Bændablaðið - 19.11.2020, Síða 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 202034
Matarauður Íslands að ljúka störfum:
Hefur notið góðs af breiðu samstarfi
við grasrót, atvinnulíf og stjórnvöld
Matarauður Íslands er tímabundið
verkefni sem heyrir undir sjávar-
útvegs- og landbúnaðar ráðherra
og lýkur nú í byrjun desember.
Vegna þessara tímamóta leitaði
Bændablaðið til verkefnastjóra
þess, Brynju Laxdal, sem hefur
stýrt verkefninu síðastliðin fjög-
ur ár.
„Matarauður hefur notið góðs
af breiðu samstarfi við grasrót,
atvinnulíf og stjórnvöld og við
höfum lagt okkar af mörkum til að
efla innviðastoðir matar í ferðaþjón-
ustu með þátttöku allra landshluta,
styrkja aðgerðir og áhuga á nærsam-
félagsneyslu, styðja við vöru- og
þjónustuþróun og tefla fram matar-
menningu og sérstöðu íslensks hrá-
efnis. Þá hefur Matarauður ýmist
leitt eða komið að stefnumótunar-
verkefnum sem tengjast matvælum.
Framlag Matarauðs hefur falist í
handleiðslu, ráðgjöf og fjármagni
til verkefna sem efla samfélagshags-
muni. Matarauður Íslands er ekki
sjóður heldur hefur það hlutverk að
leggja til og fjármagna verkefni sem
hæfa tilgangi verkefnisins. Mörg
verkefni hafa orðið til að frumkvæði
Matarauðs en önnur hafa orðið til
í kjölfar kynninga og tengsla við
grasrót og hagaðila,“ segir Brynja.
„Í upphafi snerist ein af
sóknaráætlunum Matarauðs um
mat í ferðaþjónustu en þá hafði
árlegur vöxtur ferðaþjónustunnar
numið allt að 25–30%. Það var svo
sem ekkert óeðlilegt þegar tók að
hægja á þessum vexti, hins vegar
átti enginn von á heimsfaraldri. Það
fer þó vonandi að hylla undir betri
tíð þannig að matarferðaþjónusta
geti blómstrað undir eðlilegum
kringumstæðum með þátttöku
íslenskra og erlendra ferðamanna,“
og bætir við að „matarferðaþjónusta
felur í sér ferðalag upplifunar á sögu,
hefðum og menningu í gegnum
mat“.
Hvernig getum við orðið
eftirsóttur mataráfangastaður?
„Okkar eigin ímynd, neysluhegðun
og orðræða myndar grunninn að
eftirsóknarverðum áfangastað mat-
væla og matarupplifunar. Þjónusta
og gæði þurfa að fylgjast að við
markaðssetningu og innviðir þurfa
að vera tilbúnir til að standa undir
fyrirheitum og væntingum. Að því
sögðu er mikilvægt að samræmi sé
innanlands sem utan í markaðssetn-
ingu Íslands sem mataráfangastaðar.
Íslensk matargerð hefur orðið fyrir
alþjóðlegum áhrifum sem er bara
eðlileg þróun, við megum samt ekki
gleyma uppruna okkar og hefðum.“
Við þurfum að bjóða upp á
margvíslega afþreyingu tengda
matarupplifun og eitt af verkefnum
Matarauðs hefur verið að styrkja
verkefni í öllum landshlutum til að
byggja upp nærsamfélagsneyslu
og mataráfangastað með samvinnu
bænda, smáframleiðanda, ferða-
þjónustu og annarra tengdra aðila.
Svona stefnumótunarverkefni eru
langhlaup og því mikilvægt að
þeim sé fylgt eftir. Mín reynsla
er að bændur hafa margir lítinn
tíma aflögu til að sinna nýsköpun
en eru oft frumkvöðlar í eðli sínu,
þess vegna skiptir máli að þeir hafi
sterkt stuðningsnet sem hvetur þá til
nýsköpunar og samstarfs við aðra
utan greinarinnar.
