Bændablaðið - 19.11.2020, Síða 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 202048
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Hartmann er að mestu uppalinn
í Reykjavík, bjó fyrstu sjö árin á
Sauðárkróki og varði síðan meira
og minna öllum sínum fríum
þar. Ólöf er hins vegar uppalin
á Sólbakka.
Við búum á Sólbakka II og erum
í búrekstri með foreldrum Ólafar
á Sólbakka. Kláruðum búfræði frá
Hvann eyri vorið 2018 og komum inn
í búskapinn þá um haustið.
Stofnað var lögbýlið Sólbakki II
út frá Sólbakka, þar sem við erum
búsett í dag, en búskapurinn er á jörð
Sólbakka. Þetta verður samtvinn-
ingur hjá okkur næstu árin, enda
uppbygging á bænum og veitir ekki
af mörgum höndum. Skúli og Sirrý
tóku við búinu af foreldrum Skúla
í nokkrum skrefum frá árinu 1995
og hafa búið með blandaðan búskap
hingað til. Breytingar urðu á búinu
þegar nýtt fjós var tekið í notkun
með mjaltaþjóni 2017.
Býli: Sólbakki.
Staðsett í sveit: Í Sólardalnum
Víðidal – Vestur-Húnavatnssýslu.
Ábúendur: Hartmann Bragi
Stefáns son og Ólöf Rún Skúla-
dóttir (Sólbakka II), Skúli Þór Sigur-
bjartsson og Sigríður Hjaltadóttir
(Sólbakka).
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Hartmann og Ólöf eiga einn son, Hjört
Þór (eins og hálfs árs).
Skúli og Sirrý eru með gæludýr,
gamla íslensk-blandaða tík, hana
Lukku og Yorkshire Terrierin Lubba.
Stærð jarðar? Um 300 ha.
Gerð bús? Mjólkurframleiðsla, spari-
fé og fáeinar merar.
Fjöldi búfjár og tegundir? Við
erum með um 45 mjólkandi kýr
eins og er, og sama fjölda af kvíg-
um og kálfum. Spariféð telur tæp-
lega 30 hausa og síðan eru 8 fol-
aldsmerar.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Hartmann og Skúli vinna fulla vinnu
við búið, síðustu misseri hafa það
verið fjósstörf og framkvæmdir sem
fylla vinnudaginn. Nú er verið að
breyta gamla fjósinu í uppeldisað-
stöðu fyrir kvígur.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Vorin eru allavega
okkar skemmtilegasti tími,
Hartmanni finnst öll jarðvinnsla
skemmtileg, og fer hún að mestu
fram þá. Ólöfu finnst hins vegar
skemmtilegast að taka á móti
kálfum (a.m.k. þegar vel gengur)
og svo auðvitað sauðburðurinn á
vorin hjá sparifénu.
Leiðinlegast finnst okkur þegar
það koma upp heilsubrestir hjá
kúnum – veikindi eða slys á gripum,
það getur oft verið ansi leiðinlegt
og erfitt.
Ætli það sé ekki farið að standa
upp úr hjá Skúla og Sirrý að fá
barnabörnin í heimsókn og fara með
þau til dýranna.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Við viljum halda áfram upp-
byggingunni hér, það þarf að halda
áfram að breyta og bæta gömlu
húsin eftir komu nýja fjóssins,
það þarf að stækka ræktarland og
fleira til. Setja okkur markmið og
vonandi ná þeim – okkur langar
allavega að gera fullt af alls konar.
Hvar teljið þið að helstu tæki-
færin séu í framleiðslu íslenskra
búvara? Til dæmis bæting afurða,
genaval í nautgriparækt og hugs-
anlegir möguleikar með kyngreint
sæði. Spennandi að sjá hvað gerist
í framtíðinni í þessum málum.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Á báðum bæjum er það mjólk,
grænt ósaltað smjör og ostur. Hér
á Sólbakka II bætist við AB-mjólk
fyrir erfingjann og svo núna það
nýjasta, Hlölla sósa!
Hver er vinsælasti maturinn
á heimilinu? Föstudagspitsa er
vinsæl hefð, maður fær einhvern
veginn aldrei leiða á henni. En
síðan er það lambakjötið – klassík.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Okkur dettur í hug
tvennt – misskemmtileg atvik og
upplifanir. Það sem stendur upp úr
er klárlega þegar kúnum var hleypt
inn í nýja fjósið á afmælisdegi
Hartmanns 1.febrúar 2017. Og svo
það sem kannski situr einna mest
í manni enn eru óveðursdagarnir í
desember 2019, í rafmagns-, hita-
, vatns- og símasambandsleysi í
1,5 sólarhringa vitandi af kúnum í
sömu aðstöðu – hræðilegt!
Lambasteik og mjúkar haframjölskökur
Að aflokinni sláturtíð er við hæfi
að setja lambakjöt á matseðilinn.
