Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Page 75
Ef gjafinn er óskyldur sjúklingnum gildir full þagnar-
skylda og hvorki sjúklingurinn né gjafinn fá neinar persónu-
upplýsingar hvor um annan. Ef gjafinn hefur gefið samþykki
sitt fyrir að sjúklingurinn megi hafa samband síðar getur
sjúklingurinn sent bréf til umsjónaraðila ígræðslunnar
tveimur árum eftir að meðferðin átti sér stað og komist
þannig í samband við gjafann.
Undirbúningur
Sjúklingurinn þarf sjálfur að gangast undir ýmsar rann-
sóknir þar sem meðal annars lungnageta, starfsemi hjarta
og nýrna er athuguð og hver staða sjúkdómsins er í líkam-
anum. Sjúklingurinn þarf síðan að fá miðlægan bláæðalegg
(CVK). Leggurinn sem er notaður kallast Hickman-leggur
og er gert ráð fyrir að hann geti verið í sjúklingnum í 3–6
mánuði (ef ekki kemur upp sýking). Leggurinn er notaður
til að gefa öll lyf og taka allar blóðprufur. Það er gert minnst
einu sinni á dag á meðan sjúklingurinn liggur inni á legu -
deildinni, stundum oftar, til að fylgjast með blóðgildum
sjúklingsins. Síðan þarf að ákveða í samráði við lækni, gjaf-
ann, miðstöðina/sjúkrahúsið þar sem söfnunin fer fram,
sjúklinginn, deildarstjóra og yfirlækni CAST hvenær sjúk-
lingurinn leggst inn til að hefja meðferðina.
Að leggjast inn á sjúkrahús
Sjúklingurinn kemur til innskriftar á CAST daginn áður eða
sama dag og meðferðin hefst. Svokallað innskriftarsamtal
með lækni og hjúkrunarfræðingi á sér stað þar sem farið er
yfir það helsta sem hægt er að búast við næstu vikurnar.
Einnig fara sjúkraliðar sérstaklega yfir þætti sem koma að
fastaverkum deildarinnar, mat og hvaða reglur gilda fyrir
aðstandendur. Sjúklingurinn fær einangrunarherbergi með
anddyri og eigin baðherbergi. Einnig er aukarúm fyrir
aðstandanda sem getur fengið að búa í herberginu með sjúk-
lingnum. Ef um barn er að ræða má eitt foreldri í einu sofa
með barninu.
Hvaða krabbameinslyfjameðferð sjúklingurinn fær fyrir
stofnfrumuígræðsluna byggist á sjúkdómsgreiningu, aldri
og líkamlegu ástandi en oftast tekur hún 5–7 daga. Þegar
þeirri meðferð er lokið eru stofnfrumurnar gefnar.
Sjálf stofnfrumuígræðslan
Stofnfrumurnar fara alltaf í gegnum rannsóknarstofu blóð -
bankans á Karolinska og hefur þeim yfirleitt verið safnað
deginum áður eða sama dag, eftir því hvar í heiminum söfn-
unin á sér stað. Frumurnar koma ferskar á rannsóknarstof-
una og eru gerð ýmis próf á þeim áður en þær eru sendar
upp á CAST. Þar gefur hjúkrunarfræðingur sjúklingnum
stofnfrumurnar sem dreypi (svipað og blóð er gefið).
Hætta er á að sjúklingurinn bregðist við frumunum á
meðan gjöfin fer fram og allt upp í sólarhring á eftir. Lífs-
mörk eru því tekin reglulega og lyf til að bregðast við þessum
aukaverkunum höfð til taks.
Hvað svo?
Nú tekur við bið þar sem það tekur nýju stofnfrumurnar 10–
20 daga að meðaltali að koma sér fyrir og byrja að framleiða
nýjar, heilbrigðar frumur sem geta tekið til starfa í líkam-
anum. Á þessu tímabili er sjúklingurinn að mestu leyti án
virks ónæmiskerfis og þarf því að vera í einangrun þar til
framleiðsla á hvítum blóðkornum kemst í gang. Þar er fyrst
og fremst horft á dauffrumur (neutrophil) sem þurfa að vera
komnir yfir 0,2 × 10⁹L til að sjúklingurinn geti útskrifast
heim. Sjúklingurinn má ekki fara út úr herberginu nema
eftir kl.18 á kvöldin og um helgar og verður þá að fara beint
út af sjúkrahúsinu. Hann þarf þá að vera með andlitsgrímu
á leið út. Þegar komið er út má taka grímuna af sér og vera
úti á meðan maður treystir sér til og í samráði við ábyrgan
hjúkrunarfræðing. Þessar reglur hafa þó verið aðrar í kór-
ónufaraldrinum að undanförnu.
Aukaverkanir
Hætta er á margvíslegum aukaverkunum í sambandi við
meðferðina. Þær helstu eru ógleði, uppköst, niðurgangur,
sýkingar, slímhimnubólgur (mucosit) í munni, hálsi, maga
stofnfrumuígræðsla — meðferð í hraðri framþróun
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020 75
CAST er deild innan krabbameinsviðs Karolinska háskólasjúkrahússins
sem sérhæfir sig í frumumeðferð. Þeir Íslendingar sem hafa þurft á
stofnfrumuígræðslu að halda síðastliðin 20 ár hafa komið hingað,
þangað til nýlega, og hafa það verið 8–10 einstaklingar á ári (börn og
fullorðnir).