Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Page 89

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Page 89
Hjúkrunarfræðingarnir sem tóku þátt í rannsókninni mátu vægi þjónandi forystu í fari yfirmanna sinna í hjúkrun nokkuð hátt eða 4,62 af 6,0 mögulegum. Það gildi er með því hæsta sem mælst hefur í rannsóknum á þjónandi forystu í fari yfir- manna á hjúkrunarsviði á Íslandi (sjá t.d. Gunnarsdóttir, 2014; Þóra Gunnarsdóttir, 2019). Sá undirþáttur þjónandi forystu sem mældist öflugastur var fyrirgefning en það gefur til kynna að hjúkrunarstjórnendur á HSN geti sett sig í spor hjúkrunar - fræðinganna, sýni hlutkennd og viðurkenningu og að per- sónulegur ágreiningur trufli ekki samskipti hjúkrunarfræðinga og hjúkrunarstjórnenda. Þessi niðurstaða er í samræmi við tvær íslenskar rannsóknir á þjónandi forystu innan hjúkrunar - sviðs þar sem SLS-mælitækið var notað. Annars vegar er um að ræða rannsókn Þóru Ákadóttur (2012) meðal sjúkraliða þar sem fyrirgefning er með hæsta gildið og hins vegar rannsókn Huldu Rafnsdóttur o.fl. (2015) meðal hjúkrunarfræðinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri þar sem fyrirgefning mælist næsthæst af undirþáttum þjónandi forystu. De Sousa og van Dieren - donck (2014) færa rök fyrir að fyrirgefning sé mikilvægur þáttur við skipulagsbreytingar stofnana enda geta þær valdið núningi í samskipum og geta leitt til djúpstæðs ágreinings milli starfsmanna og stjórnenda. Í ljósi hins háa vægis fyrirgefn- ingar í rannsókninni má álykta að þess konar samskipahættir hafi verið ríkjandi meðal hjúkrunarstjórnenda á HSN í endur - skipulagningarferlinu. Næst á eftir þættinum fyrirgefning kom þátturinn ráðs - mennska og það gefur til kynna að hjúkrunarstjórnendur á HSN séu tilbúnir til að bera ábyrgð í víðu samhengi og sýna þjónustu- lund í stað þess að stjórna sjálfsmiðað. Van Dierendonck og Nu- ijten (2011) nefna einnig að þátturinn ráðs mennska lýsi sér helst í því að yfirmaðurinn viti fyrir hvað hann stendur og taki hags- muni almennings og starfsmanna fram yfir eigin hagsmuni. Hátt vægi ráðsmennsku í þessari rannsókn er í samræmi við tvær rannsóknir á hjúkrunarsviði þar sem ráðs mennska var á meðal tveggja undirþátta þjónandi forystu sem voru með hæsta vægið (Hulda Rafnsdóttir o.fl., 2015; Þóra Gunnarsdóttir, 2019). Ráðsmennska í fari yfirmanna er afar mikilvæg við breytingar á starfsumhverfi því þá taka þeir virkan þátt í að hjálpa starfs- mönnum að skilja breytingarnar og tilgang þeirra í víðu sam- hengi (de Sousa og van Dierendonck (2014). Með tilliti til hins háa gildis ráðsmennsku má álykta að yfirmenn í hjúkrun á HSN hafi hjálpað hjúkrunarfræðingum á stofnuninni að sjá samruna stofnananna í merkingarbæru ljósi. Efling var sá þáttur sem mældist þriðji hæstur af átta undir - þáttum þjónandi forystu. Þrátt fyrir að bæði fyrirgefning og ráðsmennska hafi mælst hærri en efling í þessari rannsókn þá var vægi hans með því hæsta sem mælst hefur á hjúkrunarsviði hér á landi (sjá t.d. Gunnarsdóttir, 2014; Hulda Rafnsdóttir o.fl., 2015). Samkvæmt túlkun van Dierendonck og Nuijten (2011) á spurningum um eflingu gefur þetta háa vægi eflingar til kynna að yfirmenn á HSN hafi í breytingarferlinu stutt við starfsumhverfið þannig að starfsmenn hafi haft sjálfstæði og sjálfræði í starfi og fengið tækifæri til að koma fram með nýjar hugmyndir. Þannig gefa þjónandi leiðtogar starfsmönnum tækifæri á að vera virkir þátttakendur í breytingaferlinu og auka þar með tilfinningu starfsmanna fyrir hlut sínum í