Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Síða 51

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Síða 51
um og komu út á 6. og 7. áratugnum. Eftir að hafa klárað guðrúnu frá Lundi ákvað ég að skoða þessar. Mér áskotnuðust nokkrir bókakassar frá fólki sem var að flytja og ákvað að lesa fjölda bóka úr þeim sem ég hafði ekki áður lesið. Þetta hefur sparað margar ferðir á bókasafnið. Svo er spurning hvað á að gera við bækurnar eftir lestur - inn. Stóra ástin í lífinu? hann Bolli minn. Þitt helsta afrek? fyrir utan að hafa komið börnunum fjórum í heiminn þá kýs ég að nefna doktorsgráðuna sem ég lauk seint og um síðir. Eftirlætisdýrið? Ekkert. Hvar vildir þú helst búa? Ég er mjög sátt við staðinn þar sem ég bý í reykjavík. Hvað er skemmtilegast? að ferðast og njóta matar með fjölskyldu og vinum. Hvaða eiginleika metur þú mest í fari vina? heilindi. Eftir lætiskvikmyndin? Engin. Markmið í lífinu? að njóta hversdagsleikans og dags- ins í dag. Hvaða starfsvettvang myndirðu kjósa annan en núverandi? Ég held að mér hefði þótt gaman að vera veðurfræðingur. Það gerir nördinn í mér. Eitthvað að lokum … njótum dagsins í dag og ekki fresta því sem þig langar til að gera til morgun dagsins. Maður er óþægilega oft minntur á að margir fengu ekki að njóta morgundagsins. Þetta gerist æ oftar enda ég komin á þann aldur. „Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær“ — Gísli Níls Einarsson Fullkomin hamingja er … að njóta að vera með fjölskyldunni og vera að veiða úti í á. Hvað hræðist þú mest? að hafa ekki nægan tíma til að koma öllu í verk í þessu lífi. Það er svo margt sem maður á eftir að gera. Fyrirmyndin? Er þakklátur fyrir að hafa kynnst mörgum fyrirmyndum á lífsleiðinni sem hafa verið mér gott leiðarljós í lífinu. foreldra mína sem kenndu mér jákvætt hugarfar og hugrekki til að leita á vit ævintýranna. Í hjúkruninni er ég afskaplega þakklátur fyrir fyrirmyndina sem ég fann í Margréti Tómasdóttir og guðbjörgu Pálsdóttur hjúkrunarfræðingum sem eru miklir snillingar, leiðtogar og persónur. frábærar fyrirmyndir. Eftirlætismáltækið? Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær. aðalhvatningarfrasinn hans pabba við mig þegar ég var eitthvað að væla utan í honum. Hver er þinn helsti kostur? Bjartsýnt viðhorf til lífsins og jákvæðni til að takast á við nýverkefni. Sömuleiðis drifkrafturinn við að koma hlutum af stað eða flokkast það kannski undir þrjósku? Hvað vildirðu verða þegar þú varst ungur? fyrst vildi ég vera gröfumaður, svo rallí-bílstjóri, prestur, því næst slökkviliðsmaður og svo hjúkrunarfræðingur. Eftir erfitt val endaði ég svo á því að verða slökkviliðsmaður og hjúkrunarfræðingur. Eftirlætismaturinn? nætursaltaður þorskur og hamsatólg. Hvaða löst áttu erfiðast með að þola í fari annarra? undirförli, óheiðarleika og neikvæðni. Hverju ertu stoltastur af að hafa áorkað? Stoltastur að hafa loksins sjóast eftir að hafa verið sjóveikur fyrstu 3 mán - uðina þegar ég byrjaði 16 ára til sjós. Eftirminnilegasta ferðalagið? Sex mánaða heimsreisan mín kringum hnöttinn sem hófst daginn eftir stúdentsútskriftina mína 1994. heimsreisan byrjaði á því að flugvélin fór út af flugbrautinni í upphafi flug- taksins. „fall er fararheill,“ sagði einhver — síðan stökk ég upp í næstu vél. Ofmetn - asta dyggðin? að vinnan sé allt. Hver er þinn helsti löstur? get verið óþolinmóður þegar mér finnst hlutirnir ekki ganga nógu hratt fyrir sig. Vil þá ýta á eftir hlutum og stíg stundum á tær. Á líka til með að gera of miklar kröfur til annarra þar sem ég geri miklar kröfur til sjálfs mín. Hverjum dáist þú mest að? get ekki annað en dáðst af fólkinu í landinu sem er nú að takast á við covid-19-heimsfaraldurinn. Þetta er meira en að segja það að sýna sterka samstöðu og úthald til að tryggja öryggi og lýðheilsu í samfélaginu okkar. Eftirlætishöfundurinn? jo nesbo og fleiri glæpasögu- höfundar eru vinsælir hjá mér. Mesta eftirsjáin? fara ekki í meistaranám til houston í Texas í „Emergency nurse Practioner“ eins og til stóð. Var búinn að taka undir- búningsnámskeið fyrir bandaríska hjúkrunarleyfið í new York. En svo gripu örlögin inn í. Eftirlætisleikfangið? fluguveiðistöngin og heimagerðu flugurnar. Bókin á náttborðinu? atomic habits, Tiny Changes, remarkable results. Stóra ástin í lífinu? Drengirnir mínir tveir og inga Lú, hjúkrunarfræðingur á a-2. Hvaða eiginleika setið fyrir svörum … tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020 51 Gísli Níls Einarsson hjúkrunar- fræðingur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.