Bændablaðið - 19.11.2020, Síða 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 2020 39
„Skógrækt á lögbýlum“, áður
„Landshlutaverkefni í skógrækt“,
er verkefni sem Skógræktin hefur
umsjón með og veitir landeigend
um um land allt tækifæri til að
rækta skóg. Að minnsta kosti 640
jarðir eru samningsbundnar Skóg
ræktinni, en þessum samningum
fjölgar stöðugt. Markmiðin eru
ýmiss konar, fyrst og fremst að
byggja upp nýja skógarauðlind,
binda kolefni, skapa atvinnu,
styrkja byggð á landsbyggðinni, og
að auka lífsgæði fyrir bæði núver
andi og komandi kynslóðir.
Eflingu skógræktar má rökstyðja
á margan hátt, en kolefnisbinding er
ein þeirra röksemda og af mörgum
talin sú mikilvægasta. Loftslagsváin
og viðbrögð við henni er ein stærsta
áskorun 21. aldar, og skógrækt er
ómissandi aðferð til að draga úr
gróðurhúsalofttegundum eins og
kemur fram í Aðgerðaáætlun rík
isstjórnarinnar í Loftslagsmálum.
Mikilvægt er að nægt fjármagn fylgi
eftir eflingu skógræktar og til þeirra
sem rækta skóginn; bændurnir, aðrir
landeigendurnir og áhugasamt fólk
sem gegnir lykilhlutverki með því
að leggja til sitt land og útvega sér
og öðrum vinnu um leið.
Framlög til skógrækt á lögbýlum
voru 27% lægri 2019
en þau voru árið 2007
Framlög til skógarbænda saman
standa aðallega af framlagi til
plöntukaupa, gróðursetningar,
girðingavinnu og umhirðu skóga
eins og snemmgrisjun. Á meðfylgj
andi grafi sýna súlurnar framlög til
skógræktar á lögbýlum síðastliðin
12 ár. Þrátt fyrir lítils háttar aukn
ingu milli 2018 og 2019 má sjá að
framlög hafa lækkað síðan 2007. Til
dæmis voru framlög fyrir árið 2019
u.þ.b. 27% lægri en þau voru árið
2007. Þar sem hér er ekki tekið til
lit til þróunar vísitölu neysluverðs
má gefa sér að raunlækkun sé enn
meiri. Afleiðing af þessu er til dæmis
að fjöldi trjáplantna sem hægt væri
að gróðursetja hefur dregist saman,
meðal annars vegna verðhækkana
plantna á tímabilinu.
Stórfelld fækkun gróðursettra
plantna á lögbýlum
Gróðursettum plöntum hefur fækkað
um helming á tímabilinu eins og
sjá má á línu á meðfylgjandi grafi.
Lækkun framlaga hefur haft afgerandi
áhrif, t.a.m. á plöntuframleiðendur.
Plöntuframleiðendum fækkaði og
nokkrir fóru í þrot. Framboð á trjá
plöntum breyttist fyrir vikið. Frá 2017
og 2019 jókst plöntufjöldi um u.þ.b.
11%, sem er allt of lítið. Grundvöllur
aukinnar gróðursetningar fellst í tryggu
plöntuframboði. Plöntuframleiðendur
þurfa að skipuleggja sig fram í tímann
og til þess þarf að vera tryggt fjár
magn í verkefnið.
Fólk hefur áhuga á skógrækt og
til að efla skógrækt eru auknar
fjárveitingar nauðsynlegar
Margir, þar á meðal bændur og
aðrir landeigendur, hafa áhuga
á skógrækt. Hjá Skógrækinni er
mikil eftirspurn eftir samningum og
fjölgar jörðum með samning ört á
milli ára. Samningsbundið land sem
bíður til skógræktar verður því sífellt
stærra. Það er því augljóst að ekki
vantar áhuga fólks á að efla skóg
rækt á landinu, það vantar meira
fé. Væntanlegur framlög fyrir árið
2020 er hærri en fyrir árið 2019 og
gert er ráð fyrir áframhaldandi aukn
ingu árið 2021. Þessari þróun verður
að halda áfram. Með því að auka
fjárveitingar til skógræktar til auk
innar gróðursetningar eykst kolefn
isbinding í skógum á Íslandi. Auk
þess að byggja upp skógarauðlind
og ekki síst auka atvinnu fyrir bæði
núverandi og komandi kynslóðir.
Þess vegna er mikilvægt að fjárfesta
í skógrækt.
Fyrir hönd Landssamtaka
skógareigenda,
Naomi Bos
MS í búvísindum, formaður
Félags skógarbænda á
Vestfjörðum
og stjórnarmaður LSE
Hlynur Gauti Sigurðsson
framkvæmdastjóri LSE
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ALTERNATORAR í flestar
gerðir dráttarvéla
FÖGUR
ER SVEITIN
Eru gömlu byggingarnar orðnar vandamál?
