Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Page 6
Í stað þess að koma saman og fagna árinu eins og til stóð, m.a. til að vekja athygli á
mikilvægi stéttarinnar um allan heim, þá hefur mikilvægi hjúkrunarfræðinga í heil-
brigðiskerfinu komið berlega í ljós og sýnileikinn á störfunum sjaldan, ef nokkru
sinni, verið eins mikill.
Hjúkrunarfræðingar koma víða við sögu
Við erum enn að kljást við afleiðingar veirunnar og í þriðju bylgju faraldursins eru
það hjúkrunarfræðingar enn sem áður sem skipuðu eitt mikilvægasta hlutverkið í
viðbrögðum heilbrigðiskerfisins. Það er alveg sama hvert er litið, hvort sem það er á
heilbrigðisstofnunum eða hjúkrunarheimilum, þá eru það hjúkrunarfræðingar sem
stýra aðgerðum og samhæfa þær og eru við hlið sjúklinganna. Á heilsugæslustöðvum
eru þeir í samskiptum við skjólstæðingana og taka m.a. ákvarðanir um hvort taka
beri sýni ef grunur leikur á smiti. Einnig eru það hjúkrunarfræðingar sem vinna við
rakningu smita, ákvarða um sóttkví hjá fólki og reyna að fyrirbyggja þannig frekari
útbreiðslu veirunnar.
Ég þreytist því seint á að segja að hjúkrunarfræðingar eru lykilstéttin í baráttunni
við veiruna. Þeir koma við sögu í ákvörðun um sýnatöku, smitrakningu, sóttkví og
að hjúkra þeim sem veikjast af veirunni, auk venjubundinna hjúkrunarstarfa. Því
burtséð frá faraldrinum hefur ekkert breyst hvað þörf fyrir hjúkrun varðar.
Baráttunni lýkur seint
Þó í ár hafi öllum orðið ljóst mikilvægi stéttarinnar lauk á sama tíma 18 mánaða
kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga við ríkið. Það er upplifun margra að stéttin hafi ekki
fengið þá viðurkenningu sem henni bar af hálfu yfirvalda og þau vonbrigði eru skilj-
anleg. nú liggur niðurstaðan fyrir og henni verður ekki hnikað. unnið er af fullum
krafti við að ljúka þeim stofnanasamningum og miðlægu samningum sem eftir
6 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020
Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Formannspistill
2020
Við leggjum ekki árar í bát, nýtum okkur það sem áunnist hefur,
söfnum fleiri verkfærum í kistuna og höldum baráttunni áfram.
Ég hef þá trú að virðingin, sem enn frekar hefur skapast í ár á
störfum hjúkrunarfræðinga, muni skila sér þó síðar verði.
Það er óhætt að segja að enginn hafi átt von á að árið 2020 yrði eins og raun ber vitni. Til stóð
að fagna ári hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra, líkt og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO)
hafði áformað, með ýmsum hætti, og m.a. í samvinnu við Ljósmæðrafélag Íslands. Það bíður
betri tíma eins og svo margt annað sem einkennir þetta ár. Aftur á móti má segja að sýnileiki
hjúkrunarfræðinga hafi birst á annan hátt þegar covid-19-veirufaraldurinn skall á landinu í
upphafi árs og hefur svo eftirminnilega haft áhrif á þjóðina sem og alla heimsbyggðina.