Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Síða 93

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Síða 93
unarálag var mest hjá dætrum, næstmest hjá sonum og eigin- konum og minnst hjá eiginmönnum. Umönnunarbyrði hefur verið skilgreind sem álag á einstak- ling sem annast aldraðan, fatlaðan eða langveikan fjölskyldu - meðlim (Stucki og Mulvey, 2000). Einkennum slíks álags svip ar til langvinnrar streitu en í henni felst sálrænt og líkam- legt álag í langan tíma sem nær til allra sviða lífsins, meðal annars hins félagslega og hins fjárhagslega (Schulz og Sher - wood, 2008). Helstu sálfélagsleg einkenni umönnunarálags eru almenn sálræn vanlíðan (Bangerter o.fl., 2018), kvíði, streita og þunglyndi (Liu o.fl., 2017), auk skorts á tíma til að sinna persónulegum þörfum og tómstundum (Bangerter o.fl., 2018; Liu o.fl., 2017). Þá skerðast félagsleg tengsl, oft versna sam- skipti við ástvin sem sinnt er (Bangerter o.fl., 2018; Johannes- sen o.fl., 2017) og umönnunaraðilar einangrast (Johannessen o.fl., 2017). Þá er það þekkt að umönnunaraðilar minnki vinnu eða hætti að vinna og að fjárhagur versni (Bangerter o.fl., 2018; Johannessen o.fl., 2017). Líkamleg einkenni umönnunarálags eru meðal annars verri líkamleg heilsa (Metzelthin o.fl., 2017), verkir (Elmståhl o.fl., 2018), svefntruflanir (Liu o.fl., 2017), þreyta (Johannessen o.fl., 2017 ) og aukin einkenni undirliggj- andi heilsufarsvanda (Ringer o.fl., 2020). Eftir því sem umönnunaraðilar finna til meiri umönnunar - byrði aukast sálfélagsleg og líkamleg álagseinkenni (Buyck o.fl., 2011). Meiri líkur eru á álagseinkennum hjá konum og þeim sem búa með þeim sem þeir veita umönnun. Einnig auk ast líkur á álagseinkennum eftir því sem umönnunarstundum fjölgar, umönnunin verður umfangsmeiri (Metzelthin o.fl., 2017) og færniskerðing ástvina eykst (Liu o.fl., 2017). Þá er umönnunarbyrði aðstandenda aldraðra með heilabilun al- mennt meiri en aðstandenda fólks með líkamlega skerðingu (Elmståhl o.fl., 2018). Ekki er einhlítt að álagseinkenni umönnunar komi fram og hafa rannsóknir sýnt að umönnunin getur haft jákvæð áhrif á heilsu umönnunaraðila (Buyck o.fl., 2011), styrkt tengsl við ástvini og aukið persónulegan þroska (Luichies o.fl., 2019) og lífslíkur (Roth o.fl., 2018 ). Í rannsókn Buyck og félaga (2011) kom fram að umönnunaraðilum með litla umönnunarbyrði fannst heilsa sín betri og að þeir fundu fyrir minni þreytu og þunglyndiseinkennum en aðilar sem ekki sinntu umönnun. Á hinn bóginn töldu umönnunaraðilar með mikla umönnunar- byrði í sömu rannsókn líkamlega og sálræna heilsu sína verri en þeir sem ekki sinntu umönnun. Þegar breytingar verða á umönnun aldraðra og hlutverki aðstandenda þarfnast þeir fjölbreyttra og einstaklingsmiðaðra upplýsinga (Ringer o.fl., 2020) um þætti er varða veikindi, meðferð, daglega umönnun, meðferðarúrræði og aðgengi að þjónustu, eins og dagvistun, heimahjúkrun, hvíldarinnlögnum og hjálpartækjum (Silva o.fl., 2013). Rannsóknir sýna að þess- ari fræðsluþörf er sjaldan fullnægt og oft er mikil óvissa um mikilvæga þætti er snúa að umönnun (Ringer o.fl., 2020; Silva o.fl., 2013; Tara Björt Guðbjartsdóttir og Elísabet Hjörleifs- dóttir, 2019). Í