Stafar af þeim fokhætta?
Eru þær lýti á umhverfinu?
Eða viltu losna við fasteignagjöldin?
Við bjóðum upp á teymi sem getur leyst þessi mál frá A-Ö,
eða eftir nánara samkomulagi.
Við sjáum um:
Öll samskipti við skipulags- og byggingarsvið viðkomandi
sveitarfélaga, öflun leyfa og skil á nauðsynlegum gögnum.
Samskipti við viðkomandi veitustofnanir vegna aftenginga
á heimtaugum.
Rif á byggingum, flokkun úrgangs og viðeigandi förgun.
Frágang á yfirborði eftir óskum viðskiptavinar.
HAFÐU SAMBAND OG
FÁÐU TILBOÐ Í VERKIÐ!
893 3960
beggi@hofdavelar.is
LANDSSAMTÖK SKÓGAREIGENDA
Þróun framlaga til skógræktar á lögbýlum
Grafið sýnir framlög til skógræktar á lögbýlum í milljónum króna (bláu súlurnar) og fjölda gróðursettra trjáplantna
á lögbýlum (rauða línan) á hverju ári milli 2007 og 2019. Grafið var unnið af Naomi Bos og byggir á gögnum úr
ársritum Skógræktarinnar (árin 2016-2019) og ársskýrslum landshlutaverkefnanna (árin 2007-2015).
LESENDABÁS
Ósanngjarn og stefnu-
laus kolefnisskattur
Kolefnisskattur er nýr skattur á
Íslandi. Hann er lagður á jarðefna
eldsneyti og á að draga úr útblæstri
og hvetja til orkuskipta í samgöng
um. Skatturinn mun hækka um
áramótin og verður 11,75 krónur
á hvern lítra af díselolíu og 10,25
krónur á bensíni, sem síðan hefur
áhrif til hækkunar verðbólgu.
Flutningskostnaður hækkar og um
leið verð vöru og þjónustu.
Skatturinn hefur hækkað veru
lega í tíð þessarar ríkisstjórnar.
Þegar ríkisstjórn Katrínar Jakobs
dóttur tók við völdum skilaði
skatturinn 3,5 milljörðum á ári. Á
þessu ári er hann rúmir 6 milljarð
ar. Hækkunin hefur haft neikvæð
áhrif fyrir heimilin og atvinnulífið
í landinu.
Einkum tvennt gerir það að verk
um að þessi skattur er ósanngjarn
og stefnulaus.
Hann er ósanngjarn vegna þess
að honum er ekki jafnað niður á
landsmenn með sanngjörnum hætti,
hann bitnar sérstaklega á efnaminna
fólki og landsbyggðinni. Í öðru lagi
er hann stefnulaus. Hann er settur á
í þágu loftslagsmála til að uppfylla
skuldbindingar Íslands í loftslags
málum en skatttekjurnar eru ekki
merktar aðgerðum í loftslagsmálum
sérstaklega og aðeins hluti þeirra
rennur þangað. Umhverfisráðherra
hefur viður kennt í skriflegu svari
við fyrirspurn á Alþingi að ekki
er hægt að segja til um það hvaða
árangri skattheimtan er að skila.
Skýrsla Hagfræðistofnunar
áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina
Hagfræðistofnun Háskóla Íslands
hefur gefið út skýrslu um áhrif
kolefnisgjalds á eldsneytisnotkun
heimilanna. Margt athyglisvert
kemur fram í skýrslunni og vekur
undrun hversu litla athygli fjöl
miðlar hafa sýnt henni. – Helstu
niðurstöður eru þessar:
1. Skatturinn bitnar á efnalitlu
fólki og hefur neikvæð áhrif á
kjör þeirra og neyslu.
2. Rökstyðja þarf betur hvers
vegna skatturinn er lagður á.
3. Skatturinn þarf að vera
mjög hár til þess að virka.
4. Landsframleiðsla og atvinna
minnkar eftir að kolefnisskattur
inn er lagður á.
Skýrslan er áfellisdómur yfir
kolefnis skattastefnu ríkisstjórnar
innar og staðfestir það sem Mið
flokkurinn hefur ávallt sagt um
þennan skatt.
Það er ekki forsvaranlegt að
leggja skatt á almenning með þess
um hætti þegar árangurinn er enginn
og hann bitnar verst á tekjulágu fólki
og íbúum á landsbyggðinni.
Birgir Þórarinsson
Höfundur er þingmaður
Miðflokksins í Suðurkjördæmi.
Birgir Þórarinsson.
Bænda
3. desember