Gerðir kirkjuþings - 2019, Qupperneq 92
92 93
17. gr.
Við gildistöku laga þessara falla eftirfarandi lög úr gildi:
1. Lög um laun sóknarpresta, nr. 46/1907, með síðari breytingum.
2. Lög um embættiskostnað sóknarpresta og aukaverk þeirra, nr. 36/1931, með síðari
breytingu.
Ákvæði til bráðabirgða
Ákvæði laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari
breytingum, skulu, eins og við getur átt, gilda um það starfsfólk þjóðkirkjunnar, sem
tilgreindir voru í 1. mgr. 61. gr. laganna og sem voru í starfi hinn 1. janúar 2020 til 1. apríl
2020.
Gjaldskrá, sem sett var með heimild í 3. gr. laga um embættiskostnað sóknarpresta
og aukaverk þeirra, nr. 36/1931, og birt var í B-deild Stjórnartíðinda, um greiðslur fyrir
aukaverk presta þjóðkirkjunnar nr. 729/2014, með síðari breytingum, skal halda gildi sínu
til 1. apríl 2020.
Það starfsfólk þjóðkirkjunnar, sem var skipað í embætti í skilningi laga um réttindi
og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum, við gildistöku laga
þessara, heldur skipun sinni og starfskjörum út skipunartíma sinn.
Greinargerð.
Hinn 6. september 2019 undirrituðu fulltrúar íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar
viðbótarsamningi íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar um endurskoðun á samkomulagi um
kirkjujarðir og launagreiðslur presta og starfsmanna þjóðkirkjunnar frá 10. janúar 1997
og samningi íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar um rekstrarkostnað vegna prestsembætta
og prófasta, rekstrarkostnað biskupsstofu, framlag til Kristnisjóðs og sérframlög til
þjóðkirkjunnar frá 4. september 1998.
Tveimur dögum áður hafði þjóðkirkjan á aukakirkjuþing 2019 (58. aukakirkjuþing)
samþykkti ofangreindan viðbótarsamning.
Til þess að efna 7. gr. samningsins þarf m.a. að breyta lögum um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum, á þann veg að brott falli ákvæði 4.
tölul. 1. mgr. 22. gr. þeirra laganna. Enn fremur þarf að fella brott lög um laun sóknarpresta,
nr. 46/1907, með síðari breytingum og lög um embættiskostnað sóknarpresta og aukaverk
þeirra, nr. 36/1931, með síðari breytingu.
Til að þessi framangreindar breytingar nái fram að ganga og samræmis sé gætt, þarf
jafnframt að breyta lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, nr. 78/1997,
með síðari breytingum. Leitast er við að breyta sem fæstu á þessu stigi og eingöngu því
sem nauðsynlegt má teljast til að tryggja efndir viðbótarsamningsins. Þannig verður
kirkjuþingi falið að skilgreina réttarstöðu starfsmanna kirkjunnar og setja gjaldskrá fyrir
þjónustu kirkjunnar.