Á Íslandi er í raun ekki leyfilegt
að bjóða ferðamönnum heim til sín
í heimaeldaðan mat í atvinnuskyni
samkvæmt smáræðis reglugerðinni
og þó heimsóknir í handverksbrugg-
hús séu leyfilegar hérlendis þá má
ekki versla bjór til að taka með sér
heim. Hvort tveggja telst til mataraf-
þreyingar víða um heim. Aðrar mat-
arafþreyingar eru t.d. matreiðslunám-
skeið, matarstígar, leiðsögn heima-
manna um matarslóðir, heimsóknir
til bænda, heimsóknir á veitingastaði
sem bjóða upp á stað eða svæðisbund-
inn mat, götubitar og matarhátíðir. Í
dag eru neytendur æ meira að leita
eftir sögu á bak við matinn og tengja
við upplifun, menningu, sjálfbærni
og minni matarsóun. Neytandinn
vill heyra um framleiðsluhætti eins
og hversu sjálfbær eða vistvæn þau
eru og veitingahús þurfa að upplýsa
um eigin stefnu í matarsóun.
Að því sögðu þá er það mis-
skilningur að matarferðalangur sé
einhver uppskrúfaður miðaldra
matgæðingur, því fer fjarri.
Matarferðamaður er hins vegar
mun áhugasamari um matar- og
drykkjarupplifun í því landi sem
hann heimsækir og eyðir líka meira
en almennur ferðamaður.
Ég hef oft velt fyrir mér af hverju
nestisaðstaða á Íslandi er óvarin fyrir
veðri og vindum. Gætum við ekki
byggt nestisaðstöðu þar sem hanga
upplýsingar um staðbundinn mat og
leiðbeiningar um sölustaði? Kannski
væri hægt að hafa vel varinn skjá þar
sem hægt er að uppfæra upplýsingar
gegnum vefinn. En hver veit nema
í framtíðinni muni íslensk borg
skarta viðurkenningu UNESCO´s
City of Gastronomy eða hljóta
Foodtrekking awards.“ Brynja bætir
við að í framtíðinni sé mikilvægt að
safna betri svæðisskiptum innlendum
gögnum um hagrænan ávinning
matarferðamanna og viðhorfi þeirra
til matar til að átta sig á frekari
sóknarfærum. Enn fremur þarf að
gera úttekt á þeirri atvinnu sem
hefur skapast í kringum mat og
ferðaþjónustu.
„Mig langar líka að minnast á
verkefni sem Matarauður hefur leitt
ásamt ásamt Matís og Ferðaklasanum
og tengist staðbundnum mat og
ferðaþjónustu. Það heitir Nordic
Food in Tourism og heyrir undir
formennsku Íslands í Norrænu
ráðherranefndinni 2019. Við erum
að skoða framtíðarbreytingar á
matvælaframleiðslu, neyslumynstri
og ferðahegðun og tengja við
sjálfbæra ferðaþjónustu. Nýverið
lauk hakkathoni sem við unnum
í samstarfi við Hacking Hekla.
Vinningshugmyndin, Ó-mango,
gengur út á að rækta suðræna ávexti
hérlendis með frumuræktunartækni.
Nordic Food in Tourism lýkur í lok árs
2021 og eru fyrirhugaðar vinnustofur
snemma á næsta ári með íslenskum
hagaðilum,“ segir Brynja.
Hugarfar og orðræða
„Umræða og áhugi á matvælum sem
auðlind hefur breyst á þessum árum
og einkennist meira af tengingu við
umhverfisvernd, gæði, menningu
og tækifæri. Þá hefur orðið ákveðin
hugarfarsbreyting innan grasrótar,
bændur sýna því meiri áhuga að
færa sig ofar í virðiskeðjuna og
ferðaþjónustan hefur lagt mun
meiri áherslu á svæðisbundinn mat
og tækifæri því tengdu. Hugarfarið
stillir okkur saman en endurskoðun
á regluverki ásamt aðgengi að
fjármunum og sérfræðiráðgjöf þarf
að fylgja með,“ útskýrir Brynja.
Matarauður hefur unnið að vit-
undarvakningu með ýmsum hætti
og heldur úti vefsíðu með mikl-
um upplýsingum um matarauðinn
okkar. „Við höfum átt mjög farsælt
samstarf við Hótel- og matvæla-
skólann um vitundarvakningu á
íslensku hráefni í gegnum hug-
myndasamkeppni um þjóðlega rétti
og vannýtt hráefni. Nokkuð sem
skólinn ætlar sér að halda á lofti
þegar Matarauður hættir. Kokkar
eru okkar kyndilberar í notkun og
framreiðslu á íslensku hráefni og
hafa svo margt að kenna okkur.
