Bændablaðið - 19.11.2020, Síða 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 202040
Á FAGLEGUM NÓTUM
Samvinna sem skilar árangri:
Öflugur stuðningur við smáframleiðendur á Norðurlandi vestra
Norðurland vestra er eitt stærsta
m a t v æ l a f r a m l e i ð s l u s v æ ð i
landsins. Þar eins og víða um land
hefur fullvinnsla bænda á afurðum
aukist á undanförnum árum enda
hefur það reynst ákjósanleg leið
fyrir bændur til að auka virðisauka
af framleiðslu sinni. Það er hins
vegar mikil vinna í því fólgin og
oft á sviðum þar sem þekkingu
skortir. Þó varan sé tilbúin á eftir
að markaðssetja hana og koma á
markað og oft er það á því stigi
sem skórinn kreppir hjá mörgum
smáframleiðendum matvæla.
Á undanförnum árum hefur, í sam-
vinnu nokkurra aðila á Norðurlandi
vestra, farið fram mikil vinna til að
skapa umhverfi sem styður bændur
og aðra smáframleiðendur í þessari
vegferð. Nú er svo komið að innviðir
í landshlutanum eru í stakk búnir til
að fylgja smáframleiðendum eftir
frá því að hráefnið verður til og þar
til það er komið á disk neytandans.
Upphafið
Segja má að upphafið megi rekja
aftur til ársins 2015 þegar BioPol á
Skagaströnd hlaut stuðning í gegnum
störf Norðvesturnefndarinnar
svokallaðrar til uppsetningar á
aðstöðu fyrir frumkvöðla og lítil
fyrirtæki í matvælaframleiðslu.
Þar gætu aðilar leigt vottaða
vinnsluaðstöðu, dag og dag, til
að vinna að framleiðslu sinni og
vöruþróun. Hafist var handa við
uppsetningu aðstöðunnar í lok árs
2016 og hún svo opnuð haustið
2017. Þórhildur M. Jónsdóttir
matreiðslumaður var ráðin til að hafa
umsjón með aðstöðunni og til að vera
framleiðendum innan handar. Starfar
hún enn við Vörusmiðjuna en einn
af lyklunum að árangri verkefnisins
liggur einmitt í góðu utanumhaldi
og þeim drifkrafti sem einkennir
starfsemi smiðjunnar.
Stuðningur úr Sóknaráætlun
Norðurlands vestra
Í framhaldinu var skilgreint, af stjórn
Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi
vestra (SSNV), áhersluverkefni
Sóknaráætlunar landshlutans sem
bar heitið Beint frá býli og hafði
það markmið að auka tekjur sauð-
fjárbænda á svæðinu með því að
styðja bændur í að afla sér þekk-
ingar á heimavinnslu matvæla,
vöruþróun, markaðssetningu og
sölu afurða. Verkefnið var unnið í
góðri samvinnu SSNV, Vörusmiðju
BioPol og Farskóla Norðurlands
vestra. Með þeim fjármunum sem
varið var til verkefnisins voru nám-
skeiðsgjöld vegna námskeiðsins
Beint frá býli niðurgreidd veru-
lega árin 2018-2019. Farskólinn
skipulagði námskeiðin og verklegi
hlutinn var haldinn í Vörusmiðju
BioPol. Þannig fengu þátttakendur
auk námsins kynningu á þeirri að-
stöðu sem í boði er í Vörusmiðjunni
og hafa fjölmargir þátttakendur í
námskeiðunum gerst tryggir við-
skiptavinir Vörusmiðjunnar í fram-
haldinu. Bóklega námið byggðist
á námskrá Fræðslumiðstöðvar at-
vinnulífsins, Vörusmiðja – Beint frá
býli, sem yfirfarin var og aðlöguð
lítillega að þörfum bænda á svæð-
inu. Námskeiðið náði yfir haust- og
vormisseri. Samtals luku 15 fram-
leiðendur náminu en árið áður hafði
Farskólinn skipulagt sambærilega
námslínu og luku þá 18 nemendur
námi.