heilbrigðisstefnu til ársins 2030 segir að allir landsmenn eigi að hafa greiðan aðgang að upplýsingum og að fyrir liggi hvar þær sé að finna og hvert skuli leita eftir heilbrigðisþjón- ustu. Einnig er lögð áhersla á rafrænt aðgengi að upplýsingum (Heilbrigðisráðuneytið, 2019). Hægt er að veita óformlegum umönnunaraðilum fræðslu á ýmsan hátt. Auk prentaðs og raf- ræns fræðsluefnis eru algengustu fræðsluaðferðirnar einstak- lings- eða hópfræðsla sem veitt er augliti til auglitis. Fræðsla sem fer fram á rafrænan hátt er þó stöðugt að aukast (Vain- gankar o.fl., 2013; Zulkifley o.fl., 2020). Nýleg kerfisbundin samantekt á átta íhlutunarrannsókn - um, þar sem ein eða fleiri af ofangreindum fræðsluaðferð um voru notaðar við fræðslu ástvina heilabilaðra, sem flestir voru aldraðir, sýndi að í flestum rannsóknunum minnkaði streita og umönnunarbyrði marktækt (Zulkifley o.fl., 2020). Anders- son og félagar (2017) könnuðu reynslu kvenna af vefrænu stuðningsneti fyrir umönnunaraðila. Fræðsla og ráðgjöf fagað - ila var veitt í stuðningsnetinu og boðið var upp á samskipti við aðra aðstandendur. Almennt töldu konurnar sig fá gagnlegar upplýsingar, ráðgjöf og stuðning í gegnum stuðningsnetið. Stuðningurinn auðveldaði þeim að takast á við umönnunar- hlutverkið og þær lýstu létti við að deila reynslu sinni með öðrum í sömu stöðu. Einnig hentaði þeim vel sólarhrings - aðgengi að stuðningsnetinu. Markmið þessarar rannsóknar var að lýsa reynslu full- orðinna dætra af því að vera aðstandendur aldraðra foreldra með minnkaða færni og lýsa þörfum þeirra fyrir fræðslu. Aðferð Í þessari rannsókn var notuð eigindleg rannsóknaraðferð á grunni sálfræðilegrar fyrirbærafræði (e. phenomenology) Giorgis sem talin er henta vel þegar skoða á reynslu fólks og þá merk- ingu sem það leggur í reynsluna (Brinkmann og Kvale, 2008). Í aðferð Giorgis er lögð áhersla á að greina aðalatriði gagnanna og lýsa því hvernig reynsla þátttakenda var og finna þannig þemu og mynstur í rannsóknargögnunum (Giorgi, 2009). Þátttakendur Notað var tilgangsúrtak (e. purposive sampling) eins og Starks og Trinidad (2007) lýsa og miðaðist því val á þátttakendum við að þeir hefðu persónulega reynslu af umönnun færniskerts for- eldris. Þar sem hluti rannsókninnar fólst í því að kanna sýn aðstandenda á gagnsemi upplýsinga og fræðslu á íslenskri vefsíðu fyrir aðstandendur (adstandandi.is) þurftu þátttak- endur einnig að hafa notað þá heimasíðu í tvo mánuði eða lengur. Hér verður einungis gerð grein fyrir niðurstöðum er lúta að reynslu fullorðinna dætra af því að vera aðstandendur aldraðra foreldra með minnkaða færni og þörfum þeirra fyrir fræðslu. Önnur þátttökuskilyrði í rannsókninni voru að vera 18–66 ára, skilja íslenskt mál, vera ekki með þroskahömlun og eiga móður eða föður á lífi eldri en 67 ára. Auk þess þurftu þátt- takendur að hafa á síðastliðnum sex mánuðum aðstoðað föður sinn eða móður við eina eða fleiri af eftirfarandi athöfnum daglegs lífs: almennar athafnir, svo sem aðstoð við innkaup, matreiðslu, þrif og þvotta, eða persónulegar athafnir, eins og ritrýnd grein scientific paper tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020 93
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.