Bændablaðið - 19.11.2020, Side 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 2020 43
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
SETTU TÆKIN ÞÍN
Á NEGLD DEKK
Maxam dekkin eru hagkvæmur kostur
og hafa reynst vel við krefjandi aðstæður.
Þú færð Best Grip
naglana hjá okkur
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KÚPLINGAR í flestar
gerðir dráttarvéla
var meðalbúið í Danmörku komið
í 67 árskýr og 7.719 kg meðalnyt
(orkuleiðrétt). Áratug síðar hafði
meðalbúið tvöfaldast að stærð og
var komið í 139 árskýr og með-
alnytin hafði stokkið upp í 9.399
kg orkuleiðréttrar mjólkur og nú
er meðalbúið með 220 árskýr og
11.642 kg orkuleiðréttrar mjólkur.
Þess ber að geta að þessar tölur eiga
við um kúabú í hefðbundinni mjólk-
urframleiðslu en ekki lífrænt vottaðri
mjólkurframleiðslu en meðalafurðir
kúa á þeim búum eru að jafnaði
nokkur hundruð kílóum minni.
Svipuð þróun hér á landi?
Það er áhugavert að bera saman
þróun á meðalafurðum á milli Íslands
og Danmerkur og þó svo að munur
sé á afurðasemi ólíkra kúakynja þá
er þróunin alls ekki ósvipuð. Árið
1991 voru meðalafurðirnar hér
á landi 4.179 kg á árskúna (ekki
orkuleiðrétt) og meðalbúið með 23
árskýr. Um aldamótin voru með-
alafurðirnar komnar í 4.657 kg og
meðalbúið þá með 26 árskýr. Áratug
síðar voru meðalafurðirnar komnar í
5.342 kg og meðalbúið stokkið upp
í 39 árskýr og um síðustu áramót
voru afurðirnar að jafnaði 6.334 kg
og árskúafjöldinn 48 kýr. Ef þessar
afurðatölur eru bornar saman við
dönsku þróunina þá voru danskar
kýr (öll kúakynin) með að jafnaði
4.192 kg árið 1960 sem er ekki
langt frá afurðunum hér á landi árið
1991. 11 árum síðar, árið 1971, voru
dönsku meðalafurðirnar komnar í
4.660 kg sem eru svipaðar afurðir
og voru hér á landi um aldamótin.
Svo voru dönsku meðalafurðirnar
komnar í 5.470 kg árið 1982 þ.e.
ekki langt frá stöðunni eins og hún
var hér á landi árið 2010. Árið 1987
voru dönsku meðalafurðirnar svo
komnar í 6.391 kg sem er ekki langt
frá síðustu áramótastöðu hér á landi.
Af þessu sést að þróunin er alls ekki
svo frábrugðin á milli landanna, ís-
lensku kýrnar eru á sömu leið og þær
dönsku en eru u.þ.b. 30 árum á eftir
þeim. Þess ber þó að geta að upp úr
1990 tóku dönsku kýrnar að herða
heldur á sér og eftir að hafa bætt við
um 1.000 kg af mjólk á hverjum ára-
tug fram að því liðu ekki nema 6-7
ár eftir það til að bæta við hverjum
1.000 kg af mjólk að jafnaði.
Hámarksgetu náð?
Þegar horft er til afurðasemi kúa og
það óháð því kúakyni sem bændur
ólíkra landa eru að nota þá er dag-
ljóst að meðalkýrin á enn mikið inni
af ónýttri erfðagetu til að framleiða
meiri mjólk. Þetta sést ágætlega
með því að skoða þann árangur
sem bestu bú hvers lands eru að
ná í samanburði við meðalbúin.
Flestir eru að nota sama erfðaefnið
og byggja bú sín á sæðingastarfsemi
en munurinn á búunum felst oftast
í mismunandi bústjórn. Ætla má
að geta kúnna til að mjólka mikið
sé til staðar í flestum kúm en það
hvernig þær eru aldar, fóðraðar
og almennt séð hirtar hefur mis-
mikil áhrif til mögulegrar fullrar
nýtingar á þessari ætluðu afurða-
semi. Þannig er í dag horft til þess
að þegar Holstein kvígur fæðast í
dag, þá séu þær með fræðilega getu
til þess að mjólka 80-100 kg á dag
að jafnaði en þeim árangri nær í
raun ekki nokkurt bú í heiminum í
dag með allar kýrnar sínar. Einstaka
kýr ná því að mjólka í kringum 25
tonn og jafnvel upp í 30 tonn á einu
mjaltaskeiði en því fer fjarri að allar
kýrnar á búunum nái þeim árangri.
