Bændablaðið - 19.11.2020, Page 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 2020 27
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STÝRISENDAR í flestar
gerðir dráttarvéla
forlag
Suðureyri – Athafnasaga
• Frá Suðureyri í Tálkna
firði stunduðu Norðmenn
hvalveiðar í tvo áratugi
• Kópur BA 138 var gerður
út á selveiðar í Íshafinu
• Íslensk hvalveiðistöð var í
fimm ár á Suðureyri
• Selveiðar í íshafinu frá
Austfjörðum og víðar
Fæst í bókabúðum og beint frá forlagi
Fyrir dreifbýlið: Forlagsverð kr. 3.000.
með sendingarkostnaði. Pantanir í síma 892 0855
eða á flokiforlag@internet.is
kynnir nýja bók
fiskikerum svo framarlega að þau
séu loftþétt. Hann segir þetta geta
verið sparnaðarleið fyrir sveitarfé-
lög við söfnun og förgun úrgangs.
Með aðferðinni verður til grund-
völlur fyrir lokun efnahringrásar.
Um leið opnast ný leið fyrir lífræna
bændur að bæta við áburðarúrræði.
Hráefnið til gerjunarinnar getur
verið af ýmsum toga; garðaúrgang-
ur, slegið gras, heyfyrningar, jafnvel
úrgangur frá mötuneytum og fleira.
Hann metur aðferðina um 60 prósent
ódýrari aðferð en moltugerð.
Cornelis telur að hægt verði
að minnka innflutning á tilbúnum
áburði um helming með nýtingu á
hinu gríðarmikla magni af lífrænum
úrgangi sem fellur til í dag og er ekki
notað inni í hringrásinni.
Jarðvegurinn ræktaður í
Skaftholti
Gunnþór Guðfinnsson er garð-
yrkjufræðingur sem stundar lífrænt
vottaðan landbúnað í Skaftholti í
Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Hann
fór yfir hugmyndafræði búskaparins
í Skaftholti, aðallega þá hlið sem
snertir jarðveginn.
Hann sagði að undirstaða alls
búrekstrarins á bænum væri að
rækta jarðveginn. Með því er
stuðlað að eðlilegri hringrás innan
býlisins og lífrænum vörnum er beitt
gegn óværu í gróðurhúsum. Einhver
aðföng þarf að sækja en reynt sé að
takmarka þau eins og hægt er.
Bændurnir í Skaftholti hafa séð
mikinn mun á jarðveginum í dag
frá þeim tíma þegar lífræn ræktun
hófst þar 1980, mun meiri frjósemi
hefur þar byggst upp. Auk þess
að nota lífræn efni eins vel og
hægt er í hringrásina, til dæmis
með safnhaugagerð, eru belgjurtir
ræktaðar eins og smári sem binda
nitur úr andrúmsloftinu og auka þar
með áburðinn í jarðveginum. Hann
útlistaði ágæti ánamaðka til að auka
frjósemi jarðvegsins og sagði mjög
mikilvægt að huga að því að rækta
þá ekki síður en plönturnar.
Í Skaftholti er blandaður búskap-
ur með grænmeti, korn og búfé – og
rakti Gunnþór hagnýt atriði í mis-
munandi greinum búrekstrarins
varðandi áburðargjöf og skipti-
ræktun.
Þörf á nýtingu á öllum
lífrænum úrgangi
Í síðasta hluta af erindi sínu
fór Gunnþór yfir hugleiðingar
sínar um áhættumat og ógnanir í
lífrænum búskap. Varðandi lífræna
áburðagjafa tók hann undir með
fyrri fyrirlesurum að mikið magn
hráefnis væri til staðar í landinu
sem væri í raun bara í röngum
farvegi. Hráefnið þyrfti að eiga
leið aftur inn í hringrásina, en þá
væri spurningin, með hvaða hætti
væri hægt að koma því aftur inn.
Í sumum tilvikum sé hægt að leita
til nágrannabæja til að sækja sér
hráefni, sem síðan sé hægt að
meðhöndla til að hægt sé að nota
sem vottaðan áburð.
Síðan ræddi hann um allan
hænsnaskítinn sem fellur víða
til en hefur að vissu leyti verið
bannaður sem áburðargjafi í
lífrænni ræktun. Þannig misstu
garðyrkjubændur í lífrænt vottaðri
ræktun þann möguleika á að nota
sveppamassa frá Flúðasveppum
sem áburðargjafa í sinni ræktun
þar sem hann innihélt hænsnaskít
frá kjúklingabúi. Hann hafði verið
undirstöðuáburður á nokkrum
garðyrkjubýlum.
Gunnþór sagði nauðsynlegt að
umræða yrði tekin um hvort ekki
eigi að hleypa svo mikilvægum
lífrænum úrgangi aftur inn í
hringrásina með einhverjum hætti.
Skortur á vottuðu fræi og
vottuðum sláturhúsum
Hann kom einnig inn á það
vandamál fyrir garðyrkjubændur
með lífræna vottun að það væri
nánast orðið að viðvarandi ástandi,
að ekki sé hægt að ganga að
vottuðu útsæði eða fræjum vísu,
sem væri óviðunandi, og það væri
verðugt verkefni að tryggja betur
stöðugleika á þessu sviði.
Að síðustu vék Gunnþór tali sínu
að lífrænt vottaðri kjötframleiðslu
og sagði talsverðan vanda til staðar
að ekki fleiri sláturhús væru með
lífræna vottun. Í tilfelli Skaftholts
væri það nú þannig að þar væru
bændurnir með vottaða gripi á fæti,
en sú vottun rofnaði um leið og
gripirnir væru komnir um borð í
gripabílana.
