Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 86
86 87
36. mál 2019
Flutt af kirkjuráði
Starfsreglur um breytingu á starfsreglum
um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007, með síðari breytingum
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða 12. gr. starfsreglnanna:
Skylda til að leggja til prestssetur í neðangreindum prestaköllum fellur brott:
Kjalarnesprófastsdæmi.
Mosfellsprestakall.
Útskálaprestakall.
Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi.
Dalvíkurprestakall.
Laugalandsprestakall.
2. gr.
Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti
þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu.
Ákvæði til bráðabirgða.
Prestur sem þjónar í prestakalli, sem tilgreint er í starfsreglum þessum, við gildistöku
þeirra, getur setið prestssetrið áfram samkvæmt gildandi lögum og starfsreglum hverju
sinni, uns skipunartími hans rennur út eða honum er veitt lausn frá embætti.
Athugasemdir við tillögu þessa.
Kirkjuráð óskar eftir heimild kirkjuþings 2019 til að felld verði brott skylda til að leggja til
prestsbústaði á þeim stöðum sem greinir í þingskjalinu. Með brottfalli skyldu til að halda
úti prestssetri fellur einnig brott búsetuskylda prests á prestssetrinu, sbr. 2. mgr. 42. gr.
laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, með síðari breytingum.
Tillaga þessi, um breytingar á því hvar prestssetur eru lögð til, byggist á 13. gr. starfsreglna
um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007, með síðari breytingum, og fasteignastefnu
þjóðkirkjunnar sem samþykkt var á kirkjuþingi 2018. Þar eru sett fram almenn viðmið
um það hvar leggja skuli prestssetur til í framtíðinni. Miðað er við að almennt skuli ekki
leggja til prestssetur þar sem fleiri en 1.500 manns búa. Einnig að gætt sé samræmis á sama
landsvæði. Ef fleiri en 1.500 manns búa í prestakalli má þó leggja til bústað ef staðhættir
eða aðstæður á fasteignamarkaði réttlæta slíkt, eða að söguleg eða menningarleg rök þyki
mæli með því. Ef færri en 1.500 manns búa í prestakalli getur kirkjuþing þó ákveðið að
ekki skuli lagður til embættisbústaður þar, ef sérstök rök mæla með því, s.s. að prestakall sé
í nálægð við fjölmennari þéttbýlisstaði eða til að gæta samræmis innan sömu landsvæða.