Bændablaðið - 19.11.2020, Síða 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 202030
Alþjóðleg vitundarvika um skynsamlega notkun sýklayfja
Dagana 18.–24.nóvember er
árleg alþjóðleg vitundarvika um
skyn samlega notkun sýklalyfja.
Markmið þessarar viku er að
auka skilning og meðvitund um
sýkla lyfjaónæmi og hvetja til þess
að sýklalyf séu notuð skynsamlega
á öllum sviðum, hvort sem er hjá
mönnum eða dýrum.
Að vikunni standa Alþjóða
dýra heilbrigðisstofnunin (OIE),
Alþjóða heilbrigðistofnunin (WHO)
og Matvæla og landbúnaðarstofnun
SÞ (FAO) enda skiptir máli að sýkla
lyf séu notuð skynsamlega á öllum
þessum sviðum.
Hvað er sýklalyfjaónæmi?
Sýklalyfjaónæmi hefur verið mikið
í umræðunni hérlendis síðustu ár en
sumir velta e.t.v. enn fyrir sér hvað
það er. Sýklalyfjaónæmi er þegar
bakteríur hafa þróað með sér ónæmi
fyrir þeim sýklalyfjum sem virk
uðu áður á þær. Ef sýklalyf missa
virkni sína þá getur reynst erfitt að
meðhöndla sýkingar í mönnum og
dýrum.
Sýklalyfjanotkun skiptir máli þar
sem röng og/eða óhófleg notkun á
sýklalyfjum eykur líkur á að bakt
eríur myndi ónæmi fyrir sýklalyfj
um. Óhófleg notkun getur stafað af
of mikilli ávísun sýklalyfja meðal
lækna og dýralækna og aðgengi
almennings að sýklalyfjum án lyf
seðils, svo dæmi séu nefnd. Notkun
sýklalyfja til meðhöndlunar á
veirusýkingum og notkun sýklalyfja
sem vaxtarhvetjandi efni fyrir búfé
eru dæmi um ranga notkun sýkla
lyfja. Sýklalyfjanotkun í dýr er með
lægsta móti hérlendis í samanburði
við önnur Evrópulönd en þrátt fyrir
það er svigrúm til þess að gera enn
betur.
Allir hafa hlutverki að gegna í
baráttunni við sýklalyfjaónæmi og
berum við ábyrgð á því að leggja
okkar af mörkum í þeirri baráttu.
Bændur spila þar stórt hlutverk enda
bera þeir ábyrgð á heilbrigði og vel
ferð dýra sinna og það er lykilatriði
er kemur að sýklalyfjanotkun í dýr.
Forvarnir
Það sem við flest höfum lært á
þessu ári í COVID19 faraldrinum
er að smitvarnir er besta vörnin og
á það líka við um sýklalyfjaónæmi.
Með því að bændur hugi að góðum
smitvörnum og öðrum forvörnum,
svo sem bólusetningum, kynbótum
og bættri velferð dýra, leiðir það af
sér betra dýraheilbrigði og um leið
minni þörf á sýklalyfjum.
Eins og við höfum oft heyrt
þríeykið svokallaða segja skipta
persónubundnar smitvarnir mestu
máli í COVID19 faraldrinum,
þá bera bændur sjálfir ábyrgð á
smitvörnum á búum sínum og
orðatiltækið „bóndi ver þitt bú“
stundum notað í því samhengi.
Bændur þurfa að hafa í huga að
mesta hættan á að smit berist inn á
bú er með lifandi dýrum, þar á eftir
saurmegnuðum áhöldum, tækjum,
tólum og fatnaði. Fólk sem fer á
milli bæja starfa sinna vegna,
t.d. sæðingarmenn, dýralæknar,
klaufskurðarmenn, rúningsmenn,
viðgerðarmenn sem og aðrir gestir,
geta einnig borið með sér smit.
Bóndi getur iðkað góðar smitvarnir
með því að eiga til hlífðarfatnað og
stígvél fyrir gesti og fylgjast með því
að þjónustuaðilar komi ávallt með
hreinan búnað á búið. Hlífðarfatnað
búsins ætti að þvo reglulega og
vaskur ætti að vera nálægt inngangi
þannig að gestir búsins geti þvegið
sér um hendur áður en gengið er
lengra inn.
Oft og tíðum eru dýralæknar
einungis kallaðir til vegna sjúkra
dýra en bændur ættu líka að nýta
sér þekkingu þeirra, og annarra, í
forvarnarskyni. Bændur geta haft
samband við sinn dýralækni og leitað
eftir því að fá almennt heilbrigðismat
á búinu og ráðgjöf um hvað hægt
er að gera til að stuðla að bættum
smitvörnum og betra heilbrigði
hjarða sinna. Þannig er mögulega
hægt að fyrirbyggja hugsanleg
vandamál í staðinn fyrir að þurfa að
bregðast við þeim. Slík nálgun getur
fljótlega borgað sig fjárhagslega með
bættu dýraheilbrigði og auknum
afurðum.
Fræðsluefni
Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunin
hefur gefið út mikið upplýsingaefni
vegna sýklalyfjaónæmis sem er m.a.
beint að einstaka hópum hagsmuna
aðila. Þar má nefna fræðslu efni ætlað
bændum sem Matvælastofnun gaf
út á íslensku í fyrra. Um er að ræða
annars vegar bækling og hins vegar
einblöðung. Þar koma fram helstu
upplýsingar um sýklalyfjaónæmi
er varða bændur og hvað þeir geta
innleitt í sínum störfum til að draga
úr notkun á sýklalyfjum. Meðal
annars koma þar fram hinar fimm
„einungis“reglur þar sem þessi at
riði eru dregin saman á hnitmiðaðan
hátt. Fræðsluefnið er hægt að nálg
ast á heimasíðu Matvælastofnunar
og e.t.v. hægt að prenta út og hafa í
gripahúsum til áminningar.
Sameiginlegt verkefni allra
Eins og áður sagði er baráttan við
sýklalyfjaónæmi sameiginlegt ver
kefni allra, ekki eingöngu á sviði
dýraheilbrigðis. Baráttan við sýkla
lyfjaónæmi er undir formerkjum
„Einnar heilsu“, eða „One Health“
á ensku. Í því hugtaki er lögð áhersla
á að heilbrigði fólks, dýra og um
hverfis sé samtengt, að sýklalyf
jaónæmi berist í menn frá dýrum
og umhverfi, og öfugt. Þannig þarf
að grípa til ráðstafana með heild
stæðum hætti á öllum sviðum, þ.e.
með samstarfi á milli stjórnvalda,
bænda, dýralækna, heilbrigðisstarfs
manna, vísindamanna og almenn
ings, þar sem allir geta lagt sitt af
mörkum.
Guðrún Lind Rúnarsdóttir,
fagsviðsstjóri lyfjamála hjá
Matvælastofnun.
Vigdís Tryggvadóttir,
sérgreinadýralæknir
súna og lyfjaónæmis hjá
Matvælastofnun.
Guðrún Lind Rúnarsdóttir. Vigdís Tryggvadóttir.
Akureyri · Sími 465 1332
www.buvis.is
PA
NT
IÐ
TÍM
AN
LE
GA
Sænskar
snjókeðjur