Haustið 2018 var næsta skref í
vegferðinni tekið þegar Farskólinn
skipulagði röð sértækra námskeiða
fyrir smáframleiðendur. Námskeiðin
voru fjölbreytt, svo sem heitreyking
og reyking á villibráð, paté- og
kæfugerð, hrápylsugerð og fars-
, pylsu- og bjúgnagerð svo dæmi
séu tekin. Aftur var samstarfið milli
Farskólans og Vörusmiðjunnar með
sama hætti. SSNV niðurgreiddi
námskeiðsgjöld með fjármunum
úr áhersluverkefninu sem skilgeint
var 2017, svo hlutur þátttakandans
í námskeiðgjaldinu var með allra
minnsta móti. Námskeiðin voru
almennt vel sótt og góður rómur
gerður að þeim. Flest þessara
námskeiða eru aftur í boði hjá
Farskólanum nú á haustmisseri 2020.
… og hvað svo?
Eins og fram kom hér að framan
reynist markaðssetning og sala
framleiðslunnar smáframleiðendum
oft erfið. Til að aðstoða bændur við
að komast yfir þann þröskuld var
Vörusmiðjunni veittur styrkur úr
Uppbyggingarsjóði Norðurlands
vestra í upphafi árs 2020 til
uppsetningar á vefverslun þar sem
vörur smáframleiðenda yrðu boðnar
til sölu. Vefsíðan opnaði á haustdögum
2020 og hefur þegar fengið mjög
góðar viðtökur. Þar er hægt að versla
matvæli, fæðubótarefni, krem og
fleira sem framleitt er á Norðurlandi
vestra. Verslunin er aðgengileg á
heimasíðu Vörusmiðjunnar www.
vorusmidja.is. Með henni er komin
upp ný sölurás fyrir framleiðendur
en fæstir þeirra hafa burði til að opna
sínar eigin vefverslanir. Vörusmiðjan
hefur jafnframt bryddað upp á fleiri
nýjungum í markaðssetningu, t.d.
var fyrirtækjum á Norðurlandi vestra
boðnir tilbúnir samsettir pakkar með
vörum úr héraði til jólagjafa fyrir
starfsmenn svo dæmi séu tekin.
Það var svo í mars 2020 sem
ríkið veitti viðbótarfjármagni inn
í Sóknaráætlanir landshlutanna. Í
framhaldi af því ákvað stjórn SSNV
að bæta fjármagni við þá úthlutun
og veita allt að 50 milljónum króna
í sértæk átaksverkefni til að sporna
við áhrifum heimsfaraldurs í lands-
hlutanum. Kallað var eftir hug-
myndum að verkefnum frá íbúum á
svæðinu. Ein þessara hugmynda var
Sölubíll smáframleiðenda, nokkurs
konar sælkerabíll á hjólum og hlaut
hugmyndin brautargengi og styrk
upp á ríflega 5 milljónir króna. Eftir
nokkurn undirbúning fór verkefnið
af stað og í allt sumar var bíllinn á
ferðinni um Norðurland vestra og
seldi vörur smáframleiðenda á hinum
ýmsu stöðum. Bíllinn kom við í helstu
þéttbýliskjörnum en staldraði jafn-
framt við á fáfarnari stöðum, svo sem
á Borðeyri, Ketilási í Fljótum og á
Laugarbakka. Áætlun bílsins var vel
auglýst með dreifibréfum í hús sem
og á samfélagsmiðlum og eftir því
sem leið á sumarið jukust viðskiptin
jafnt og þétt. Undir lok sumars var
svo ákveðið að halda rekstri bílsins
áfram og mun hann til áramóta fara
um svæðið einu sinni í mánuði. Salan
hefur haldið áfram að aukast í þeim
ferðum sem farnar hafa verið nú í
haust og því ljóst að vitund íbúa á
svæðinu er að aukast jafnt og þétt.
Viðskiptavinir Sölubílsins koma aftur
og aftur til að ná sér í hágæða vöru.
Söluaðilarnir eru sömuleiðis ánægðir
með þetta framtak enda verður hér til
ný sölurás sem leitt hefur til þess að
sumir hverjir hafa margfaldað sölu
sína. Þessi leið hefur sömuleiðis verið
framleiðendum hvatning til að nýta
sér þjónustu Vörusmiðjunnar enda sjá
þeir að þar fá þeir ekki bara aðstoð við
framleiðsluna heldur líka við söluna.