Ekki skemmir að kryddleggja það
og framreiða með nóg af grænmeti
og kartöflum, hægt er breyta til
með því að rista grasker, rósakál
eða góða sveppi.
Lambið
› Um fjórar 200 g lambasteikur til
dæmis úr læri
› 2 tsk. fínt rifinn sítrónubörkur
› 11/2 tsk saxað rósmarín
› 1 hvítlauksrif, saxað
› Nýmalaður pipar
› 100 ml ólífuolía og matskeið að auki
› 2 msk. ferskur sítrónusafi
› 200 g rósakál
› 200 g sveppir
Aðferð
Blandið sítrónusafa, sítrónuberki,
rósmarín og hvítlauk í matvinnsluvél.
Bætið við olíu og kryddið. Marinerið
lambasteikina í að minnsta kosti tíu
mínútur.
Steikið á pönnu með rósakáli og
sveppum í um fjórar mínútur á
hvorri hlið (fyrir miðlungs eldun).
Færið pönnuna í ofn í fimm mínútur
og berið fram.
Bakað grasker og blómkál með
parmesanosti
› 1 butternut grasker helmingur (um
700 g), skrælt, fræin tekin úr og skorin
í 3 cm þykka fleyga
› 2 msk. ólífuolía
› 1 haus blómkál (um það bil 1 kg),
snyrt, brotið í stóra bita
› 80 g smjör
› 1 tsk. nýmalaður svartur pipar
› 1/3 bolli (25 g) fínt rifinn parmesan
ostur
› 1 msk. fínsöxuð fersk steinselja
Aðferð
Setjið ofnagrindina í miðju ofnsins.
Hitið ofninn í 230 gráður.
Setjið graskerið í stóra skál með einni
matskeið af olíu. Færið yfir á eldfast
mót og kryddið með salti. Bakið í
20 mínútur og snúið til hálfs þegar
helmingur eldunartímans er liðinn.
Setjið blómkálið í stóra skál með
einni matskeið af olíu. Kryddið með
salti. Bætið blómkáli við eldfasta
mótið og eldið með graskerinu í
15 mínútur eða þar til grasker og
blómkál eru meyrt og karamelliserað.
Á meðan, á meðalstórri pönnu, eldið
smjörið; hrærið yfir miðlungs hita
í þrjár mínútur eða þar til það er
ljósbrúnt á litinn. Hrærið saman við
pipar, ef hann er notaðaður, og setjið
til hliðar.
Flyttu grasker og blómkál á stórt
fat. Veltið upp úr brúnuðu smjöri
og stráið parmesan og steinselju
yfir.
Mjúkar haframjölskökur
Hráefnið er einfalt, ekkert hveiti,
egg eða viðbótarsykur – sem gerir
þær nógu hollar til að borða í
morgunmat eða sem síðdegissnarl.
En ef þið viljið gera þær enn
hollari er hægt að nota þurrkaða
ávexti eins og þurrkuð trönuber,
bláber eða kirsuber.
Þið ættuð að reyna að nota eitt-
hvað sætt vegna þess að smákökurn-
ar eru ekki sérlega sætar þar sem
það er enginn viðbættur sykur í
þeim.
› 1 bolli maukaðir þroskaðir bananar
(um 3 litlir bananar)
› 1/2 bolli náttúrulegt rjómalagt hnetu-
smjör ósykrað
› 2 bollar valsaðir hafrar
› 1/2 bolli súkkulaðibitar eða þurrkaðir
ávextir
Aðferð
Hitið ofninn í 180 gráður. Finnið til
bökunarplötur með smjörpappír.
Bætið banönum og hnetusmjöri í
stóra skál. Hrærið þar til jafnt bland-
að. Bætið höfrum við. Hrærið þar til
það er jafnt saman.
Bætið súkkulaðibitum eða þurrkuðum
ávöxtum við. Hrærið þar til þetta er
vel blandað saman.
Notið 1½ matskeið til að skammta
smákökudeiginu á smjörpappír, með
bilinu um það bil tvo sentimetra á
milli. Notið lófann til að ýta niður
og fletja deigið út. Smákökur fletjast
ekki út við bakstur þannig að æskilegt
er að móta kökudeigið strax.
Bakið smákökur í um það bil 10 mín-
útur eða þar til þær hafa verið settar.
Látið smákökur kólna alveg áður en
þær eru teknar af bökunarplötum.
Gangið úr skugga um að bananarnir
séu maukaðir vandlega. Ekki ættu að
sjást neinir stórir klumpar.
Ef þið viljið gera smákökurnar enn
flottari er hægt að geyma helm-
inginn af súkkulaðibitunum og setja
þá ofan á smákökuna eftir að hún
er mótuð.
Bjarni Gunnar Kristinsson
matreiðslumeistari
Sólbakki