Gerðir kirkjuþings - 2019, Síða 63
63
Tímamörk: 2019-2023.
b. Að í Árbók kirkjunnar og á heimasíðu jafnréttisnefndar verði upplýsingar um
kynjahlutföll í nefndum, ráðum og stjórnum kirkjunnar.
Ábyrgð: Jafnréttisfulltrúar, jafnréttisnefnd og þjónustusvið.
Tímamörk: 2019-2020.
c. Að mannauðsstjóri og jafnréttisfulltrúar sendi reglulega áminningu um
jafnréttismál til sóknarnefndarformanna.
Ábyrgð: Mannauðsstjóri og jafnréttisfulltrúar.
Tímamörk: 2019-2023.
d. Mikilvægt er að upplýsa matsnefnd, kjörnefndir og sóknarnefndir um lagalega
skyldu sína gagnvart jafnréttislögum sem og kærurétt til Jafnréttisstofu.
Ábyrgð: Jafnréttisfulltrúar og jafnréttisnefnd.
Tímamörk: 2019-2023.
5. Að stuðla að jafnri stöðu kynjanna í stjórnunar- og áhrifastöðum.
a. Að setja kynjakvóta og raunhæf markmið og bæta aðgengi þess kyns sem á
hallar að stjórnunar og áhrifastöðum.
Ábyrgð: Biskup Íslands, kirkjuráð og kirkjuþing.
Tímamörk: 2019-2023.
b. Að allar launaðar stöður innan þjóðkirkjunnar, bæði hjá kirkjustjórninni og
söfnuðum, verði auglýstar og umsækjendur metnir samkvæmt fyrirliggjandi
þarfagreiningu og starfslýsingum.
Ábyrgð: Biskup Íslands, mannauðsstjóri og kirkjuþing.
Tímamörk: 2019-2021.
6. Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs.
a. Að gera fólki sem starfar hjá kirkjunni kleift að samræma starfsskyldur sínar og
fjölskylduábyrgð. Mikilvægt er að starfsfólk njóti sveigjanleika eins og kostur
er s.s. varðandi fyrirkomulag vinnu og vinnutíma, að eins miklu leyti og starf
hvers og eins leyfir. Hvatt skal til þess að öll kyn nýti rétt sinn til fæðingarorlofs
og leitast við að efla fjölskylduábyrgð hvers og eins, s.s. með hvatningu til
starfsmanna að þau skipti með sér fjarvistum frá vinnu vegna veikinda barna.
Ábyrgð: Vígslubiskupar, prófastar, formenn sóknarnefnda/prestar og
mannauðsstjóri biskupsstofu.
Tímamörk: 2019-2023.
b. Að sóknarnefndir verði reglulega minntar á skyldu sína að aðstoða starfsfólk
sókna við að útfæra störf sín svo þau samræmist betur fjölskyldulífi.
Ábyrgð: Jafnréttisfulltrúar
Tímamörk: Árlega, fyrir tímabilið 2019-2023.
c. Að biskupsstofa og kirkjuráð greini jafnréttisfulltrúum frá því árlega hvaða
skref hafi verið stigin á árinu til að gera kirkjuna að fjölskylduvænni vinnustað.
Takmarkast skrefin ekki eingöngu við ný viðmið eða aukin sveigjanleika við