Lyklar að árangri
Það þarf margt að ganga upp til að
svona heildstætt og stórt verkefni
beri árangur. Það fyrsta er auðvitað
fjármagn. Í þessu verkefni hefur
fjármagnið komið frá nokkrum
stöðum, beint frá ríkinu, úr
Sóknaráætlun Norðurlands vestra, frá
BioPol sem rekur Vörusmiðjuna, frá
Fræðslusjóði á formi niðurgreiðslu
námskeiðsgjalda. Verkefnið er
því gott dæmi um árangursríka
samfjármögnun ólíkra aðila.
Árangurinn er ekki síst að þakka
ómældu vinnuframlagi þeirra sem
að koma, starfsmanna Farskóla
Norðurlands vestra, Vörusmiðjunnar
og BioPol. Ekki síst hafa bændur
sjálfir lagt á sig mikla vinnu við nám
og framleiðslu sem er að sjálfsögðu
mikilvægasti þátturinn.
Það næst enginn árangur ef að
verkefnum sem þessum koma ekki
aðilar með skýra sýn og mikinn
eldmóð. Fjölmargir hafa að því
komið og skulu tveir nefndir hér
sérstaklega. Annars vegar Halldór
Gunnlaugsson sem hefur verið
verkefnisstjóri verkefnisins af hálfu
Farskóla Norðurlands vestra. Hann
hefur skipulagt þá kennslu sem fram
hefur farið af mikilli og góðri innsýn
og ekki síst áhuga á viðfangsefninu.
Hinn aðilinn, sem er alger lykill að
árangri verkefnisins, er Þórhildur
M. Jónsdóttir, verkefnisstjóri
Vörusmiðjunnar. Þórhildur er
algerlega óþreytandi í stuðningi
og hvatningu til framleiðenda á
svæðinu. Hennar sérþekking og
reynsla er framleiðendum ómetanleg
og ef eitthvað eitt má læra af þessu
verkefni þá er það nauðsyn þess að í
vottuðum vinnslurýmun af þessum
toga sé forsvarsmaður sem brennur
fyrir verkefninu og hefur kraft og
ekki síst úthald til að þoka því áfram.
Næstu skref
Vegferðinni er hvergi næri lokið á
Norðurlandi vestra. Farskólinn heldur
ótrauður áfram að bjóða námskeið
og fræðslu til smáframleiðenda.
Aðsókn í Vörusmiðjuna eykst jafnt
og þétt. Vefverslunin heldur áfram að
selja fyrir framleiðendur og Sölubíll
smáframleiðenda heldur áfram
að fara um svæðið. Sóknaráætlun
landshlutans mun áfram styðja
við verkefnið með myndarlegum
hætti og fyrir árin 2020 og 2021
hefur verið skilgreint verkefnið
Matvælasvæðið Norðurland vestra
sem Vörusmiðjan mun hafa umsjón
með og vinna náið með Farskólanum
og framleiðendum á svæðinu til að
efla fullvinnslu afurða enn frekar.
Verkefni sem þetta samræmist
enda vel áherslum Sóknaráætlunar
landshlutans um fullvinnslu afurða,
fjölgun vaxtarbrodda og stuðning við
grunnstoðir atvinnulífs á svæðinu.
Það er ekki að ósekju að verkefnið
hefur vakið athygli víða um land.
Eins og sjá má af samantektinni
hér að framan þurfa mörg púsl að
raðast saman svo úr verði heildstæð
mynd. Það er hins vegar fyllilega
fyrirhafnarinnar virði þar sem
ávinningurinn er mikill. Óhætt er
að segja að í þessu verkefni hafi
fjármunum verið vel varið til eflingar
byggðar og aukinnar sjálfbærni í
sveitum landsins.
Unnur Valborg Hilmarsdóttir,
framkvæmdastjóri
Samtaka sveitarfélaga
á Norðurlandi vestra
Úr vörusmiðjunni.
Námskeið í úrbeiningu folalds.
Þórhildur M Jónsdóttir, verkefnis-
stjóri Vörusmiðjunnar, hlaðin vörum
úr Sölubílnum.
Unnur Valborg Hilmarsdóttir.
Sölubíllinn.Úr sölubílnum.