Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Síða 115
vegar milli þess að skapa góð vinnuskilyrði fyrir umönn-
unaraðila og hins vegar að viðhalda einkennum og tilfinninga-
legu gildi heimilisins (Lindegaard og Brodersen, 2010). Hjón,
þar sem konan þjáðist af MS-sjúkdómi, fengu arkitekta til að
hanna breytingar á heimilinu sem fólu meðal annars í sér
flutning á svefnherbergi og baðaðstöðu eiginkonunnar af ann-
arri hæð á þá fyrstu. Upphaflegar tillögur arkitektanna að
breytingum á húsnæðinu, eins og brautir fyrir lyftara til að
flytja hana úr rúminu í aðliggjandi baðherbergi, komu kon-
unni úr jafnvægi og leiddu til vanmáttartilfinningar. Hún átti
erfitt með að sætta sig við að búa við breytingar sem hugsan-
lega yrði þörf á síðar í hennar lífi. Annað áhugavert dæmi er
hollensk rannsókn sem var hugsuð til að aðstoða arkitekta við
að hanna húsnæði fyrir fólk sem greinst hefur með heilabilun.
Bent var á hvernig húsnæði getur hjálpað fólki með heilabilun
til að viðhalda áttun, halda áfram hinu venjubundna lífi á
heimilinu og til að eiga góðar samverustundir með sínum nán-
ustu (Van Steenwinkel o.fl., 2019).
Að starfa á heimili fólks
Franski heimspekingurinn Michel Foucault (1986) ræddi um
annarleg rými sem nefnd hafa verið undantekningarrými eða
staðbrigði (fr. hétérotopies). Í slíkum rýmum hafa hefðbundin
viðmið og venjur misst mátt sinn og þar af leiðandi hefur at-
hafnarými þátttakenda breyst. Á vissan hátt falla heimili þar
sem heilbrigðisþjónusta fer fram undir þessa skilgreiningu þar
sem slíkar aðstæður eru um margt ólíkar bæði venjulegum
heimilum og því sem gerist á stofnunum og fleiri vinnustöðum
hjúkrunarfræðinga. Heimilin sem starfsmenn heimsækja eru
fjölbreytt og endurspegla persónulegar áherslur heimilisfólks,
jafnvel heimilishald sem fer í bága við algeng viðmið um þrif,
reglusemi og umgengni. Það skiptir miklu máli að starfsfólk
heimaþjónustu taki tillit til þessara óvenjulegu aðstæðna, en
jafnframt er mikilvægt að hafa í huga að þessar vinnuaðstæður
geta verið starfsfólki erfiðar.
Á liðnum árum hefur athyglin í auknum mæli beinst að
líðan starfsfólks í vinnu og þeim áhrifum sem starfsumhverfi
hefur. Augljóslega er erfiðara að stjórna slíkum þáttum á heim-
ili fólks en á stofnunum, en þó hafa verið sett ákveðin mörk
hvað snertir þessa þætti. Nýlega birtust niðurstöður áhuga-
verðrar rannsóknar um aðstoð sem starfsfólk heimaþjónustu
veitir við böðun og að komast á salerni á heimilum hrumra
einstaklinga (King o.fl., 2019). Þar kemur fram að starfið mót -
ast oft af þrengslum, skorti á viðeigandi búnaði og óvissu um
ástand þeirra sem njóta umönnunar.
„Að eiga heima“ — merking heimilisins
Arkitektar hanna hús og umhverfi og síðan taka íbúar við þeim
og ákveða yfirbragð heimilisins. Á margan hátt endurspegla
heimilin einstaklingana sem þar búa, sköpunargleði, smekk,
listfengi, gildismat, reglusemi og áherslur í lífinu (Angus o.fl.,
2005). Margir eru stoltir af heimili sínu og líta á það sem hluta
af sér sjálfum. Þannig eru heimilin nátengd sjálfsmynd ein-
staklingsins og veita hjúkrunarfræðingum dýrmæta innsýn í
persónu einstaklingsins og það sem skiptir hann máli. Heim-
ilin endurspegla íbúana og eru því mikilvægar vísbendingar
um uppruna, hæfileika, smekk, gildismat, fjárráð, styrkleika,
erfiðleika og það sem skiptir fólk máli. Heimilismönnum
finnst þeir vera við stjórn á heimilinu og geta lifað þar ótrufl -
uðu einkalífi (Fæø o.fl., 2019). Heimilin eru jafnframt nátengd
þroska og æviskeiðum fólks og hjá mörgum tengjast heimilin
margbrotnum minningum.
