Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Síða 48
„Ég hef oft hugsað um þessa spurningu: „hvað get ég gert?“ En þegar ég á að fara að
tala um þetta finnst mér ég ekkert geta sagt. kannske er það af því að ég veit ekki hvað
ég á að gera.“ Þannig skrifaði Sigursteinn faðir minn í hugleiðingu tvítugur að aldri.
hann fjallar þar um hugsanlegt hlutverk sitt í lífinu og tækifæri til að láta gott af sér
leiða. hann talar um hvað það er auðvelt að gera eitthvað allt annað, kannski vegna
eigingirni, óþolinmæði eða leti. Það er svo auðvelt að fljóta sofandi að feigðarósi án
þess að vinna afrek. hver hefur sitt hlutverk, gefur sér eða velur hlutverk í lífinu ef
gæfan lofar. Þetta var skrifað fyrir 72 árum. En um svipað leyti útskrifaðist David
attenborough frá Cambridge í náttúruvísindum og hugleiddi eflaust það sama.
Að breyta hjartalagi
hvað get ég gert? er spurning sem einnig ég hef glímt við, kannski erfði ég hana en
vonandi er hún sammannleg. Ég gerði tilraun til að svara henni almennt í bókinni
Heillaspor – gildin okkar (forlagið, 2020). Til að svara þessari spurningu setti ég fram
tilgátu um hvernig góðvildin birtist í veröldinni sem löngun til að breyta hjartalagi
fólks. Þessi hugsun, löngun og síðast en ekki síst hjálpsemi breytti öllu til betri vegar.
Einn hópur fólks fann til með öðrum hóp sem átti bágt. Þau settu sig í spor þeirra,
ímynduðu sér hvernig þeim liði og spurðu sig: „hvað get ég gert til að þeim líði
betur?“ Þau ákváðu að rétta þeim hjálparhönd. Engum bar skylda í upphafi til að
hjálpa enda var ekki búið að spá fyrir um þetta atferli. nú vitum við að enginn verður
hamingjusamur með því að hugsa einungis um sjálfan sig. Okkur ber nú skylda til
að hjálpa hvert öðru ef um hættulegar aðstæður er að ræða. En til að bæta samskiptin
þurfum við að efla tiltekin lífsgildi og gera eitthvað fallegt fyrir aðra.
Þurfum meira en gáfur
David attenborough, sem er af sömu kynslóð og pabbi, Vigdís finnbogadóttir og
vinir hennar, spurði sig aftur 93 ára gamall eftir áratuga farsælt starf við að miðla
villtu dýra- og plöntulífi til almennings í sjónvarpi og bókum: „hvað get ég gert
48 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020
Nú vitum við að enginn verður hamingjusamur með því að hugsa
einungis um sjálfan sig. Okkur ber nú skylda til að hjálpa hvert
öðru ef um hættulegar aðstæður er að ræða. En til að bæta sam-
skiptin þurfum við að efla tiltekin lífsgildi og gera eitthvað fallegt
fyrir aðra.
Tæpitungulaust
Hvað get ég gert núna?
— Gunnar Hersveinn
Við getum aðeins þrifist vel og búið við farsæld ef annað í kringum okkur, fólk, dýr, jurtir, land,
vatn og haf, þrífst einnig vel. Allir geta gert eitthvað, hver starfsstétt, hver fjölskylda, hver ein-
staklingur. „Gefum af okkur — sýnum góðvild og samkennd.“ Veldu þér stað og hlutverk og
taktu þátt í endurreisninni.
Gunnar Hersveinn heimspekingur.