Bændablaðið - 19.11.2020, Qupperneq 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 202044
Á FAGLEGUM NÓTUM
Hrútaskráin 2020
Gert er ráð fyrir að hrútaskráin
komi út í lok þessarar viku. Í hefð
bundnu árferði myndi útgáfunni
vera fylgt eftir með kynningar
fundum víðsvegar um landið af
Búnað ar samböndunum og RML.
Í ljósi samkomutakmarkana verð
ur ekki hægt að bjóða upp á þessa
fundi í ár. Í staðinn verður tekin
upp kynning á hrútunum sem verð
ur aðgengileg á netinu.
Þá verður einnig hægt að nálgast
netútgáfu af hrútaskránni að vanda.
Dreifing á þessu merka riti verður
síðan, líkt og verið hefur, í höndum
Búnaðarsambandanna sem leysa
hana hvert með sínum hætti.
Spennandi hrútakostur
Skráin inniheldur umfjöllun um 47
hrúta. Þar af eru 28 hyrndir, 14 koll-
óttir, 1 ferhyndur, 2 feldhrútar og 2
forystuhrútar. Þarna má finna marga
kostagripi. Sjaldan hafa verið fleiri
hrútar jafn öflugir fyrir gerð en nú eru
17 hrútar sem hafa 120 stig eða meiri
í kynbótamati fyrir gerð. Á síðasta
ári voru þeir 7. Efstur fyrir þennan
eiginleika stendur núna Kostur
19-849 frá Ytri-Skógum með 137
stig. Hann er nýr á stöð og er hann
jafnframt með lítið næma arfgerð
gegn riðusmiti. Næstir koma þeir
Muninn 16-840 frá Ysta-Hvammi
með 134 stig og Börkur 17-842 frá
Kjalvararstöðum með 132 stig. Þar
á eftir kemur ferhyrndi hrúturinn
Satúrnus 17-843 frá Sandfellshaga
2 en óhætt er að fullyrða að aldrei
hefur verið á sæðingastöð ferhyrndur
hrútur svo sterkur gagnvart gerð.
Þá er mikil breidd í hrútakostinum
gagnvart fitusöfnun, en þar standa
hrútarnir með kynbótamat á bilinu
91 til 122. Fitan er eiginleiki sem
er bestur á ákveðnu bili og er það
misjafnt milli hjarða hvernig staðan
er í þeim eiginleika. Gott er að hafa í
huga að þeir hrútar sem eru með hátt
kynbótamat fyrir fitu henta jafnan
best þar sem vænleiki er góður.
Afkvæmi þeirra búa oft yfir mikilli
vaxtargetu og lömbin þola að þyngj-
ast tiltölulega mikið án þess að fitna
óhóflega.
Af ærfeðrum
Flestir hrútarnir eru líklegir til að
gefa dætur sem eru frjósamar í með-
allagi eða meira. Öflugustu hrútarnir
gagnvart frjósemi samkvæmt kyn-
bótamati eru þeir Blossi 16-837 frá
Teigi, sem stendur efstur fyrir þann
eiginleika með 124 stig og Móri 13-
982 frá Bæ með 120 stig sem er þá
efstur af þeim hrútum sem komnir
eru með dætrareynslu í gegnum
sæðingar. Þá eru þeir mjög efni-
legir Mjölnir 13-828 frá
Efri-Fitjum, Viddi 16-
820 frá Fremri-Gufudal
og Glámur 16-825 frá
Svartárkoti, allir með
yfir 115 stig fyrir frjó-
semi.
Margir hrútar eru
með gott kynbótamat
fyrir mjólkurlagni. Rétt
er að árétta hér að mjög
mismiklar upplýsingar
liggja á bakvið matið,
á flestum yngri hrútun-
um er um hreina spá að
ræða. Því skulu menn
ekki hræðast um of þá
gripi sem eru óreyndir
þó kynbótamat þeirra
sé ekki hátt fyrir mjólk-
urlagni eða frjósemi.
Hluti af hrútunum er
hinsvegar orðnir nokk-
uð reyndir ærfeður og
mat þeirra því býsna
traust. Móri 13-982
er þar á toppnum með 119 stig og
mikla reynslu. Þá koma þrír nýjir
hrútar á stöð sem allir eru valdir sem
reyndir ærfeður og standa allir í 117
stigum fyrir mjólkurlagni. Það eru
þeir Blossi 16-837 frá Teigi, Sammi
16-841 frá Þóroddsstöðum og Dólgur
14-836 frá Víðikeri. Í Fjárvís.is er
síðan hægt að fylgjast með hvernig
dætur stöðvahrútanna eru að reynast
en skýrslan „Sæðishrútar – ærfeður“
uppfærist í hvert skipti sem skilað
er uppgjöri frá búum þar sem dætur
sæðingastöðvahrútanna er að finna.
