Bændablaðið - 19.11.2020, Qupperneq 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 2020 41
Aðalfundur Landssamtaka sauð
fjárbænda fór fram í gegnum
fjarfundarbúnað fimmtudaginn
12. nóvember. Alls áttu sæti á
fundinum 39 fulltrúar. Fundar
störf gengu vel fyrir sig og er það
ekki síst að þakka þeim aðilum
sem lögðu hönd á plóg við undir
búning og framkvæmda fundar
ins. Stjórn LS vill ítreka þakkir
til fundarmanna og allra sem að
framkvæmd hans komu.
Stjórn LS starfsárið 2020-2021
skipa Guðfinna Harpa Árnadóttir,
formaður, Gunnar Þórarinsson,
Einar Guðmann Örnólfsson,
Trausti Hjálmarsson og Ásta F.
Flosadóttir. Trausti hlaut endur-
kjör sem fulltrúi í S hólfi og Ásta
var kosin ný inn í stjórn í stað
Böðvars Baldursson sem fulltrúi
í NA hólfi. Böðvar var að ljúka
þeim tíma sem hann mátti sitja í
stjórn. LS þakka Böðvari innilega
fyrir hans löngu og farsælu stjórn-
arsetu og býður Ástu velkomna
til starfa.
Í varastjórn voru kosin Sigvaldi H.
Ragnarsson, Hulda Brynjólfsdóttir
og Birgir Haraldsson.
Fundurinn var haldinn með
breyttu sniði frá því sem verið hefur.
Fundarformið var einfaldað og
fundartíminn styttur. Mál voru ekki
tekin fyrir í nefndum heldur fóru
fram almennar umræður um tillögur
sem stjórn lagði fyrir fundinn.
Félagskerfi bænda
Á fundinum var til umræðu félags-
kerfi landbúnaðarins og var sam-
þykkt ályktun sem styður við þær
tillögur sem Bændasamtökin hafa
lagt fram um breytingar á félagskerfi
bænda. Sú tillaga byggir á einum
öflugum hagsmunasamtökum með
beinni aðild félagsmanna og veltu-
tengdu félagsgjaldi.
Eftir umræðu um afkomu sauð-
fjárbænda var samþykkt tillaga um
að vinna að aðgerðaráætlun í sam-
vinnu við stjórnvöld sem byggir á því
að efla afkomuvöktun greinarinnar,
stuðla að hagræðingu í rekstri afurða-
stöðva og fara í aðgerðir sem stuðla
að aukinni framlegð í sauðfjárbúskap
og úrvinnslu sauðfjárafurða.
Ályktað um tollamál
Fundurinn ályktaði um tollamál
og er skorað á ríkisstjórn Íslands
að taka til endurskoðunar
framkvæmd tollverndar íslenskra
landbúnaðarvara með því að
endurskoða tollasamning við
Evrópusambandið, endurskoða
úthlutunaraðferð á tollkvótum,
rannsaka og gera úrbætur á
tollskráningu og eftirliti. Þá leggur
fundurinn til að innflutningur á
lambakjöti verði bannaður til að
neytendur verði verndaðir fyrir
svindli á uppruna lambakjöts.
Talsverðar umræður urðu um
niðurskurð vegna riðu. Í umræðum
kom fram að mikilvægt er að vinnu
við endurskoðun reglugerðar um
útrýmingu á riðuveiki verði flýtt og
að tekið verði tillit til þeirrar vinnu
þegar gerðir verða samningar við
þá bændur sem standa frammi fyrir
niðurskurði. Eftirfarandi ályktun var
samþykkt:
Aðalfundur Landssamtaka
sauðfjárbænda 2020, skorar á rík-
isstjórn Íslands að nú þegar verði
gerð endurskoðun á reglugerð nr.
651/2001 um útrýmingu á riðu-
veiki og bætur vegna niðurskurð-
ar. Niðurskurður vegna riðu á
einstökum bæjum er til hagsbóta
fyrir heildina og markmiðið á að
vera að fjárhagsskaði eigi ekki að
fylgja niðurskurði hjá bændum og
bætur eiga að miðast við það. Þá
skal bændum sem lenda í riðuniður-
skurði vera tryggður talsmaður hjá
Bændasamtökunum og/eða RML
til aðstoðar við samninga um
riðubætur. Jafnframt að sú endur-
skoðun verði höfð til grundvallar
þegar kemur að því að semja um
bætur við þá bændur sem nú standa
frammi fyrir niðurskurði vegna
riðu í Tröllaskagahólfi í ljósi þess
að Landssamtök sauðfjárbænda
og Bændasamtök Íslands hafa ýtt
á eftir nauðsynlegri endurskoðun
reglugerðarinnar í nokkur misseri.
Fyrirhugað er að aðalfundur 2021
verði haldinn dagana 25.–26. mars
2021 og er stjórn heimilt að flýta
fundi eða breyta fundarformi ef þörf
krefur.
Unnsteinn Snorri Snorrason
framkvæmdastjóri
Landssamtaka sauðfjárbænda
Aðalfundur LS 2020
- merkt framleiðsla
yfir 30 ára reynsla á Íslandi•
hurðir úr áli — engin ryðmyndun•
hámarks einangrun•
styrkur, gæði og ending — langur líftími•
háþróuð tækni og meira öryggi•
möguleiki á ryðfríri útfærslu•
lægri kostnaður þegar fram líða stundir•
Sveigjanlegar lausnir og fjölbreytilegt útlit hentar
mismunandi tegundum bygginga.