Lífrænt vottað inniheldur
meira af góðum efnum og
minna af slæmum
Prófessor Carlo Leifert er þýskur
doktor í örverufræði við Southern
Cross-háskólann í Lismore í
Australíu.
Hann útlistaði í sínum lestri niður-
stöður úr saman burðarrannsókn
á mismun í næringargildi lífrænt
vottaðra matvæla og hefðbundinna.
Hann greindi einnig frá víðtækri
könnun í Bretlandi og Þýskalandi
á innihaldsefnum í hveiti frá annars
vegar lífrænt vottuðum og hins vegar
hefðbundnum framleiðendum; bæði
varðandi næringarinnihald og einnig
óæskileg efni eins og skordýaeitur.
Loks fór hann yfir rannsóknir á mögu-
leg áhrif af neyslu lífrænt vottaðra
matvæla á heilsu fólks.
Lífrænt vottaðar jurtir, kjöt og
kúmjólk líklega heilnæmari
Varðandi fyrstu spurninguna, hvort
einhver grundvallarmunur væri í
næringargildi á milli lífrænt vottaðra
matvæla og hefð bundinna, vitnaði
hann til þriggja samanburðarann-
sókna; á uppskornum jurtategundum,
kúamjólk og kjöti – sem birtust í
British Journal of Nutrition á árunum
2014 og 2016. Þar er gögnum úr
öllum aðgengilegum vísindarann-
sóknum um efnið safnað saman og
niðurstöður gefnar út í samræmi við
samanteknar upplýsingar.
Þar er lífrænt vottuð matvæli
metin innihalda um tuttugu
prósent meira af andoxunarefnum
í uppskornum jurtategundum að
jafnaði, um fimmtíu prósent minna
af kadmíum-magni og fjórum
sinnum færri sýni innihalda leifar
skordýraeiturs að meðaltali.
Varðandi kjötafurðir þá gerir
rannsóknin ráð fyrir fimmtíu sinnum
hærra hlutfall Omega-3 fitusýrum í
lífrænt vottuðum og tíu prósent minna
af mýristínsýru og palmitínsýru, sem
eru taldar skaðlegar.
Í kúamjólk er gert ráð fyrir
fimmtíu og fimm prósentum meira
af Omega-3 fitusýrum í lífrænt
vottuðum vörum, fjörutíu prósent
hærra hlutfalli CLA-fitusýrum,
sem eru taldar hafa jákvæð áhrif á
líkamann, en sjötíu prósent lægra
hlutfalli af joði.
Unnið var úr niðurstöðum 343
rannsókna varðandi uppskornar
jurtategundir, 67 rannsóknum á kjöti
og 170 rannsóknum á kúamjólk.
Meira skordýraeitur í
hefðbundinni hveitiframleiðslu
Í niðurstöðunum í samanburðinum
á framleiðslu hveitis kemur í ljós
að í´87 prósent sýna í hefðbundinni
framleiðslu greindust einhverjar
leifar skordýrareiturs, en í 25 prósenta
sýna í lífrænt vottaðri framleiðslu.
Í 36 prósenta sýna í hefðbundinni
framleiðslu fundust leifar af fleiri en
einni tegund, en fjögur prósenta sýna
í lífrænt vottaðri framleiðslu.
Carlo sagði áhugavert að sjá í
niðurstöðunum að í hefðbundinni
hveitiframleiðslu hefði reynst vera
tvöfalt meira magn skordýraeiturs
í heilhveitimjöli, en í hvítu hveiti.
Í lífrænt vottuðu hveiti eru leifar
skordýraeiturs hins vegar svipaðar
í heilhveiti og hvítu hveiti.
Lífrænt vottað heilhveiti reyndist
innihalda mest af steinefnum
Niðurstaða hans er að lífrænt vottuð
matvæli reynast – í samanburði við
hefðbundin matvæli – innihalda meira
af góðum efnum fyrir líkamann,
en minna af þeim slæmu. Neysla
á lífrænum matvælum mun auka
næringarinnihald matarins meira
en neysla hefðbundinna matvæla.
Einnig minnkar neysla á lífrænt
vottuðum matvælum líkurnar á því
að innbyrða óæskileg efnasambönd
og eitruð. Rannsóknirnar bendi til
þess að ávinningurinn af neyslu
á lífrænt vottuðum matvælum sé
mestur hjá þeim neytendum sem
fylgja næringarviðmiðum um
aukið hlutfall heilkorna, ávaxta og
grænmetis í máltíðum.
Umfjöllun um erindi Sveins
Margeirs sonar, doktors í iðnaðar-
verkfræði, og Sunnu Hrafnsdóttur,
garðyrkjubónda með lífræna vott-
un á Ósi í Hörgársveit, bíður næsta
tölublaðs.
Prófessor Carlo Leifert, þýskur doktor í örverufræði við Southern Cross-háskólann í Lismore í Australíu, greindi
frá rannsóknum sem leiða líkur að því að lífrænt vottuð matvæli séu heilnæmari en hefðbundin.
Comac sótthreinsitæki
Sjáðu myndskeiðið á comac.is
Grensásvegi 16, Rvk. ✆ 445-4885
vortexvelar.is comac.is
Skorri ehf • Bíldshöfði 12 • 110 Rvk • 577-1515 • www.skorri.is
Öll hleðslutæki með afslætti fram að jólum
Hleðslutæki
20%
Afs
lát
tur
Jólatilboð!