Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Page 52
vildirðu helst hafa? að geta sest niður hvenær sem er og tekið 10–15 mínútna svefn-
pásu til að hlaða batteríin. Ótrúlegur eiginleiki sem Óskar bróðir minn gat alltaf nýtt
sér. Þitt helsta afrek? Þátttaka í sjúkraflugi til Taílands á vegum forsætisráðuneytisins
árið 2004 til að ná í slasaða Svía í kjölfar jarðskjálftaflóðbylgjunnar. Margir af þeim
slösuðu voru að fara heim án barna sinna eða maka sem fundust ekki eftir flóðbylgj-
una. Eftirlætisdýrið? hundurinn Snúður hans Óla frænda. Hvar vildir þú helst búa?
Í Ástralíu við ströndina og fara í sjóinn á hverjum degi. Það var himneskt að vera
skiptinemi í Ástralíu. Hvað er skemmtilegast? hlæja með vinum, ættingjum og
vinnufélögum. Það er svo losandi á margan hátt að hlæja, jafnvel við erfiðar aðstæður.
Hvaða eiginleika metur þú mest í fari vina? að þeir séu til staðar og tilbúnir að taka
manni eins og maður er. Eitt það dýrmætasta í heimi er að eiga slíka vini því það er
ekki sjálfgefið. Eftirlætiskvikmyndin? forrest gump og Yes Man. Markmið í lífinu?
að hafa áhrif til góðs í samfélaginu og gagnvart þeim sem eru mér næstir. Eftir-
minnilegasti sjúklingurinn? Það var eldri maður sem ég hjúkraði sem hjúkrunar-
nemi á a-7 í fossvogi. Man alltaf svo vel hve hann var afskaplega þakklátur fyrir allt
sem við jón Símon, sjúkraliði á a-7, gerðum fyrir hann. fékk líka aukainnsýn í hans
líf og aðstæður þegar ég heimsótti hann eftir útskrift sem lið í hjúkrunarnemaverk-
efni mínu. Hvaða starfsvettvang myndirðu kjósa annan en núverandi? Stjórnun og
stefnumótun á hug minn allan þessa daga. Sæi fyrir mér að feta mig inn á slíka braut
innan heilbrigðisþjónustunnar. Eitthvað að lokum … undanfarna mánuði hef ég
fyllst miklu stolti af því að sjá hvernig hjúkrunarfræðingar hafa leikið lykilhlutverk
í heilbrigðisþjónustunni gegn covid-faraldrinum. Það er trú mín að sú djúpa innsýn
sem almenningur hefur að undanförnu fengið í nútímahlutverk og störf hjúkrunar-
fræðinga í covid-faraldrinum muni styðja enn betur við þróun og viðurkenningar á
stéttinni til framtíðar.
Stærsta ástin mín í mínu lífi er ég!
Svo er unnustinn í öðru sæti
— Sigurður Ýmir Sigurjónsson
Fullkomin hamingja er … Bundin við mjög stutt augnablik þegar maður nær að
gleyma öllum öðrum tilfinningum og upplifir aðeins hamingju í því andartaki. Slík
augnablik geta verið það að ná langtímamarkmiði líkt og að útskrifast úr krefjandi
námi — yfir í einföldu hlutina líkt og að njóta kaffibolla í morgunsárið með ástvini.
Slík augnablik skapa hamingjusamar minningar sem maður býr að alla lífsleiðina og
kippa ávallt upp munnvikunum þegar maður minnist þeirra. Hvað hræðist þú mest?
Það hljómar ögn kjánalega en minn helsti ótti eru hákarlar og djúpur sjór. Þessi ótti
birtist bara allt í einu þegar ég var barn og hefur alltaf fylgt mér. Það hefur ekki einu
sinni neitt atvik sem kallaði fram þann ótta — ég hef aldrei orðið fyrir hákarlaárás
og sem barn horfði ég aldrei á myndir líkt og Ókindina. Fyrirmyndin? Mínar fyrir-
myndir eru þær konur sem ólu mig upp: móðir mín og langamma. Þessar mögnuðu
konur byrjuðu með lítið á milli fingranna en létu ekki deigan síga. Mamma eignaðist
mig mjög ung og vann mjög mikið þegar ég var ungur til þess að fæða mig og klæða.
Svo skellti hún sér í nám þegar yngri bróðir minn fæddist og kláraði framhaldsskóla
nokkrum árum á undan mér. Í dag er þessi magnaða kona með meistaragráðu í
alþjóðaviðskiptum. Mínar helstu fyrirmyndir í hjúkrun eru hins vegar margar flottar
konur. Ég man alltaf eftir hönnu þegar ég starfaði á Landakoti á deild L2 sem í dag
er orðið að Vífilsstöðum. kristín Davíðsdóttir á smitsjúkdómadeild (ég lít svo upp
til hennar að ég er með sama húðflúr og hún á hendinni). Listinn gæti haldið áfram
en ég vil þó enda á að einn helsti hjúkrunarfræðingur sem ég lít upp til er Sigríður
Zoëga. Ég var svo heppinn að fá hana sem leiðbeinanda í lokaverkefninu mínu í
hjúkrunarfræði ásamt Brynju ingadóttur. Eftirlætismáltækið? hver er sinnar gæfu
smiður. Hver er þinn helsti kostur? Ég er með mjög opið hugarfar. Það gerir mér
kleift að takast auðveldlega á við breytingar sem koma til. Ég á þar með auðvelt með
setið fyrir svörum …
52 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020
Sigurður Ýmir Sigurjónsson
hjúkrunarfræðingur.