Bændablaðið - 19.11.2020, Qupperneq 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 202042
Nautgriparækt og mjólkurfram-
leiðsla á sér langa hefð í Danmörku
en um þessar mundir eru liðin 125
ár frá því að markvisst skýrslu-
hald hófst í landinu með stofnun
ræktunarfélaga en með því skap-
aðist grunnur að öflugu kynbóta-
starfi í búgreininni.
Síðan fyrstu félögin litu dagsins
ljós hefur mikið vatn runnið til sjáv-
ar og í dag er afurðasemi danskra
kúa sú mesta í Evrópu að jafnaði en
meðalnytin er nú komin yfir 10.500
kíló. Þá eru dönsku svartskjöldóttu
kýrnar, sem eru hluti af ræktunar-
kjarna Holstein kúa í heiminum, með
afburða meðalnyt og líklega þá næst
hæstu í heimi sé litið til helstu mjólk-
urframleiðslulandanna og stefnir
ársnyt þeirra hratt í 12 þúsund kíló.
Mikil fækkun kúabúa
Árið 1975 voru um það bil 45
þúsund kúabú í Danmörku með
3,6 milljónir nautgripa en í dag er
þessi tala mun lægri eða um 3.500
bú og ekki nema 1,6 milljónir
nautgripa. Þetta er mikil fækkun
bæði búa og nautgripa en þrátt
fyrir þessa miklu breytingu hefur
mjólkurframleiðslan ekki minnkað
á þessu tímabili og raunar vaxið!
Nautgripakjötsframleiðslan hefur
þó dregist saman af skiljanlegum
ástæðum. Þessi þróun, sem er alls
ekki óáþekk því sem við þekkjum
hér á landi og raunar þekkist í svo
til öllum Vestrænum löndum, hefur
fyrst og fremst verið möguleg vegna
mikilla framfara í bæði tækni og
ræktun þar sem bændur, ráðunautar
og vísindafólk hafa unnið saman að
því að ná þeim árangri að auka nyt
kúnna.
Skýrsluhaldið hornsteinn
framfara
Ein af grunnforsendum þessa ár-
angurs er þó skilvirkt skráningarstarf
bænda við að skrá gripina, nyt og
afdrif inn í hið sameiginlega skýrslu-
haldskerfi. Dönsku bændurnir voru
reyndar lengi vel heldur andsnúnir
því að standa í skráningum og skýr-
sluhaldi almennt en eftir því sem árin
liðu kom betur og betur í ljós hve
mikill ávinningurinn var af því að
vera með öflugt skýrsluhaldskerfi
og því jókst áhugi bænda á því að
vera með í kerfinu. Danska kerfið er
nokkuð frábrugðið því sem þekkist
í ýmsum löndum þar sem dönsku
bændurnir greiða fyrir að taka þátt
í skýrsluhaldi. Danir telja það far-
sælasta kerfið til að ná árangri því
það leggur ábyrgð á herðar þeirra
sem stjórna kerfinu um að þróa það
stöðugt svo notendurnir fái nógu
mikið út úr því.
Ráðgjöf og rannsóknir
mikilvægar
Auk skýrsluhaldsins hefur það skipt
danska kúabændur megin máli
einnig að hafa aðgengi að öflugri
ráðgjafastarfsemi auk þess sem há-
skólarnir tveir, í Kaupmannahöfn
og Árósum, hafa báðir sérstakar
búfjárdeildir sem sinna nautgripa-
ræktarrannsóknum af miklum
myndarskap þó svo að nokkuð
hafi dregið úr rannsóknastarfsemi
Kaupmannahafnarháskóla síðustu
árin. Danskir bændur hafa flestir
aðgengi að einskonar framleiðslu-
ráðgjöf þar sem allt búið er undir
og horft í raun á búið frá haga yfir í
mjólkurbíl. Að hverju búi geta svo
komið mismunandi ráðgjafar eftir
því hvar þarf að bæta úr eða hvar
hægt er að gera betur. Þetta getur
snúið að fóðurframleiðslunni, kyn-
bótunum, mjólkurgæðunum eða
hverju því sem skýrsluhaldið sýnir
að búið sé að dragast aftur úr öðrum
dönskum búum.