breyt- ingunni en það er eitt af lykilatriðunum í árangursríkri breyt- ingastjórnun. Með vísan til hins háa vægis eflingar í þessari rannsókn má því álykta að hjúkrunarstjórnendur á HSN hafi með eflingu stuðlað að árangursríkri breytingastjórnun í endur - skipulagningarferlinu við samruna stofnananna. Fjórði þáttur í styrkleikaröð undirþátta þjónandi forystu í rannsókninni var auðmýkt en sá þáttur hefur aldrei áður raðast á meðal fjögurra efstu undirþátta í íslenskum rann- sóknum á þjónandi forystu á hjúkrunarsviði (sjá t.d. Hulda Rafnsdóttir o.fl., 2015; Þóra Gunnarsdóttir, 2019). Við skipu- lagsbreytingar, sambærilegar þeim sem áttu sér stað á HSN skömmu áður en þessi rannsókn fór fram, getur auðmýkt skipt miklu máli. Þessi mannkostur í fari yfirmanna gefur rými fyrir hlustun ásamt því að virða það að breytingar geta valdið óvissu en það er mikilvægt að taka það til greina og vinna með starfs- mönnum (de Sousa og van Dierendonck, 2014). Þrír af undirþáttum SLS-mælitækisins voru undir viðmið - unarmörkum í rannsókninni en það voru þættirnir hugrekki, forgangsröðun í þágu annarra og falsleysi. Þrátt fyrir það mældist vægi síðastnefndu tveggja þáttanna nokkuð hátt og gefur það ákveðnar vísbendingar um að þessir þættir séu nokkuð öflugir í stjórnunarstíl yfirmanna á HSN. Niðurstöðurnar sýndu marktæk jákvæð tengsl milli starfs- ánægju og þjónandi forystu þannig að meiri starfsánægja þýddi hærra vægi þjónandi forystu. Athyglisvert er að jákvæðu tengslin milli starfsánægju og allra undirþátta þjónandi forystu fyrir utan hugrekki voru marktæk. Þrátt fyrir að hjúkrunarfræð- ingar á HSN og yfirmenn þeirra í hjúkrun hafi gengið í gegnum miklar skipulagsbreytingar rétt um hálfu ári áður en rannsóknin fór fram þá koma þessar niðurstöður heim og saman við aðrar íslenskar rannsóknir meðal hjúkrunarfræðinga óháð skipulags- breytingum (sjá t.d. Hulda Rafnsdóttir o.fl., 2015; Sigrún Gunn- arsdóttir og Birna Gerður Jónsdóttir, 2013) sem hafa skoðað starfsánægju og þjónandi forystu í fari næstu yfirmanna. Niðurstöður þessarar rannsóknar um sterk tengsl starfs- ánægju og þjónandi forystu eru í samræmi við niðurstöður rannsóknar van Dierendonck og félaga (2009) sem telja að hlutverk yfirmanna sé að hvetja og styðja starfsmenn sína og auka sjálfræði í starfi og benda á að hegðun og viðbrögð stjórn- enda skipti miklu máli fyrir líðan starfsfólksins á vinnu - staðnum. Því má færa sterk rök fyrir því að hjúkrunarstjórn - endur hafi tekið skipulagsbreytingar á HSN góðum tökum. Helsti styrkleiki rannsóknarinnar er að notað var mælitæki sem reynst hefur bæði áreiðanlegt og réttmætt. Hægt að líta á það sem veikleika rannsóknarinnar að aðeins 49 hjúkrunar- fræðingar af 104 tóku þátt í rannsókninni (47,1%) og auðvitað hefði verið gott að fá svör frá fleiri hjúkrunarfræðingum. Það er þó mikilvægt að hafa það í huga að þarna var ekki um að ræða úrtaksrannsókn heldur var spurningalistinn sendur á alla í þýðinu. Einnig er vert að benda á að svarhlutfallið er svipað og gengur og gerist í svona viðhorfskönnunum (Baruch og Holtom, 2008). Ljóst er að hér er aðeins um að ræða gögn eftir að skipulagsbreytingarnar áttu sér stað og því er ekki hægt að meta áhrifin af breytingunum sjálfum. Hér eru þó mælingar á starfsánægju og vægi þjónandi forystu í fari hjúkrunarstjórn- enda rétt um hálfu ári eftir að ný heilbrigðisstofnun var stofn - ritrýnd grein scientific paper tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020 89
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.