Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Qupperneq 37
hvort sem það var með skilaboðum, hringingum eða að bjóða
fram aðstoða sína með því að kaupa inn fyrir hana. „Það var
ómetanlegur stuðningur,“ segir hún.
Mikið áfall að greinast með covid-19
Starfsemi covid-deildarinnar var ekki hafin á þessum tíma en
Sesselja fékk daglega símhringingar frá Landspítalanum þar
sem innt var eir líðan hennar, sem og var hún minnt á að
drekka nægan vökva. Þá hafði heilsugæslan einnig samband
og bauð henni að hringja ef hún þyri frekari hjálp. Sesselja
var í einangrun í órar vikur og að þeim tíma loknum var hún
enn með mikinn og þurran hósta og kralaus. hún skyldi
halda sig frá því að eiga samskipti við aðra í tvær vikur enn.
„Ég man hvað ég hlakkaði til. Ég ætlaði svo aldeilis að „tækla“
þessi veikindi, fara út að labba og allt heila prógrammið,“ segir
hún. „Þegar stóri dagurinn kom þorði ég hreinlega ég ekki ein
út, ég fékk smá áfall og einfaldlega grét,“ riar hún upp. hún
var enn mjög máttlaus og segir það hafa verið óljóst hve mikið
hún þyldi. af þeim sökum fékk hún fylgd hvort sem það var í
göngutúr eða bílferð. kortersgöngutúr gat fylgt ögurra
klukku stunda hóstakast. „Þetta var mikið áfall og greinilegt að
þetta gengi ekki svona hratt fyrir sig en smátt og smátt kom
orkan og hóstinn minnkaði,“ segir hún sjö mánuðum eir að
hún smitaðist. Sesselja segist lítið meira geta en unnið vinnuna
sína og í raun lítur hún á hana sem endurhæfingu. „Ég er enn
að bíða eir að komast á þann stað. Ég hef lært að ég þarf að
passa mig að verða ekki of þreytt, ég hef lært að biðja um hjálp
og ég reyni að finna hinn gullna meðalveg.“
mikið áffall að greinast með covid-19
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020 37
Sesselja var í einangrun í fjórar vikur og að
þeim tíma loknum var hún enn með mikinn og
þurran hósta og kraftlaus. Hún skyldi halda sig
frá því að eiga samskipti við aðra í tvær vikur
enn. „Ég man hvað ég hlakkaði til. Ég ætlaði svo
aldeilis að „tækla“ þessi veikindi, fara út að
labba og allt heila prógrammið,“ segir hún.
Ásgeir Valur Snorrason varð sem betur fer aldrei alvarlega
veikur af covid-19. fyrstu einkennin voru bein- og vöðva-
verkir. „Þetta voru meira verkir eins og ég hefði labbað á
Esjuna — sem reyndar er langt síðan ég hef gert — en mér
leið svolítið þannig. Ég var einhvern veginn alveg lemstr -
aður,“ segir hann. hann var hitalaus og með smá kvefein-
kenni. „Í nokkra daga var svo sem ekkert að frétta nema
að ég var greindur með covid-19. Ég var samt virkilega
þreyttur og nýtti tímann í að skanna ljósmyndir frá
mömmu. Ég skannaði órar myndir og hvíldi mig í
klukkustund,“ riar hann upp. Eir nokkra daga fauk
bragðskynið, eins og hann orðar það. Það kom reyndar
seint til baka en kom þó. „Mér finnst lyktin af bensíni
núna vera vond en mér þótti hún góð og ég stóð mig að
því að lykta af bensíntankinum. Þannig að þetta hefur ha
í för með sér ákveðna skerðingu að geta ekki sniffað af
bensíni,“ segir Ásgeir kíminn. „Það er samt ekkert létt að
lenda í þessu þrátt fyrir að ég hafi aldrei orðið alvarlega
veikur. Það er ákveðin breyting og nú fer ég til dæmis alltaf
að sofa klukkan háltíu í staðinn fyrir klukkan ellefu,“
segir hann. Eiginkona Ásgeirs var ekki eins heppin en hún
greindist jákvæð út af covid-19 síðar í marsmánuði, eða
um það leyti sem Ásgeir var að hressast — og svo tóku
dætur þeirra við. hún var í 37 daga samfleytt í sóttkví. „Við
vorum öll í einangrun eir að ég veiktist þar til hún
losnaði og vorum í raun föst í íbúðinni okkar í 37 daga,“
segir Ásgeir. „Mér fannst það allt í lagi en konan mín var
orðin mjög þreytt enda varð hún mjög veik en hún þuri
að fara á göngudeildina, auk þess sem ég gaf henni vökva
í æð,“ segir hann. „Mér fannst þetta í raun ágætur tími
enda orðinn langþreyttur eir mikla vinnutörn. Ég var í
góðum félagsskap með sjálfum mér og ölskyldunni
minni. Við gerðum eins gott úr þessu og við gátum og
fengum heimsendan góðan mat frá jómfrúnni og öðrum
góðum veitingastöðum. Þetta var samt erfiðara fyrir kon-
una, að vera svona föst með karlinum, enda var hún
ánægð þegar hún loksins losnaði,“ segir Ásgeir brosandi.
Ásgeir Valur Snorrason svæfingahjúkrunarfræðingur.
Fjölskyldan var samfleytt í 37 daga sóttkví