Kvægdatabasen er lykillinn
Danir starfrækja, auk hins hefð-
bundna skýrsluhalds, afar öflugan
gagnagrunn þar sem vistaðar eru, auk
skýrsluhaldsupplýsinganna, upplýs-
ingar afurðastöðvanna um innlegg
búanna, skráningar dýralækna á vitj-
unum og heilsufarsupplýsingum bú-
anna, sæðingaskýrslur, gripaskrán-
ingar hins opinbera og margt fleira.
Þessi gagnagrunnur er kallaður
Kvægdatabasen sem e.t.v. mætti kalla
Nautgriparæktargagnagrunnurinn á
íslensku en þetta kerfi er einstakt á
heimsvísu þar sem öll gögn, bæði
bænda, þjónustuaðila og hins op-
inbera eru sameinuð í einum og
sama gagnagrunninum. Aðgengið
að þessum víðtæku gögnum hefur
komið danskri nautgriparækt í
fremstu röð í heiminum sem er hreint
mögnuð staða þessa litla lands.
Gögnin gera það svo að verkum að
hægt er, með afar öflugum og þró-
uðum hugbúnaði, að tvinna saman
hin ólíku gögn og draga út helstu at-
riði þar sem búið víkur frá heildinni
og hvar þurfi að beita kröftum bænd-
anna hverju sinni. Danir kalla þetta
ferli að nota stafræn gögn og niður-
stöður líkana sem byggja á vísindum
við bústjórn í stað stakra ákvarðana
byggðum á upplifun eða tilfinningu
bænda.
11.642 kíló mjólkur
En hvernig er þá staðan í dag í
Danmörku? Eins og áður segir þá
hefur kúnum fækkað mikið og bú-
unum einnig en meðalafurðirnar
vaxið. Þetta er þróun sem á sér svo
sem stað um allan heim og er ekki
sérstakt fyrir þær sakir. Það er þó
þróunin sem hefur átt sér stað á síð-
ustu 30 árum sem er einkar áhuga-
verð en árið 1991 var meðalbúið í
Danmörku með 43 árskýr og með-
alnytin, umreiknuð sem orkuleiðrétt
mjólk, 7.029 kg. Alls ekki langt frá
því sem er staðan á Íslandi í dag.
Bústærðin jókst svo jafnt og þétt
og afurðirnar líka og um aldamótin
Á FAGLEGUM NÓTUM
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Af öllum þeim tegund-
um afskorinna blóma
sem eru ræktaðar á
Íslandi í dag býður ein
þeirra upp á óvenjulega
fjölskrúðugt litaúrval
og blómfegurð. Þessi
tegund er gerbera, sem
einnig hefur verið köll-
uð glitkarfa á íslensku.
Hún hefur verið ræktuð
hér í áratugi og nýtur
verðskuldaðrar athygli
hjá blómafólki.
Gerbera er af körfu-
blómaætt, eins og túnfífill,
baldursbrá, hóffífill, vallhumall og
margar fleiri tegundir úr íslenskri
náttúru. Þótt körfublómaættin sé
afar tegundaauðug telur gerberu-
ættkvíslin aðeins um 30 tegundir.
Þær vaxa villtar á suðurhveli jarðar,
í Suður-Afríku, Suður-Ameríku og
í Tasmaníu. Sú tegund sem er notuð
í ræktun á uppruna sinn að rekja
til Mpumalanga-héraðs í Suður-
Afríku. Þar þrífst hún í graslendi
í sendnum og þurrum jarðvegi.
Á ensku kallast tegundin ýmist
Transvaal-daisy eða Barberton
daisy.
