Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Qupperneq 13
segir jón. „Maður stendur aldrei jafnfætis þegar maður talar ekki móður málið við
þá sem tala sitt móðurmál,“ segir Elsa. Árið 1994 var gripið til þess ráðs að halda
sér útbúið dönskunámskeið á vegum félagsins fyrir íslenska hjúkrunarfræðinga sem
tóku þátt í SSn-samstarfinu og síðar fór Elsa m.a. í Endurmenntun hÍ til að læra
dönsku í norðurlandasamstarfi. Á stjórnarfundum SSn í dag tala allir fulltrúar á
sínu móðurmáli og styðjast við túlka eftir því sem við á, segir aðalbjörg. Þá eru að
hennar sögn öll samskipti í vinnuhópum innan SSn á ensku en innan samtakanna
eru starfandi vinnuhópar þar sem hvert land á sinn fulltrúa. Þessir hópar vinna m.a.
að faglegum framgangi og pólitískum áhrifum hjúkrunarfræðinga á norðurlönd-
unum.
Hagsmunamálin enn þau sömu
Eins og fyrr segir voru íslenskar hjúkrunarkonur í upphafi meira þiggjendur í SSn
vegna þess hversu fáar þær voru. Það hefur breyst í áranna rás og leggja nú íslenskir
hjúkrunarfræðingar til samstarfsins jafnt á við hinar norðurlandaþjóðirnar. jón
nefnir að félagið hafi unnið að endurskoðun á stefnu SSn sem fól m.a. í sér aukið
samstarf SSn og norðurlandaráðs og verið í forystu í gæðastarfi innan SSn þar sem
íslenskir hjúkrunarfræðingar stýrðu gæðahópum sem unnu m.a. að gerð gæðavísa í
hjúkrun. Einnig tókum við að okkur að skipuleggja og koma á rafrænum sam-
skiptum innan SSn sem á þeim tíma var nýlunda, segir jón.
Í dag fundar stjórn SSn, sem samanstendur af öllum formönnum félaganna sex,
tvisvar á ári, vor og haust, heldur ráðstefnur um ýmis mál er tengjast baráttumálum
Snn og þróun hjúkrunar auk þess að starfshópar SSn hittast reglulega og vinna að
framgangi mála bæði faglegum og pólitískum. Þá koma norðurlöndin sterk saman
á alþjóðavettvangi sem og innan Evrópu þannig að eftir þeim, og því sem þau standa
fyrir, er tekið.
hagsmunamál SSn hafa í raun ekkert breyst undanfarin 100 ár og baráttumálin
eru þau sömu í öllum sex löndunum: að fagið verði metið að verðleikum og að launa-
kjörin batni. Samstarfsvettvangurinn, sem núna eru í 340.000 hjúkrunarfræðingar
frá öllum norðurlöndunum, beitir sér fyrir þessum hagsmunum með því að þrýsta
á stjórnmálamenn í hverju norðurlandanna fyrir sig og í Evrópu.
samstarfið við ssn lagði grunn að þróun hjúkrunar á íslandi
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020 13
Formenn norrænu félaga hjúkrunar-
fræðinga við undirritun kjarastefnu SSN
á ráðstefnu sem haldin var í Reykjavík
í september 2018.
„Maður stendur aldrei jafn-
fætis þegar maður talar ekki
móðurmálið við þá sem tala
sitt móðurmál,“ segir Elsa.
Árið 1994 var gripið til þess
ráðs að halda sérútbúið
dönsku námskeið á vegum
félagsins fyrir íslenska
hjúkrunarfræðinga sem tóku
þátt í SSN-samstarfinu og
síðar fór Elsa m.a. í Endur-
menntun HÍ til að læra
dönsku í Norðurlanda -
samstarfi.