Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Qupperneq 116
vægasta herbergið þar sem flestar athafnir fóru fram, en önnur
herbergi voru minna notuð. Á einhverjum stað, yfirleitt þar
sem tekið er á móti gestum, eins og í stofu, var komið fyrir
myndum og jafnvel hlutum sem endurspegluðu lífsferil ekkj-
unnar. Rannsakendur kölluðu þetta sýningarbás heimilisins,
þar eru hlutir og minningar sem einstaklingurinn er stoltur af
og vill að aðrir kynnist og endurspegla sjálfsmynd hans. Sýn -
ingar bás er oft hjálplegur til að mynda tengsl og efla samskipti
er heimahjúkrun hefst. Flestar ekknanna, sem tóku þátt í rann-
sókninni, höfðu jafnframt skilgreint annan hluta heimilisins
sem þeirra einkasvæði, svæði sem þær héldu fyrir sig. Þetta
svæði veitti þeim eins konar skjól þar sem þær leyfðu erfiðum
tilfinningum, eins og sorg og einmanaleika, að fá útrás. Þessar
niðurstöður eru hjálplegar fyrir hjúkrunarfræðinga til að skilja
hvernig fólk tjáir sig í gegnum fyrirkomulag á heimili og
hvernig best sé að tengjast því. Í mörgum rannsóknum hefur
komið fram að þeir sem starfa í heimaþjónustu telja að sér-
kenni hennar felist í því að hún fer fram á heimili fólks og þar
af leiðandi á forsendum íbúanna. Þessir þátttakendur vísa til
sín sem gesta á þeim heimilum sem þeir starfa á (Kristín Björns -
dóttir, 2018; Öresland o.fl., 2008).
Friðhelgi einkalífsins er einn af hornsteinum flestra sam-
félaga (Mannréttindastofnun Íslands, e.d.) og eru heimilin sá
staður þar sem einkalíf íbúa nýtur hve mestrar verndar. Úti-
dyrahurðin dregur mörkin milli einkarýmis og opinbers rýmis.
Bak við hana er hægt að athafna sig að vild og hafa sína henti-
semi. Hin mikla virðing sem borin er fyrir einkalífinu getur leitt
til þess að heimilisfólk búi við ofbeldi, ánauð og kúgun án þess
að nokkuð sé að gert. Í fræðilegu yfirliti er fjallað ítarlega um
skuggahliðar heimilislífsins sem sjaldan koma upp á yfirborðið
(Brickell, 2012). Þar kom fram að í mörgum rannsókn um hefur
heimilinu verið lýst sem vettvangi átaka, togstreitu og ósættis.
Þegar heimilið lætur á sjá:
Aðstæður á heimilum og líðan
Þeir sem starfa í heimaþjónustu gera sér fljótt grein fyrir að
minnkuð orka og færni samfara langvinnum veikindum,
háum aldri og í sumum tilvikum takmörkuðum fjárráðum
hefur áhrif á getu einstaklingsins til að sjá um viðhald og
nauðsynlegar endurbætur á húsnæði. Þetta endurspeglast
skýrt í rannsóknum á heimilum fólks sem á við alvarlega
heilsufarserfiðleika að stríða (Angus o.fl., 2005; Dyck o.fl.,
2005). Líkt og talað er um að hrumir eldri borgarar séu við -
kvæmir er líka talað um að heimili þeirra séu viðkvæm og ef
heimilin fá að grotna niður getur það dregið úr vellíðan íbú-
anna. Fyrir þá sem hafa alltaf lagt áherslu á að halda heimili
sínu snyrtilegu og í góðu ástandi getur reynst erfitt að sætta
sig við slíka afturför. Í þeim tilfellum gæti verið ráð að skoða
möguleika til að skipta um húsnæði (Imrie, 2005). Í rann-
sóknum sem hafa beinst að sambandi líkamlegs ástands og
heimilisins hefur komið fram að fólk aðlagast nýju húsnæði
fljótt ef það felur í sér umbætur á daglegu lífi (Imrie, 2005). Í
rannsókn á afstöðu eldra fólks á Nýja-Sjálandi til viðhalds
heimila sinna kom fram að margir þátttakenda fundu til kvíða
og streitu í tengslum við viðhald húseigna (Coleman o.fl.,
2016). Þó kom einnig fram að umstangið sem tengdist viðgerð-
unum leiddi í sumum tilvikum til samskipta við annað fólk og
það reyndist jákvætt. Því má taka undir þá tillögu höfunda
rannsóknarinnar að eldra fólk njóti aðstoðar hins opinbera,
meðal annars fjárhagslegrar, til að viðhalda heimilum sínum.