Uppgötvuð í Afríku
Ættkvíslin var fyrst uppgötvuð
í Afríku af hollenska
grasafræðingnum Jan Frederik
Gronovius árið 1737. Hann nefndi
ættkvíslina til heiðurs vini sínum,
Traugott Gerber, sem var læknir
að mennt en lagði sig eftir leit að
lækningajurtum. Sú tegund sem
við þekkjum í ræktun, Gerbera
jamesonii, er nefnd eftir skoska
gullleitar- og athafnamanninum
Robert Jameson. Robert þessi fann
tegundina þar sem hún óx nærri
gullnámum hans í S-Afríku og að
endingu barst hún til grasafræðinga
í Kew á Englandi. Henni var fyrst
lýst árið 1889. Tegundin þótti
forvitnileg en var ekki tekin til
ræktunar af alvöru fyrr en um 1950.
Síðan þá hefur hún heldur betur
slegið í gegn.
Ræktun, kynbætur
og fjölbreytt notkun
Gerbera er nothæf sem pottablóm
og erlendis er hún víða notuð sem
fjölær garðplanta. Langvinsælust
er hún samt til afskurðar. Eins og
títt er með plöntur hefur gerbera
verið kynbætt töluvert eftir að
sýnt þótti að hún yrði hentug til
ræktunar. Leitast er við að ná fram
auknum gæðum í ræktun, litaúrvali
og endingu. Það starf hefur skilað
sér ljómandi vel enda er tegundin
í fimmta sæti yfir vinsælustu
afskornu blómin í heiminum í dag.
Ótal afbrigði gerberu eru í boði og
framboð á þeim fer ekki síst eftir
því hvernig tískustraumar leika
um okkur. Litaúrvalið er nánast
óendanlegt og stærð, lögun og útlit
blómkörfunnar er að sama skapi
fjölbreytt.
Daglengdin skiptir máli
Íslenskir framleiðendur eru
framsæknir og rækta gerberu allt
árið með notkun vaxtarlýsingar.
Daglengdin hefur áhrif á
blómgunina. Ef daglengdin er
sem næst 12 klukkustundir á
sólarhring er blómmyndunin
örust en á sumrin þegar dagurinn
er lengstur reynist erfiðara að halda
henni í hámarki. Ræktendur hafa
því hagað ræktuninni þannig að á
sumrin, þegar notkun landsmanna
á afskornum blómum er hvað
minnst, er hægt á framleiðslunni og
plönturnar byggðar upp en á veturna
geta ræktendur stýrt daglengdinni
með vaxtarlýsingunni.
Hægt er að fjölga gerberu
með sáningu og fást þannig
frambærilegar plöntur. Algengara
er samt að notast við skiptingu
plantnanna eða sérhæfða fjölgun
með vefjaræktun.
Þegar kemur að uppskeru eru
blómin tekin a.m.k. annan hvern
dag og geymd í kæli. Reglulegir
flutningar frá framleiðendum
tryggja að íslenskar gerberur koma
ferskar á markaðinn.
Ingólfur Guðnason
námsbrautarstjóri
garðyrkjuframleiðslu
Garðyrkjuskóla LbhÍ
Reykjum, Ölfusi.
Gerbera – óvenju glæsilegt
blóm til afskurðar
Íslenskir framleiðendur eru framsæknir og rækta gerberu allt árið með
notkun vaxtarlýsingar.
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
SDM kúakynið (Sortbroget Dansk Malkerace) kallast í dag oftast einfaldlega danska Holstein kúakynið (DH) en kýr
af þessu kyni eru langalgengastar í Danmörku í dag og um 70% allra kúa í skýrsluhaldinu eru af DH kyni.
Dönsku kýrnar stefna
hratt í 12 tonna ársnyt
Jersey kúakynið er næstalgengasta mjólkurkúakynið í Danmörku en um 13%
allra kúa landsins sem eru í skýrsluhaldi eru af þessu kyni.
Gerbera er af körfublómaætt, eins og túnfífill,
baldursbrá, hóffífill og vallhumall.
Gerbera er nothæf sem pottablóm
og erlendis er hún víða notuð sem
fjölær garðplanta.