höfuðstöðvum
JCB í JRocester, Staffordshire í Englandi. Lord Anthony Bamford,
stjórnarformaður JCB er þriðji frá hægri á myndinni. Myndir / JCB
Fyrsta framleiðsluvara JCB var þessi sturtuvagn sem kom á markað árið 1945.
Fyrsta trakorsgrafa JCB sem seld var til Bandaríkjanna árið 1964.
Vetnisknúna 20 tonna beltagrafa
JCB sem kynnt var í júlímánuði er
búin að vera í prófunum við vinnu
í jarðvegsnámu í heilt ár. Bamford
lávarður, stjórnarformaður
JCB (Antony Paul Bamford,
Baron Bamford, sonur Joseph
Cyril Bamford stofnanda JCB)
segir að hönnun þessara fyrstu
vetnisknúnu beltagröfur sé mjög
spennandi verkefni um leið og
fyrirtækið feti sig nú inn á slóð
án kolefnislosunar.
„Á komandi mánuðum mun
JCB halda áfram þróun við að
fullgera þessa tækni með prófunum
á frumgerðinni. Við munum halda
áfram að vera í fararbroddi varðandi
tækni sem lýtur að framtíð án
losunar kolefnis.“
Á síðasta ári var tilkynnt um
að hafin yrði framleiðsla af fullum
krafti á rafknúnum smágröfum
sem hafa tegundarheitið JCB 19C-
1E. Þá hefur JCB einnig unnið að
gerð rafmagnsútgáfu af Teletruk
skotbómulyftaranum sem fær heitið
JCB 30-19E.
Auk þess að vinna að vetnis- og
rafknúnum tækjum segja talsmenn
JCB að fyrirtækið hafi næstum
útrýmt losun á skaðlegustu efnunum
með nýjustu dísilmótorunum.
Samkvæmt gögnum fyrirtækisins
hefur nituroxíð lækkað um
97%, sótagnir um 98% og losun
koltvísýrings hefur minnkað um
næstum helming á undanförnum
árum. /HKr.
Loftslagsvænar vinnuvélar frá JCB
Í júlí kynnti JCB frumgerð af vetnisknúinni 20 tonna 220X beltagröfu,
sem JCB fullyrðir að sé fyrsta vetnisknúna beltagrafan í heiminum.
JCB rafknúnar smágröfur komu
á markað 2017.
Fyrsti JCB Loadall skotbómulyftarinn
var kynntur til sögunnar 1977.
Nýr JCB Loadall 520M
skotbómulyftari.
Joseph Cyril Bamford, stofnandi JCB.
Árið 2005 fékk JCB 140 milljóna dollara verðlaun til að útvega bandaríska
hernum sérútbúnar traktorsgröfur til hernaðarverkefna, eða það sem kallað
er „High Mobility Engineer Excavator“.
JCB's Fastrac One setti í júní 2019
heimsmet með hraðskreiðustu
dráttarvélinni sem skráð hafði verið
í heimsmetabók Guinness.
– Hefur framleitt 750 þúsund traktorsgröfur á ferlinum og veðjar nú á rafknúnar smágröfur og vetnisknúnar þungavinnuvélar
Viðgerðir og sala á alternatorum og startörum
í flestar gerðir bíla, báta og vinnuvéla.
Hjólastillingar, úrval af ljósum á kerrur og
eftirvagna, kerrutenglar, kaplar, perur og tengi.
Sendum um allt land.
www.pgs.is
pgs@pgs.is
s 586 1260
Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík
Alternatorinn eða
startarinn bilaður?