Það getur haft ýmsar neikvæðar afleiðingar í för með sér
þegar umfangsmikil heilbrigðisþjónusta fer fram á heimilum.
Heilbrigðisstarfsfólk kemur í vitjanir og stoppar oft stutt vegna
kröfu um hröð afköst og slíkt getur leitt til þess að heimilið lík-
ist helst brautarstöð (Angus o.fl., 2005). Rannsókn á langvar-
andi umönnun deyjandi fólks á eigin heimili, sem gerð var á
Englandi, sýndi að í sumum tilvikum leiðir umönnunin til
mjög neikvæðra tengsla, sérstaklega aðstandenda, við heimilið
(Exley og Allen, 2007). Svipað kom fram í rannsókn á Eng -
landi þar sem sumir aðstandenda sem önnuðust einstakling
með heilabilun lýstu heimilinu sem heilbrigðisstofnun og að
þeir væru í fangelsi (Soilemezi o.fl., 2017). Í ástralskri rann-
sókn var fjallað um þær breytingar sem urðu á lífi maka ein-
staklinga með heilablóðfall eftir að þeir komu heim að lokinni
dvöl á heilbrigðisstofnun. Makarnir voru uppteknir af heimil-
isrekstri og endurhæfingu ástvinar síns heima og það leiddi til
gríðarlegrar breytingar á lífi þeirra og afstöðu til heimilisins
(Karasaki o.fl., 2017).
Þeir sem starfa á heimilum fólks átta sig oft á því að þau
falla iðulega illa að þörfum heimilismanna. Því vakna oft áleitn-
ar spurningar um möguleika til að flytja í annað húsnæði. Í
rannsóknum frá Nýja-Sjálandi kom fram að eldra fólk var
mjög tengt heimili sínum og nánasta umhverfi (Wiles o.fl.,
2017). Misjafnt er hvernig fólk tekst á við það. Sumir telja eðli-
legt að breyta um húsnæði ef þörf er á, til dæmis til að vera
nálægt þjónustu. Aðrir kjósa að halda áfram að búa á sínu
heimili þrátt fyrir óhagræði, telja heimilið nátengt persónu
sinni og lýsa með stolti hvernig þeir færu að því að búa í erfiðu
húsnæði (Severinsen o.fl., 2016).
Lokaorð
Í þessari grein hefur verið leitast við að varpa ljósi á þær hug-
myndir og hugtök sem móta fræðilega umfjöllun um áhrif
þess að heilbrigðisþjónustan fari fram á heimilum fólks. Um-
fjöllunin beindist að heimilum eldra fólks og hjúkrunarfræð-
ingum sem starfa í heimahjúkrun en getur auðvitað gagnast
öðrum starfstéttum. Eins og fram kom í upphafi greinarinnar
taldi Florence Nightingale að umhverfið hefði mikil áhrif á á
líðan fólks, en hugmyndir hennar mótuðust af heilbrigðishug-
myndumum nítjándu aldar (Kristín Björnsdóttir, 2005). Í þess-
ari grein var leitað í banka höfunda tuttugustu og tuttugustu
og fyrstu aldar til að setja fram endurskoðaðan skilning á heim-
ilinu sem umhverfi sem hefur áhrif á líðan fólks. Greindar
voru tvær meginhugmyndir sem fjallað var nánar um. Annars
vegar var rætt um hugmyndir sem tengjast heimilinu sem efnis -
legu umhverfi, manngerðu rými, og hins vegar um merkingu
heimilisins fyrir heimilisfólk.
Fjallað var um fjölmargar leiðir í hönnun sem hafa verið
farnar til að hjálpa fólki til að líða sem best á heimilum sínum
kristín björnsdóttir
116 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020