Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Page 105
Þátttakendur
Við val á þátttakendum var notað tilgangsúrtak. Þá eru valdir
einstaklingar í rannsóknina sem hafa persónulega reynslu eða
þekkingu af fyrirbærinu sem á að rannsaka (Sigríður Halldórs-
dóttir, 2016). Auglýst var eftir þátttakendum í Facebook-hóp,
Baklandi hjúkrunarfræðinga, á haustmánuðum 2019 og rann-
sóknin kynnt í stuttu máli. Þeir sem höfðu áhuga á þátttöku
fengu kynningarbréf við komu í fyrsta viðtal. Skilyrði fyrir
þátttöku voru að starfa sem aðstoðardeildarstjóri og tilheyra
Y-kynslóð, þ.e. vera fædd/ur á árunum 1980–2000. Ekki voru
gerðar kröfur um starfsaldur eða lengd starfsreynslu sem
aðstoðardeildarstjórar. Alls tóku níu hjúkrunarfræðingar þátt
í rannsókninni og störfuðu þeir sem aðstoðardeildarstjórar á
misstórum stofnunum á Íslandi. Allir þátttakendur voru konur,
fæddar á árunum 1982–1992, útskrifaðar sem hjúkrunarfræð-
ingar á árunum 2008–2019 og með nokkurra mánaða til átta
ára reynslu sem stjórnendur.
Gagnasöfnun og gagnagreining
Fyrri höfundur tók öll viðtölin, hér eftir nefndur rannsakandi.
Þegar byrjað er að safna gögnum í viðtölum byrjar í raun
gagnagreiningin. Gagnasöfnun og gagnagreining á sér því
stað á sama tíma í ferlinu. Áherslan á gagnasöfnunina er mest
fyrst en áherslan á gagnagreininguna eykst eftir því sem líður
á rannsóknina. Fjöldi þátttakenda er ekki ákvarðaður fyrir
fram þar sem ekki er vitað hversu marga þátttakendur þarf til
að ná mettun. Innan Vancouver-skólans er þó mælt með því
að hafa að lágmarki 5 þátttakendur eða að minnsta kosti 10
viðtöl. Í þessari rannsókn voru tekin 12 viðtöl en þá var
mettun náð. Flest viðtölin voru tekin á skrifstofu rannsak-
anda, að ósk þátttakenda, en tvö viðtöl voru tekin í gegnum
Skype. Viðtölin voru 45–90 mínútur að lengd, meðallengd var
um 70 mínútur. Notuð var viðtalsáætlun og var hún miðuð
við hálfstöðluð viðtöl. Öll viðtölin voru tekin upp og síðan
rituð upp orðrétt og upptökum eftir það eytt. Gögnin voru
gerð ópersónugreinanleg með því að breyta nöfnum þátttak-
enda og staðháttum. Hvert viðtal var kóðað og síðan unnið
að meginþemum og undirþemum og úr því búið til greining-
arlíkan með þeim áhersluatriðum sem komu fram í viðtalinu.
Þegar heildarmynd fékkst af reynslu hvers og eins voru þær
bornar saman þar til rannsakandi hafði myndað heildstæða
mynd í eigin huga af fyrirbærinu. Litið var á hvern þátttak-
anda sem tilvik (e. case study) en aðferðin byggist á textagrein-
ingu á einstökum tilvikum (þrep 1–7) og síðan saman -
burði á tilvikum (þrep 8–12) (sjá töflu 1). Niðurstöðurnar eru
dregnar út úr textanum (e. deconstruction) og síðan settar
saman í eina heild (e. reconstruction) fyrir heildarkynningu
varðandi einstakan þátttakanda og á heildarniðurstöðunum.
Í þessu skyni þurfa rann sakendur að nota óhlutbundna
hugsun (e. abstract thought processes), einkum rökhugsun,
inn sæi og hugsæi. Gagnamettun náðist þegar nægilegum
gögnum hafði verið safnað saman til að svara rannsóknar-
spurningunni. Greiningarlíkan þriggja viðtala var borið undir
þátttakendur til staðfestingar á túlkun rannsakanda á reynslu
þeirra, en með þessu eykst réttmæti rannsóknarinnar (Sig -
ríður Halldórsdóttir, 2016).
Réttmæti og áreiðanleiki
Í Vancouver-skólanum eru ákveðin þrep, einkum 7, 9 og 11,
þar sem leitað er staðfestingar þátttakenda, sem ýta undir
aukið réttmæti og áreiðanleika. Að mati rannsakenda náðist
mettun og því hægt að ganga út frá því að niðurstöðurnar nái
utan um fyrirbærið. Farið var eftir öllum þrepum rannsóknar -
ferilsins og ígrundun stunduð í gegnum allt ferlið. Rannsókn-
ardagbók var einnig haldin meðan á ferlinu stóð.
Rannsóknarsiðfræði
Staðfesting fékkst frá Vísindasiðanefnd að ekki þyrfti leyfi frá
nefndinni til þess að framkvæma rannsóknina. Allir þátttak-
endur fengu kynningarbréf í upphafi þar sem tilgangi rann-
sóknarinnar var lýst. Einnig fengu þeir bréf um upplýst sam -
þykki vegna þátttöku og var greint frá því að þeim væri frjálst
að hætta þátttöku hvenær sem er í ferlinu án útskýringa og að
nafnleyndar væri gætt.
Niðurstöður
Leiðin að aðstoðardeildarstjórastarfinu var með misjöfnum
hætti; sex þátttakendur sóttu um stöðuna sjálfir en þrír fengu
boð yfirmanns um að taka við henni. Yfirþema rannsóknar-
innar (mynd 1): „Ég er einhvern veginn með metnaðinn í
botni,“ var fengið frá einum viðmælanda og lýsir vel þeim
metnaði og krafti sem einkenndi þátttakendur. Það lýsir
einnig hvernig hvetjandi og hindrandi þættir starfsins tengj -
ast. Allir þátttakendur lýstu svipuðum atriðum, og þessi lýsing
var eins og rauður þráður í gegnum öll viðtölin. Þeir lýstu per-
sónueiginleikum sem einkenndust af miklum áhuga, já -
kvæðni, bjart sýni, forvitni, krafti og þörfum til þess að fást
við krefjandi verkefni, auk aðlögunarhæfni til að taka því sem
starfið færði þeim og gera það besta úr stöðunni. Voru þeir
sammála um að það að vera ungur stjórnandi væri skemmti-
legt en krefjandi og ábyrgðarmikið hlutverk sem þarf svolítið
að slípast í.
Reynslu þátttakendanna var lýst í gegnum þrjú meginþemu
sem sýna í hnotskurn hvernig reynsla það var fyrir þátttak-
endur að vera ungur aðstoðardeildarstjóri í hjúkrun: „Ég sá
fleiri kosti út úr þessu en galla“ sem lýsir þeim hvetjandi þátt -
um sem þátttakendur lýstu varðandi starf sitt; „verkefnin eru
óteljandi einhvern veginn“ sem lýsir í hnotskurn þeim hindr -
andi þáttum sem þátttakendur greindu frá; og „[Ég] vil vera
aðgengileg en þetta er líka truflun“ sem lýsir því hvernig of
mikið vinnuálag vegur að samræmi milli einkalífs og vinnu
(sjá nánar á mynd 1 á næstu blaðsíðu).
ritrýnd grein scientific paper
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020 105