Því hefur verið haldið fram að jákvæðar tilfinningar sem
tengjast því að eiga heima séu mikilvægar til að líða vel og lifa
í sátt við tilveruna (Latimer, 2012). Hugtakið heima vísar til
tilfinningalegra þátta og minninga, þeirra tengsla sem einstak-
lingurinn hefur við ákveðinn stað og þá merkingu sem sá
staður hefur fyrir einstaklinginn (Baldursson, e.d.). Ýmis orð
og orðatiltæki í íslensku endurspegla hina jákvæðu afstöðu
sem algengt er að fólk hafi til heimilisins eins og Heima er best.
Orðið heimþrá vísar til löngunarinnar til að komast heim,
komast í umhverfi sem við þekkjum og okkur líður vel í. Í um-
fjöllun um heimilin hafa þau bæði verið tengd hamingju, já -
kvæðri sjálfsmynd og varðveislu einkalífs og öryggis, vellíðan,
afslöppun og skjóli (Soilemezi o.fl., 2017).
Ýmsir höfundar lýsa heimilinu sem stað sem mótar íbúana
(Milligan, 2009) og benda í því sambandi á hversdagslegar at-
hafnir sem þar fara fram og ólíkar minningar sem tengjast til-
teknum stöðum. Fólk tengist stöðum eins og heimilum til -
finn inga böndum, þeim fylgja oft minningar um samveru og
gleði, en geta einnig tengst sárum og erfiðum tilfinningum. Í
rannsókn Board og McCormack (2018) voru þátttakendur
beðnir um að taka mynd af því sem þeim fannst endurspegla
heimili þeirra best. Margir tóku myndir af hlutum og stöðum
innan heimilisins sem skipta þá miklu máli, eins og vinnu-
herbergi eða hægindastól þar sem lýsing er góð og notalegt
er að hvíla sig. Í greiningu Barry og samstarfsmanna (2018)
á rannsóknum á reynslu kvenna var hugmyndin um heimilið
sem auðlind áberandi. Heimilið var forsenda tengsla og sam-
skipta, það geymdi sögu og minningar og þar fundu margar
kvenn anna til öryggis. Líkt og komið hefur fram í öðrum
rannsóknum voru tengsl kvennanna við heimilin áberandi. Í
gjörn ingi Þórunnar Björnsdóttur, sem hún nefnir Vertu eins -
og heima hjá þér, leitaðist hún við að skilja eldhúsið sem stað
sem tengist umhyggju, næringu, samkennd og samræðum.
Telur hún að hin jákvæða reynsla af samveru, samskiptum
og athöfnum, sem eiga sér stað í eldhúsi og tengjast elda-
mennsku og umhyggju, fylgi fólki alla ævi (Þórunn Björns-
dóttir, 2014).
Samband eldra fólks við heimili sitt
Fjölmargir fræðimenn hafa bent á hvernig reynslan af stöðum
eins og heimilinu og tilfinningar þeim tengdum breytast í
kjölfar breyttra aðstæðna. Í ítalskri rannsókn sem fjallaði um
ekkjur sem ákváðu að halda áfram að búa á heimili sínu eftir
andlát maka var kannað hvernig tengsl þeirra við heimilið
breyttust (Cristoforetti o.fl., 2011). Höfundar lýsa margvís-
legum breytingum sem áttu sér stað á merkingu, tengslum og
notkun ólíkra herbergja. Eldhúsið varð smám saman mikil-
ritrýnd grein scientific paper
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020 115