Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Page 38
Er enn að glíma við fylgikvilla
Sesselja er enn að glíma við fylgikvilla covid-19. Mánuðum
saman var það vöðvakrampi, slappleiki og orkuleysi og nýlega
var hún greind með áunna gigt. hún segir það vissulega hafa
verið reiðarslag og gert alla framtíðina mjög óvissa. „Ég hef
áhyggjur. hvað með önnur líffæri, eru þau heil? Er þetta ekki
komið nóg?“ að fást við óþekkta veiru er mikill rússíbani og
hefur eðlilega tekið mikið á. Það sem styrkir hana á vegferðinni
er að muna góðu dagana — hvernig lífið var fyrir covid-19.
„Ég ákvað strax í upphafi veikinda að halda dagbók með
stuttum athugasemdum um líðan, verki og svefn og þess
háttar. Það var eina leiðin fyrir mig til að geta rakið eir á
hvernig þessi veikindi hafa verið. Vika 28 var frábær. Það var
stór áfangi og fyrstu sjö dagar án bakslags. Og henni var fagnað
með kaupum á fallegu málverki sem mun ætíð minna mig á
að þetta er allt að koma,“ segir Sesselja.
góðu dagarnir eru fleiri en þeir slæmu. hún er á vissum
batavegi, orkan er að koma aur og lungun að styrkjast. að
halda í jákvæðnina og horfa á góðu hlutina gengur oast hjá
henni en ekki alltaf því óvissan er enn til staðar. „Ég spyr mig
mikið hvað má betur fara, hvaða lærdóm er hægt að draga af
þessari lífsreynslu bæði sem sjúklingur og hjúkrunarfræð-
ingur? Mest aðkallandi finnst mér sem sjúklingur að fá sem
allra fyrst markvissa endurhæfingu. Það er eitthvað sem þarf
að leggja mun fyrr meiri áherslu á. Við vitum öll hversu mikil-
væg sjúkraþjálfun og endurhæfing er í bataferli hjá skjólstæð -
ingum okkar.“
Sérstakt að hljóta meðferð
í gegnum síma
Sesselja segir það hafa verið sérstaka reynslu að vera svona veik
og að hljóta meðferð í gegnum síma. „Ég var ekki í ástandi til
að meta hversu veik ég var og það hefði verið gott að hugsa út
fyrir boxið: fá kannski að tala við ættingja eða vera með sjúk-
ling í mynd? að heilbrigðisstarfsfólk komi og meti sjúkling
þegar hann segir frá margra klukkustunda óráði? Ég spyr mig
þessara spurninga … en ég tel að heilbrigðisstarfsfólk þurfi að
bera meiri ábyrgð. Sjúklingur er ekki alltaf í ástandi til að meta
sig sjálfur.“ Sesselja segir staðfest samskipti skipta gífurlega
miku máli við þessar kringumstæður svo hægt sé að fyrir-
byggja misskilning og vera viss um að allt sé rétt skilið. Þannig
er til dæmis hægt að virkja ættingja, fá mat frá þeim, gefa góð
ráð og nýta artæknibúnað. hún tekur það þó sérstaklega fram
að í heild hafi símaþjónustan verið mjög fagleg, það hafi verið
mikil umhyggja og allir voru að gera sitt besta.
Vinnuframlag hjúkrunarfræðinga
verður seint metið
heilbrigðiskerfið stóð sig mjög vel í þessari fyrstu bylgju, segir
Sesselja. „fyrir mig sem gjörgæsluhjúkrunarfræðing var það
mjög sérstakt að upplifa þennan faraldur frá báðum hliðum.
Ég sinnti hjúkrun covid-sýktra þegar ég kom aur til vinnu og
horfði á vinnufélaga mína leggja dag við nótt að halda deild-
inni gangandi. Þessir mánuðir voru helgaðir vinnu og það
lögðu sig allir í verkefnið dag og nótt: að hjúkra við þessar
erfiðu kringumstæður sem voru stöðugum breytingum undir -
orpnar, hvort sem það þuri að stækka deildir eða ölga
rúmum. Þetta var algert kraaverk og vinnuframlagið verður
seint metið. Það eiga allur heiður skilinn, hvort sem það eru
stjórnendur eða starfsfólk deilda.“
Sesselja segir hafa verið gaman að finna hvað bakvarða sveitin
og annað fagfólk frá öðrum deildum aðlagaðist með skömm -
um fyrirvara í stórbreytt vinnuumhverfi okkar og hvað það
hafi sýnt sig hvers hjúkrunarfræðingar eru megnugir. Sömu-
leiðis hversu fljótt menntadeild Landspítalans lagaði sig að raf-
rænum samskiptum og bjó til ný námskeið á skömmum tíma,
t.d. fyrir fyrir bakvarðasveitina. „já, þetta hafa verið einstakir
tímar sem reyndar eru ekki búnir en þegar ég horfi til baka
fyllist ég stolti og er þakklát fyrir að hafa verið hluti af þessu
stóra verkefni þar sem hjúkrunarfræðingar eru einn stærsti
hlekkurinn í keðju heilbrigðiskerfisins.“
helga ólafs
38 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020
Sesselja segir það hafa verið sérstaka reynslu að
vera svona veik og að hljóta meðferð í gegnum
síma. „Ég var ekki í ástandi til að meta hversu
veik ég var og það hefði verið gott að hugsa út
fyrir boxið: Fá kannski að tala við ættingja eða
vera með sjúkling í mynd? Að heilbrigðisstarfs-
fólk komi og meti sjúkling þegar hann segir frá
margra klukkustunda óráði?“