Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Qupperneq 61
ómanámi við háskólann í gautaborg þar sem hún lauk dokt-
orsprófi í hei lbrigðis vísindum 2011. Í kjölfarið var hún ráðin
verkefnisstjóri og síðar forstöðumaður rannsóknastofu há-
skóla Íslands og Landspítala í bráðafræðum. auk þess hefur
hún starfað við hjúkrunarfræðideild hÍ frá 2013 og er þar
dósent í hálfu starfi. Þó hún segist vera í vinnunni næstum
allan sólarhringinn nær hún að slaka á við útiveru og alls konar
hreyfingu, helst með fjölskyldunni og hundinum. hún er í
fjórum saumaklúbbum, sem gera reyndar allt annað en að
sauma, og á nánar og góðar vinkonur. Einnig er hún í leshring
og les skáldsögur. „nýjasta fjölskyldusportið okkar er golf en
annars erum við líka mikið skíðafólk og skíðaferðir í alpana
eru í miklu uppáhaldi fjölskyldunnar allrar,“ bætir hún við.
Nær aldrei að klára verkefnalistann
því það bætist alltaf við
Starfið er alltaf í huga Þórdísar katrínar þó að hún sitji ekki
stöðugt við, en segja má að hún beri ýmsa hatta. Því er for-
vitnilegt að vita hvernig störfin fléttast saman. „já, það er satt,
ég veit eiginlega aldrei hvaða hatt ég er með þegar ég mæti í
vinnuna heldur blandast þessir titlar saman í mjög fjölbreytt
starf. Ég get verið að skipuleggja einstaka kennslufyrirlestur
eða heil námskeið, semja verkefnalýsingar, fara yfir próf eða
verkefni, funda með nemendum um efnistök í BS-, MS- eða
doktorsverkefni þeirra, ræða við samstarfsfólk og leggja drög
að brýnum verkefnum og þar með að bættri bráðahjúkrun,
stjórna fundum og gefa álit á ýmsum málum, t.d. tengdum
kennslu í háskólanum sem formaður kennslumálanefndar
heilbrigðisvísindasviðs, flytja erindi á ráðstefnum, rýna í rann-
sóknargögn og skrifa fræðigreinar, ritrýna greinar, taka þátt í
erlendu samstarfi um bráðahjúkrun og svo má lengi telja.
Verkefnalistinn minn er sem sagt alltaf mjög langur og ég næ
aldrei að klára hann því það bætist alltaf við. Mér finnst
skemmtilegast þegar ég á í árangursríku samstarfi sem birtist
til dæmis við útskrift nemenda sem ég hef leiðbeint eða þegar
við fáum rannsóknarniðurstöður birtar á erlendum ráðstefn -
um eða í tímaritum. Svo er ég að vinna með frábæru fólki sem
leysir öll vandamál og gerir vinnudaginn skemmtilegan.“
hjúkrunarfræðin gaf nýja sýn á lífið
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020 61
Einn hluti af námskeiðinu var kennsla í því hvernig tekið skuli á móti slösuðum með sjúkrabílum og þyrlum og hvernig er best að skipuleggja
slíkar aðgerðir þannig að hlutirnir gangi sem best fyrir mig. Ljósmynd/Magnús Hlynur Hreiðarsson.