Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Side 50

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Side 50
50 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020 Setið fyrir svörum … — Þrjár kynslóðir sitja fyrir svörum „Það þýðir nú lítið að vera að velta sér upp úr einhverju sem maður fær ekki breytt,“ segir Ásta Thoroddsen aðspurð um hver mesta eftirsjáin sé, en hún ásamt Gísli Níls Einarssyni og Sigurði Ými Sigurjónssyni sitja fyrir svörum um allt frá því hvaða bækur liggja á náttborðinu þeirra til dyggða og lasta. Það sem hræðir Gísla mest er að hafa ekki nægan tíma til að koma öllu í verk í þessu lífi. „Það er svo margt sem maður á eftir að gera.“ Að mati Sigurðar er hans helsti löstur leti og á hann það sameiginlegt með Ástu. „Ég er get verið ótrúlega latur. Ég er týpan sem keyri mig á batteríum og þarf að endurhlaða mig reglulega. Á þeim tímapunktum nenni ég ekki neinu,“ segir Sigurður. Sá eiginleiki sem Gísli vildi helst hafa er að geta sest niður hvar og hvenær sem er — líkt og bróðir hans Óskar gat gert — og fengið sér stutta kríu til að hlaða batteríin. Er fullkomin hamingja til? — Ásta Thoroddsen Fullkomin hamingja er … þegar ég hef fólkið mitt, börnin, barnabörnin, tengda- börnin og manninn minn nálægt mér. En svo er spurning hvort fullkomin hamingja er til? Hvað hræðist þú mest? Sem betur fer veit ég ekki hvað ég hræðist mest. En að missa heilsuna er hrikaleg tilhugsun. Fyrirmyndin? Ég gæti nefnt fólk sem mér finnst til fyrirmyndar en ég tel það ekki endilega vera mínar fyrirmyndir. Eftirlætis - máltækið? ætli við náum þessu, komist ekki næst því. Hver er þinn helsti kostur? heiðarleiki og seigla. Hvað vildirðu verða þegar þú varst ung? Lengi vel sá ég sjálfa mig fyrir mér í sendiráði úti í heimi. Eftirlætismaturinn? Þessa vikuna eru það svína- kóteletturnar sem hann Bolli minn býr til. Hvaða löst áttu erfiðast með að þola í fari annarra? fals og óheiðarleika. Hverju ertu stoltust af að hafa áorkað? að hafa komið frábæru börnunum mínum í heiminn. Svo er ég ákaflega stolt af því að hafa náð að stofna rannsókna- og þróunarsetur um iCnP sem hefur hlotið viðurkenn- ingu iCn, alþjóðaráðs hjúkrunarfræðinga. Eftirminnilegasta ferðalagið? Þau eru nú ansi mörg ferðalögin. Sumarið 2019 fór öll fjölskyldan, 19 manns, til Ítalíu þar sem við leigðum okkur stórt hús. Það var alveg magnað. Ofmetnasta dyggðin? Dugnaður. Sumir hafa alltaf svo brjálað að gera og virðast ekki gefa sér tíma til að njóta. Hver er þinn helsti löstur? Leti og félagsfælni í stórum hóp. Hverjum dáist þú mest að? Þegar ég skrifa þetta er alþjóðlegi alzheimerdagurinn. Ég dáist að aðstandendum ungra einstaklinga sem greinst hafa með heilabilun. Magnús karl Magnússon og anna Ólafía Sigurðardóttir bera þar af, ég dáist að þeim og þau eru afar góðar fyrirmyndir. Eftirlætishöfundurinn? Enginn einn. Vigdís grímsdóttir var lengi vel í uppáhaldi hjá mér. hins vegar hef ég á undanförnum árum lesið bækur sem hafa skilið mikið eftir hjá mér, t.d. Veröld sem var eftir Stefan Zweig og náðar- stund eftir hönnu kent. Þýðingin á þeirri seinni er líka alveg frábær. Ofnotaðasta orðið eða orðatiltækið? heyrðu, og klárlega. Mesta eftirsjáin? Það þýðir nú lítið að vera velta sér upp úr einhverju sem maður fær ekki breytt. Eftirlætisleikfangið? ætli það sé ekki bara síminn. Bókin á náttborðinu? fjórar bækur eftir Ólaf jóhann Ólafs- son og saklausar ástarsögur eftir ingibjörgu Sigurðardóttur sem ég hafði aldrei heyrt Ásta Thoroddsen, prófessor í hjúkrunar fræði.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.