Þannig eru bestu búin í heiminum í
dag að ná 50-53 kg að jafnaði á dag
og því eiga þau nú þegar töluvert
inni og má skrifa ástæðu þess að
ekki náist betri árangur að mestu
á bústjórnina á búinu sjálfu en bú-
stjórnin skiptir lang mestu máli
þegar horft er til afurðasemi kúa,
en vissulega hafa fleiri atriði áhrif
einnig en vega mun minna. Þetta á
vel við hér á landi einnig en bestu
kýr landsins eru að ná rúmlega 14
tonnum í ársnyt og hafa hámarks-
afurðir kúa verið að aukast jafnt og
þétt undanfarin ár. Það nær þó ekk-
ert bú hér á landi þessum afurðum
að jafnaði, rétt eins og á við um
erlendu búin með erlendu kúakynin.
Af því gefnu að kynbótastarf
haldi áfram að skila árangri er því
alllangt í það að hámarks fram-
leiðslugetu verði náð og mögulega
næst hún aldrei hvorki hér á landi né
erlendis. Afurðir munu halda áfram
að vaxa bæði hér heima og erlendis
og afurðasemi íslenskra kúa mun
klárlega halda áfram að aukast á
hverju ári á komandi árum og ára-
tugum en líklega mun þó aldrei sá
tími koma að íslensku kýrnar nái
í skottið á hinum svartskjöldóttu
dönsku kúm, enda eru þær með
þeim bestu í heimi í dag og spáir
greinarhöfundur því að ekki líði
á löngu þar til þær hafi náð fyrsta
sætinu af frænkum sínum í Ísrael.
Byggt á upplýsingum frá Henrik
Nygaard (Kontrolforeningens
125 års jubilæum) auk gagna
frá þeim Uffe Lauritsen og
Guðmundi Jóhannessyni.
Rauða danska kúakynið, sem heitir RDM kúakynið (Rød Dansk Malkerace),
er þriðja algengasta mjólkurkúakynið í Danmörku og um 5% allra kúa í
skýrsluhaldinu eru af þessu kyni.
Bænda
3. desember
Tónahvarf 3 • 203 Kópavogur • Sími: 544 4210 • verkfaeriehf.is • info@verkfaeriehf.is
Merlo TF 33.7-115, árgerð 2020
Erum með þennan vel búna Merlo til afhendingar í desember
• Vinnuþyngd: 6,500 kg.
• Hámarks lyftigeta: 3,300 kg.
• Hámarks lyftihæð: 6,6 m.
• Lyftihæð með hámarks þyngd: 5,7 m.
• Hámarks lyftigeta í hámarkshæð: 2,600 kg.
• Heildarlengd á gálga fram (Ekki upp): 3,5 m.
• Hámarks lyftigeta í mestu lengd fram: 1,350 kg.
• Mótor: Deutz stage IV-T4f 115 hestöfl
• Skipting EPD Top
• Hámarkshraði: 40 km. á klst.
• Dekk 400/70-24
• Læsanlegt fram- og afturdrif
• Merlo CDC (Dynamic Load Control)
• ROPS/FOPS ekilshús
• Rúðuþurrka á þakglugga
• Dempun á bómu BSS Merlo
• Loftkæling
• Joystick stýring á bómu
• Dráttarkrókur
• Vökvadæla LS
• Vökvaflæði 210-125 (l/mín-bar)
• Aukalagnir á bómu fram á hraðtengi
• Flot á göfflum
• Vökva og rafmagnstengi að aftan
• Hraðtengi
• Fjórhjóladrif
• Fjórhjólastýri
• Sjálfvirk bremsa þegar sett er í Park
• LED ljósabúnaður á húsi, 2 að framan og
2 að aftan
• LED ljós á bómu
• Master útsláttur á rafkerfi
Frekari upplýsingar hjá Gunnari Sig. í síma 788 9399
Verð: 13
.350.00
0 kr. + v
sk.