Það væri líka metnaðarfullt ef
kjötiðninni yrði haldið á lofti sem
listgrein. Við þurfum að viðhalda
vitundarvakningu um íslensk mat-
væli sem byggir á undirliggjandi
rannsóknum sem styðja hreinleika
og jákvæð umhverfisáhrif.
Matur hefur marga snertifleti
Þau eru orðin æði mörg verkefnin sem
Brynja hefur komið að undanfarin
ár sem verkefnisstjóri Matarauðs
Íslands og segir hún fjölbreytnina og
gróskuna hafa vaxið hratt síðastliðin
ár. „Matarauður, í samstarfi við
Bændasamtökin, átti t.d. þátt í að
ýta REKO úr vör með málþingi sem
haldið var árið 2018 þar sem finnski
bóndinn og EMBLU-verðlaunahafinn
Thomas Snellman kynnti
hugmyndafræðina. Í dag eru starfandi
sex REKO hringir sem snúast um
milliliðalaus viðskipti bænda og
neytenda. Við höfum reynt að styðja
við smærri framleiðendur og þá sem
vilja selja beint af býli og erum m.a.
bakhjarlar samtaka smáframleiðenda
matvæla og höfum lagt áherslu á
varðveislu matarhandverks sem
er mikilvæg tenging við sögu og
samtíma. Viðskiptahraðallinn Til
sjávar og sveita er dæmi um verkefni
sem snýr að matarfrumkvöðlum og
nýsköpun og við þurfum að tryggja
að rekstrarumhverfi frumkvöðla
á sviði matvæla og heilsuefna
sé samkeppnishæft. Síðan er
sérstaklega gaman að sjá áhuga
á ýmsum náttúrunytjum eins og
matþörungum en áhugasamir geta
kíkt á vefsjá matþörunga á vefsvæði
Matarauðs. Vonandi eigum við
eftir að sjá fleiri verkefni innan
skólakerfisins í svipuðum dúr og
verkefni sem Matarauður styrkti,
s.s. Fræ til framtíðar, Krakkar kokka
og Sáum, sjáum og smökkum, sem
miða að því að efla skilning barna á
sjálfbærni í matvælaframleiðslu. Það
var líka mjög gaman að fá að vinna
við mótun innkaupastefnu matvæla
fyrir ríkisaðila árið 2019. Þar lögðum
við meðal annars áherslu á öflugt
samstarf við matvælaframleiðendur
og birgja, rekjanleika matvæla,
kolefnisreiknivél máltíða, lýðheilsu
og nýsköpun í samningum.
Búum okkur undir breytingar
„Nýr veruleiki blasir við okkur vegna
loftslagsáhrifa og neyslubreytinga
og heimsfaraldurinn af völdum
COVID-19 hefur kennt okkur
hversu mikilvægt fæðuöryggi er fyrir
þjóðina. Við eigum eftir að sjá hraðari
umbreytingar í matvælaframleiðslu
í takt við markaðshrynjanda og
eftirspurn. Foodtech á eftir að verða
stærri hluti af matvælaframleiðslu, ný
tækni, nýir próteingjafar, stafrænar
lausnir o.s.frv. Ég vona bara að 3D
matarprentarar verði ekki eitthvert
heimilistæki í framtíðinni. Það tekur
alla ástríðu úr matargerð.
Inniræktun grænmetis með
vatnsræktarkerfi mun vafalaust
fara vaxandi hérlendis og ég hef
orðið vör við mikinn áhuga á hvers
kyn matvælatengdri nýsköpun.
Hlutverk veitingahúsa hefur breyst
í heimsfaraldrinum, fleiri reiða sig á
heimsendingar, kokka að láni o.s.frv.
Erlendis eru sumir veitingastaðir farnir
að leggja mikið upp úr matarupplifun
gegnum sýndarveruleika.
Við hjá Matarauði vonum að
tilurð verkefnisins hafi lagt sitt af
mörkum við að halda á lofti okkar
frábæru auðlind sem matarauður
okkar Íslendinga er. Fram undan eru
tækifæri, við þurfum bara að vera
tilbúin að grípa þau.“ /ehg
MATVÆLI&FERÐAÞJÓNUSTA
Dómnefndin í samkeppni um bestu útfærsluna á vannýttu hráefni, Ragnar Wessmann Eliza Reid Gísli Matthías
Auðunsson.
Kristján þór Júlíusson tekur við innkaupastefnu matvæla fyrir ríkisaðila.
Kynning á viðskiptahraðlinum Til Sjávar og sveita.