Allir grunnlitir í boði
Ágætur litafjölbreytileiki er í boði á
stöðvunum. Móir 13-982 er áfram í
boði en auk hans eru tveir kollóttir
mislitir hrútar sem báðir eru nýjir á
stöð. Það er móflekkóttur hrútur frá
Hjarðarfelli, Vöttur 15-850 og grár
hrútur, Bikar 17-852 frá Reykjum.
Hreinhvítir hyrndir
hrútar hafa oft verið af
skornum skammti en
nú verða þeir 5 tals-
ins. Þá verða tveir
gráir hyrndir hrútar en
auk Breka 16-824 frá
Skálholtsvík kom grár
hrútur frá Hesti inn á
stöð í haust, Austri
19-847. Einn gráfelk-
kóttur hrútur er í boði,
en það er Glámur
16-825 sem hefur
nú sinn annan vetur
á stöð. Tveir nýjir
litaðir hrútar koma
frá Þóroddsstöðum.
Það eru þeir Sammi
16-841, svartur að lit
og Kappi 16-839 sem
er mórauður. Þá eru
margir hrútar sem geta
gefið liti þó þeir séu
sjálfir hvítir að lit og
líklega hafa aldrei verið
fleiri stöðvarhrútar sem
bera erfðavísi fyrir mórauða litnum.
Að lokum skal nefna að nýr
feldhrútur var fenginn á stöðv-
arnar, Melkollur 18-859 frá
Hárlaugsstöðum og nýr forystu-
hrútur er Kjartan 16-860 frá
Gunnarsstöðum. Öflugur og fjöl-
breyttur hrútakostur verður í því í
boði á sæðingastöðvunum í vetur
sem vonandi fær góðar viðtökur
sauðfjárræktenda.
Eyþór Einarsson
ráðunautur búfjárræktar-
og þjónustusviðs
ee@rml.is
Sýrustig ræktunarjarðvegs – áhrif á nýtingu áburðarefna
Sýrustig (pH) hefur mikil áhrif á
aðgengi plantna að næringarefn
um í jarðvegi og hafa tegundir sitt
kjörsýrustig sem liggur á tilteknu
bili pHskalans. Á alþjóðavísu
er of súr jarðvegur einn þeirra
þátta sem hvað mest áhrif hefur
á minnkaða uppskerugetu en það
er aðallega vegna þess að aðgengi
næringarefna í jarðvegi er háð
sýrustigi.
Flest allur ræktunarjarðvegur á
Íslandi flokkast sem eldfjallajörð,
eða Andosol jarðvegur, en einkenni
hennar eru t.d. lág rúmþyngd, góð
vatnsleiðni, mikil vatnsrýmd og
mikil fosfór (P) binding en mikið
áfok, mikið magn lífræns efnis (C)
og allófan leir hafa mikil áhrif á eig-
inleika jarðvegsins. Áfokið ræður
miklu um jarðvegsgerðina en við
stöðugt áfok bætast sífellt við efni
sem veðrast og basískar katjónir
(plúsjónir) (t.d. Ca++ og Mg++)
losna en þær hafa áhrif til hækkun-
ar sýrustigs og hafa jákvæð áhrif á
frjósemi jarðvegsins.
Sýrustig jarðvegs getur verið
hærra þar sem úrkoma er lítil
Sýrustig í íslenskum jarðvegi er
yfirleitt á bilinu 5,0-6,5 í yfir-
borðslögum og virðist úrkoma og
áfok hafa mest áhrif á sýrustigið.
Þannig getur sýrustig verið hærra
þar sem úrkoma er lítil og áfok
mikið, og svo lægra í mýrum þar
sem áfok er ekki og úrkoma mikil.
Basísk gjóska og áfok veðrast hratt
og hefur áhrif til hækkunar á sýru-
stigi og í jarðvegi sem einkennist af
litlu áfoki og háu innihaldi lífræns
efnis er sýrustig lægra en þar sem
áfoks gætir.
Jónrýmd er sá eiginleiki jarðvegs
að geta bundið annað hvort, eða
bæði, plús (katjón) og/eða mínus
(anjón) jónir. Eignileiki jarðvegs
til að geta bundið katjónir er mjög
mikilvægur þegar kemur að getu
jarðvegsins til að miðla nýtanlegum
næringarefnum í jarðvegi og jafn-
framt að halda þeim í jarðveginum.
Jónrýmd er einn af þeim þáttum sem
hvað mest áhrif hefur á frjósemi
jarðvegs og þá sérstaklega plúsjón-
rýmdin en íslenskur jarðvegur býr
líka yfir mínusjónrýmd. Jónrýmd í
íslenskum jarðvegi er sýrustigsháð,
það er hún breytist með sýrustigi og
verður meiri eftir því sem sýrustig
hækkar.