IÐNAÐAR- OG
BÍLSKÚRSHURÐIR
idex.is - sími: 412 1700
Byggðu til framtíðar
með hurðum frá Idex
Iðnaðar- og bílskúrshurðir úr áli
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
RÚÐUR Í
DRÁTTARVÉLAR
FRÁBÆR VERÐ
John Deere
Zetor
Case IH
McCormick
Steyr
Claas
Ford
Fiat
New Holland
Deutz-Fahr
Massey Ferguson
LANDSSAMTÖK SKÓGAREIGENDA
Ýmsar leiðir eru
til að binda kolefni
og jafna koltví
sýringslosun frá
athöfnum okkar og
starfsemi. En mikil
vægt er að allir geti
treyst því að sú kolefn
isjöfnun sem auglýst er
hafi raunverulega farið
fram. Þess vegna er
nauðsynlegt að kolefnis
jöfnun sé vottuð.
Ef leitað er eftir kolefn-
isbindingu með skógrækt til að
kolefnisjafna rekstur fyrirtækis
er mikilvægt að átta sig á mun-
inum á vottaðri kolefnisbindingu og
því að greiða fyrir kolefnisbindingu
án vottunar. Hver er eiginlega
munurinn á þessu tvennu og af
hverju er svona mikilvægt að votta
kolefnisbindingu? Hvað er vottun
og hvað á ég að velja?
Til að tryggt sé að kolefnisbinding
sé raunveruleg gera vottunarstaðlar
eftirfarandi kröfur:
• Varanleiki (e. Permanence)
Tryggt sé að kolefni sem tekið
hefur verið úr andrúmsloftinu
og geymt í skógi sé bundið þar
í þann skilgreinda tíma sem ver-
kefnið lofar.
• Viðbót (e. Additionality)
Verkefni er „viðbót“ ef það og
tilheyrandi aðgerðir eru ekki
áskildar í lögum og hefðu ekki
orðið að veruleika án viðkom-
andi verkefnis.
• Kolefnisleki (e. Leakage)
Losun koltvísýrings sem til-
heyrir ekki bókhaldi viðkom-
andi verkefnis en verður þó
til af völdum þess. Dæmi um
þetta getur verið landbúnað-
arstarfsemi sem færð er frá
einum stað til annars og veldur
þar skógareyðingu eða þyngri
nytjum á skóglausu landi.
Þá er mikilvægt
að ekki verði til tvítalning
(e. Double-counting) á kolefnisein-
ingum þegar kemur að því að nota
kolefnisbindingu til að jafna á móti
losun þannig að enginn vafi leiki á
fullyrðingum um kolefnishlutleysi.
Þetta er tryggt með því að skrá
kolefniseiningar í sérstaka kolefnis-
skrá. Í kolefnisskránni er haldið utan
um inneign, viðskipti og afskrán
ingu á vottuðum kolefniseiningum.
Kolefnisverkefni skulu tryggja
að kolefnisbinding sé vottuð sam-
kvæmt viðurkenndum stöðlum s.s.
Skógarkolefni, VERRA - Verified
Carbon Standard (VCS) eða Gold
Standard. Þetta eru óháðir staðlar
sem hafa verið samdir af óháðum
þriðja aðila. Vottun er strangt ferli
sem veitir sjálfstæða staðfestingu
á losun og tryggir að kolefnisjöfn-
un þín sé raunveruleg og varan-
leg. Gæði kolefniseininga verða
því ekki tryggð nema með vottun
frá slíkum aðila. Þegar þú velur
kolefnisbindingu skaltu leita að
annað hvort vottuðum eða a.m.k.
staðfestum verkefnum til að tryggja
gæði fjárfestingar þinnar og að um
ósvikna kolefnisbindingu sé að ræða.
Verkefni sem selja kolefn-
isbindingu án vottunar veita ekki
næga tryggingu fyrir því að kolefn-
isbindingin
sé raunveruleg.
Það þýðir að allar
fullyrðingar um kolefnishlutleysi eru
óstaðfestar og þar með er ekki hægt
að sýna fram á með óyggjandi hætti
að kolefnisbindingin hafi farið fram.
Þetta getur leitt til þess að fyrirtæki
sem keypt hafa óvottaðar kolefnis-
einingar komast að því síðar að fjár-
festing þeirra er ekki ósvikin. Ef svo
reynist nýtast þessi útgjöld ekki til
kolefnisjöfnunar í loftslagsbókhaldi
fyrirtækisins.
Þó að það kunni að virðast fjár-
hagslega skynsamlegt að kaupa
óstaðfesta kolefnisbindingu, sérstak-
lega ef umrætt verkefni lítur út fyrir
að vera raunverulegt, þá er mögulegt
að til verði „fölsk eign“. Ef fyrirtæki
hefur haldið fram kolefnishlutleysi
við viðskiptavini sína og samfélagið
allt en svo kemur upp úr dúrnum að
fullyrðingarnar reynast rangar getur
það valdið fyrirtækinu álitshnekki
og ómældu fjárhagslegu tjóni. Enn
fremur má segja, að með því að
kaupa óstaðfesta kolefnisbindingu sé
verið að koma í veg fyrir að fé renni
til vottaðra verkefna sem tryggja að
viðkomandi aðgerð hafi raunveru-
legan loftlagslagsávinning.
Gunnlaugur Guðjónsson
Skógræktin
Af hverju að votta kolefnisbindingu?