Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Page 81
Rossi o.fl., 2017). Sjá yfirlit yfir algenga undirflokka hvatarösk-
unar í töflu 3. Hvataröskun getur haft alvarlegar afleiðingar,
eins og að valda auknu álagi á umönnunaraðila, og haft víðtæk
sálfélagsleg og fjárhagsleg áhrif, til dæmis þegar sjúklingur
eyðir peningum á hömlulausan hátt (Evans o.fl., 2019; Gatto
og Aldinio, 2019; Gee o.fl., 2015).
Hvataröskun er oft vangreind og erfitt getur verið að með -
höndla hana. Mikilvægt er að auka þekkingu og skilning á
vandamálinu, bæði hjá einstaklingum með PV og aðstand-
endum þeirra. Þeir eru oft ekki meðvitaðir um að þessi ein-
kenni séu hluti af sjúkdómnum (Evans o.fl., 2019). Vitað er að
dópamínsamherjalyf (e. dopamine agonist) ýta sérstaklega
undir hvataröskun (Gatto og Aldinio, 2019; Trojano og Papagno,
2018). Þættir sem tengjast aukinni hættu á að verða fyrir hvata -
röskun eru karlkyn, að greinast ungur með PV og miklar of-
hreyfingar. Enn fremur eru ákveðin persónuleikaeinkenni og
geðræn einkenni, s.s. hvatvísi, þráhyggju- og árátturöskun,
kvíði, þunglyndi og sinnuleysi ásamt reykingum og sögu um
eiturlyfjaneyslu, þekktir áhættuþættir (Gatto og Aldinio, 2019;
Kasemsuk o.fl., 2017; Trojano og Papagno, 2018).
Hvataröskun getur ýmist minnkað, haldist stöðug, versnað
eða komið fram sem ný einkenni í kjölfar djúpkjarna-rafskauts -
örvunar. Einstaka sinnum getur hvataröskun verið mjög alvar-
leg og komið fram jafnvel löngu eftir aðgerðina. Tilhneiging
er til að dópamínvanstjórnunarheilkenni, tómstundafíkn, spila-
fíkn og kaupárátta minnki eftir djúpkjarna-rafskauts örvun, en
á hinn bóginn virðist sami bati ekki eiga sér stað varðandi
áráttu át eða lotuofát, „punding“ og kynlífsfíkn (Kasemsuk o.fl.,
2017). Í sumum tilfellum getur hvataröskun fengið nýja birt-
ingarmynd. Nefna má dæmi um einstakling sem hafði verið
með spilafíkn fyrir aðgerðina, losnar svo við þá fíkn en fær ár-
áttuát í staðinn.
Samspil á milli dópamínfráhvarfs,
kvíða, þunglyndis og hvataröskunar
eftir djúpkjarna-rafskautsörvun
Oft er dregið umtalsvert úr lyfjagjöf eftir að djúpkjarna-raf-
skautsörvun er hafin. Minnkun lyfjaskammtanna er vissulega
jákvæð því þá dregur úr aukaverkunum þeirra en á sama tíma
er hætta á dópamínfráhvarfi (Lilleeng o.fl., 2015). Dópamín -
fráhvarf líkist kókaínfráhvarfi og lýsir sér m.a. í kvíða, sinnu-
leysi, þunglyndi, æsingi, skapstyggð, svitaköstum, ógleði, rétt-
stöðu lágþrýstingi, verkjum, svefnleysi og lyfjasækni (Lhom-
mée o.fl., 2012; Yu og Fernandez, 2017). Fyrsta árið eftir að
meðferð með djúpkjarna-rafskautsörvun er hafin er sérstak-
lega mikilvægt að fylgjast með dópamínfráhvarfi en þá fer
fram fínstilling á rafskautsörvun og lyfjameðferð. Mikilvægt
er að hafa í huga að dópamínfráhvarf getur stundum komið
seint fram, jafnvel meira en einu ári eftir aðgerðina (Lhommée
af hverju er mikilvægt að fylgjast með kvíða, þunglyndi og hvataröskun hjá parkinsonsjúklingum?
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020 81
Tafla 3. Lýsing á algengum undirtegundum hvataröskunar í parkinsonveiki*
Hvataröskun Skilgreining
Spilafíkn Að vera óhóflega og óstjórnlega upptekinn af fjárhættuspilum þrátt fyrir fjárhagsleg og félagsleg
vandamál.
Kynlífsfíkn Þegar óhóflegum tíma er eytt í kynlífsóra og að taka þátt í eða undirbúa kynlífsathafnir sem hafa
truflandi áhrif á verkefni og skyldur daglegs lífs. Einnig getur verið til staðar gægjuþörf og blæti.
Ein algengasta birtingarmynd kynlífsfíknar er þegar óhóflegum tíma er eytt í að horfa á myndir/
myndbönd sem ýta undir kynferðislega örvun.
Lotuofát Endurtekin átköst þar sem mun meira magn af fæðu er innbyrt á stuttum tíma en flestir myndu
gera undir venjulegum kringumstæðum. Stjórnleysi fylgir átinu og því fylgja neikvæð áhrif á líkam-
lega heilsu og sálfélagslega virkni.
Kaupárátta Stanslaus hvöt til að kaupa. Oft er tilhneiging til að kaupa dýra hluti, jafnvel nýjan bíl eða heimsferð.
Þetta getur valdið skuldasöfnun. Sjúklingi líður illa andlega þegar ekki er verið að versla eða fá útrás
fyrir kaupáráttu. Þetta er vaxandi vandamál með tilkomu netverslunar.
Dópamínvanstjórnunarheilkenni Áráttukennd þrá og óhófleg notkun parkinsonlyfja sem innihalda dópamín eða bæta nýtingu dópa-
míns, þrátt fyrir alvarlegar aukaverkanir.
„Punding“ Endurtekin þýðingarlaus hegðun. Að vera óhóflega upptekinn af ákveðnum hlutum eða verkum,
svo sem að safna hlutum, raða þeim eða taka þá í sundur. Fólk framkvæmir stundum óskiljanlegar
athafnir. Má til dæmis nefna að mála eldavél og ísskáp, nota margar klukkustundir í að búa um
rúmið sitt og taka bílinn í sundur.
Tómstundafíkn Óhóflega mikil tómstundaiðja.
Dópamínfráhvarf líkist kókaínfráhvarfi og lýsir
sér m.a. í kvíða, sinnuleysi, þunglyndi, æsingi,
skapstyggð, svitaköstum, ógleði, réttstöðulág -
þrýstingi, verkjum, svefnleysi og lyfjasækni.
Fyrsta árið eftir að meðferð með djúpkjarna-
rafskautsörvun er hafin er sérstaklega mikil-
vægt að fylgjast með dópamínfráhvarfi en þá
fer fram fínstilling á rafskautsörvun og lyfja -
meðferð.
* Byggt á yfirlitsgrein Gatto og félaga (2019) og raunverulegum dæmum