Það er margt sem hefur áhrif á
sýrustig jarðvegs enda er jarðveg-
ur flókið umhverfi þar sem margir
þættir hafa annað hvort samverk-
andi- eða gagnstæð áhrif hvor á
annan. Grunn jarðvegsgerðin sjálf
og umhverfisþættir hafa mikil
áhrif á alla ferla í jarðvegi. Hluti af
þessum ferlum raskast við ræktun
vegna upptöku efna eins og kalsíum,
magnesíum og kalíum, sem hjálpa
til við að viðhalda sýrustigi í jarð-
vegi með svokallaðri buffer- eða
stuðpúðavirkni. Auk þess verður
enn frekari röskun þegar næring-
arefni eru fjarlægð með uppskeru
sem gerir það að verkum að vega
þarf upp á móti súrnun jarðvegsins
með kölkun.
Þannig hefur öll meðhöndlun
jarðvegs áhrif á sýrustig hans svo
sem áburðargjöf, jarðvinnsla, kölk-
un og önnur ræktunarsaga auk þess
sem veðurfarslegir þættir geta haft
mikil áhrif. Jarðvegur sýrist við
framræslu og áburðargjöf þar sem
N áburður getur haft sýrandi áhrif
en áburðargerðin ræður þar mestu en
ammóníum-áburður hefur t.d. sýr-
andi áhrif. Plöntur taka næringarefni
upp úr jarðvegi á jónaformi og taka
meira upp af plúsjónum heldur en
mínusjónum sem hefur áhrif á sýru-
stig jarðvegsins auk þess sem rætur
plantna seyta út lífrænum sýrum í
jarðveginn. Niturbinding belgjurta
hefur líka sýrandi áhrif á jarðveg
þar sem plönturnar taka enn meira
upp af katjónum heldur en anjónum
samanborið við aðrar plöntur.
Grastegundir þola betur að
vaxa í jaðri síns kjörsýrustigs
Kjörsýrustig nytjaplantna er
breytilegt en almennt má segja
að fóðurjurtir hafi kjörsýrustig á
bilinu pH 5,5-7,0. Grastegundir
þola betur að vaxa í jaðri síns
kjörsýrustigs, þó að það hafi nei-
kvæð áhrif á vöxt þeirra, heldur en
til dæmis belgjurtir, kál (tegundir
af krossblómaætt) og bygg. Þær
grastegundir sem best þola að
vaxa í of súrum jarðvegi eru t.d.
snarrót, túnvingull og língresi. Ef
góður árangur á að nást í ræktun
belgjurta þarf sýrustig að vera
yfir pH 6 og helst í pH 6,5 og
á þetta líka við um tegundir af
krossblómaætt og bygg. Vert er
að benda á að vatnsstaða hefur
áhrif á vaxtarskilyrði nytjaplantna
og ef henni er ábótavant er ekki
eingöngu nóg að hækka sýrustig
jarðvegs til að bæta vaxtarskil-
yrðin og uppskeru.
Bygging jarðvegs er almennt
stöðugri þegar sýrustig er hátt
Sýrustig hefur áhrif á fleira en að-
gengi næringarefna. Þannig verður
bygging jarðvegs almennt stöðugri
þegar sýrustig er hátt þar sem ba-
sískara umhverfi skapar aðstæður
sem leiða frekar til byggingu
samkorna í jarðveginum en þau
eru mjög mikilvæg fyrir ræktun-
arjarðveg. Sýrustig hefur líka áhrif
á virkni örvera í jarðvegi og þannig
hafa öfgar í sýrustigi neikvæð áhrif
á örveruvirkni jarðvegi sem hefur
m.a. áhrif á niðurbrot og losun nær-
ingarefna.
Mikilvægt er að taka jarðvegs-
sýni reglulega svo hægt sé að
fylgast með mælanlegum jarðvegs-
þáttum og bregðast við ef tilefni
er til og þannig koma í veg fyrir
vannýtingu áburðarefna og ófull-
nægjandi uppskeru. Miklu skiptir
að vera sér meðvitaður um áhrif
sýrustigs í jarðvegi á ræktun og
uppskeru og að jafnvel setja sér
markmið til nokkurra ára varðandi
kölkun ef hækka þarf sýrustig.
Heimildir:
• Levini A. Msimbira og Donald L.
Smith. 2020. The Roles of Plant
Growth Promoting Microbes in
Enhancing Plant Tolerance to
Acidity and Alkalinity Stresses.
Front. Sustain. Food Syst.
• Li Yuan, Cui Song, Chang X
Scott og Zhang Qingping, 2019.
Liming effects on soil p Hand
crop yield depend on lime mater-
ial type, application method and
rate, and crop species: a global
meta-analysis. Journal of Soils
and Sediments, 19:1393-1406.
• Ólafur Arnalds. 2004. Volcani
soils of Iceland. Catena, 56,
3-20.
• Þorsteinn Guðmundsson. 2018.
Jarðvegur – Myndun, vist og nýt-
ing. Háskólaútgáfan.
• Þorsteinn Guðmundsson. 2003.
Náttúruauðlindin jarðvegur.
Freyr, 8.
Mynd 1. Næringarefni eftir pH gildi.
Þórey Gylfadóttir
ráðunautur rekstrar-
og umhverfissviðs
thorey@rml.is
Mynd 2. Kjörsýrustig plantna.