Bændablaðið - 19.11.2020, Síða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 2020 35
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
GRAFAGRINDUR
GOTT ÚRVAL
Frá Bændasamtökum Íslands:
Fagráð í hrossarækt starfar samkvæmt
15 gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð
fer, meðal annarra verkefna, með stjórn
Stofnverndarsjóðs sem starfræktur er
samkvæmt ákvæðum í sömu lögum og
reglugerð nr. 1123/2015 um sama efni.
Verkefni sjóðsins eru að veita styrki til þróunar- og rannsóknaverkefna
í hrossarækt. Verkefnin skulu stuðla að viðhaldi verðmætra eiginleika í
íslenska hrossastofninum, verndun erfðafjölbreytileika stofnsins og/
eða auka þekkingu á stofninum og útbreiðslu hans. Fagráð í hrossarækt
auglýsir eftir umsóknum ár hvert og tekur ákvörðun um styrkveitingar.
Fagráð tekur ákvörðun um styrkveitingar í desember 2020. Nánari
upplýsingar fást hjá Bændasamtökunum. Frestur til að skila inn
umsóknum er til 1. desember 2020 og skal umsóknum skilað til:
Fagráð í hrossarækt
Bændahöllinni v/Hagatorg
107 Reykjavík.
Fagráð í hrossarækt.
Ljósmengun hefur áhrif
á heilsu dýra og manna
Sérfræðingar í Noregi, þvert á fag-
svið, hafa nú biðlað til stjórnvalda
að ráðast í aðgerðir vegna ljós-
mengunar sem getur verið skað-
leg bæði fyrir dýr og menn. Nú
hafa ljósahönnuðir, líffræðingar,
eðlisfræð ingar og lögfræðingar
tekið höndum saman til að minnka
notkun á ljósi svo sem við götulýs-
ingu og á upplýstum auglýsinga-
skiltum.
Vegard Lundby Rekaa er stjörnu
fræðingur við Solobser vatoriet og
einn af þeim sem sent hefur ákall
til stjórnvalda um að útbúin verði
reglugerð fyrir allt landið um notkun
á ljósi utandyra.
„Við höfum unnið skýrslu
sem send hefur verið til nokkurra
sveitarfélaga en það er ekki of seint
að stöðva of mikla notkun á ljósi
utandyra. Í dag er ekkert sveitar
félag sem hefur lýsingu sem lið í
til dæmis byggingarmálum þó að
þau hafi lagagrundvöll til að gera
kröfur um það. Von okkar er að
við náum breytingu á skipulags
og byggingarlögunum þannig að
lýsing verði einn þáttur áður en
byggingarleyfi er gefið út.
Við verðum að bregðast við
núna áður en það verður of seint
því ef það verður alltaf svona
mikið ljós getum við misst sjónar
á halastjörnum og vetrarbrautum.
Vandamálið hefur vaxið með LED
ljósaperum en þær eru sterkari en
venjulegar perur og hafa í sér bláan
lit sem er neikvæður fyrir heilsu
bæði dýra og manna. Við óskum
eftir því að slökkt verði á öllum
auglýsingaskiltum og ónauðsynlegri
lýsingu á opinberum byggingum
utan opnunartíma. Það sem er þó
alvarlegast í þessu er að ljós hefur
neikvæðari áhrif á skordýr en áður
var talið því það truflar frævun hjá
þeim.“ /ehg - NRK
Gólfhitakerfi
Ekkert brot ekkert flot
• Þægilegur hiti góð hitadreifing
• Hitasveiflur / Stuttur svörunartími
• Aðeins 12mm þykkar hitadreifiplötur
• Fljótlegt að leggja
• Ekkert brot ekkert flot
• Dreifiplötur límdar beint á gólfið
• Gólfefni lagt beint á dreifiplötur (flísar, parket)
• Hentar vel í eldra húsnæði jafnt sem ný hús og
sumarhús
• Flooré gólfhitakerfi er einfalt, fljótlegt og
þægilegt
Skemmuvegur 10 (blá gata) 200 Kópavogur
Sími 567 1330 Fax 567 1345 www.hringas.is
UTAN ÚR HEIMI
Tónahvarf 3 • 203 Kópavogur • Sími: 544 4210
verkfaeriehf.is • info@verkfaeriehf.is
AL-Blazer 2000 á lager
Vorum að fá þessa AL-Blazer 2000 hellulagningarvél með Hondu mótor
Frekari upplýsingar veitir: Gunnar Sig í 788 9399 eða gs@vvv.is