Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2021, Side 3

Náttúrufræðingurinn - 2021, Side 3
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 3 Fyrsti þjóðgarður í heimi var stofnaður í Yellowstone í Bandaríkjunum árið 1872 með það að markmiði að vernda eins- taka náttúru og víðerni. Í kjölfarið stofn- uðu fleiri ríki þjóðgarða, oft á tíðum til að vernda náttúruna fyrir einhvers konar nýtingu, svo sem námugrefti eða orkuframleiðslu. Framan af heimsóttu fáir hrjóstruga og ógnvekjandi náttúru þjóðgarðanna en á undanförnum ára- tugum hafa vinsældir slíkra svæða auk- ist mjög og eykst gjarnan áhugi ferða- manna á að heimsækja svæði eftir að þau hafa verið gerð að þjóðgarði.1 Þjóðgarðar gegna tvenns konar hlut- verki: Annars vegar að vernda náttúr- una og menningarminjar sem þar er að finna og hins vegar að gefa fólki kost á að kynnast svæðinu og njóta þess að vera þar. Sums staðar hefur ferðamönnum fjölgað það mikið að árekstrar hafa orðið milli þessa tveggja þátta og hefur það verið ein megináskorunin við stjórn þjóðgarða undanfarna áratugi. Til þess að ná báðum þessum markmiðum, sem stundum geta verið mótsagnakennd, eru gerðar skipulags- og verndaráætl- anir fyrir þjóðgarða þar sem leitast er við að ná jafnvægi í þessu tvíþætta hlut- verki garðanna. Þá er gjarnan tekið frá lítið afmarkað svæði fyrir uppbyggingu innviða til að taka á móti gestum en jafnframt ákveðið að stór svæði gegni fyrst og fremst því hlutverki að vernda náttúruna fyrir komandi kynslóðir. Miðhálendi Íslands er um margt einstakt og þar er að finna eitt víðfeðm- asta óbyggða svæði í Evrópu. Eldur og ís hafa mótað sérstakt og fjölbreytt lands- lag, og hæð yfir sjávarmáli, úrkoma og norðlæg lega landsins marka þann gróður og dýralíf sem þar er að finna. Í hugum ferðalanga felst aðdráttarafl hálendisins í þessari einstöku náttúru, en ekki síður í því að þar má hvíla hug- ann frá amstri hversdagsins í umhverfi þar sem lítið fer fyrir mannvirkjum og fáir eru á ferð. Rúmlega þriðjungur Íslands telst til víðerna,2 þ.e. svæða sem eru ósnortin af umsvifum mannsins. Í stefnumörkun stjórnvalda kemur fram að tryggja skuli að stór samfelld víðerni verði áfram að finna á Íslandi.3 Samkvæmt Hvítbók um löggjöf til verndar náttúru Íslands stafar víðernum á Íslandi fyrst og fremst ógn af tvennu: Af orkuframleiðslu og af ferða- mennsku og áhrifum hennar, svo sem utanvegaakstri og uppbyggingu innviða. Ferðamönnum á hálendinu hefur fjölgað mikið á undanförnum árum og munar mest um gífurlega fjölgun erlendra ferðamanna sem koma til landsins. Samkvæmt könnun Ferða- málastofu fóru rúm 15% erlendra ferða- manna um Kjöl og tæp 13% heimsóttu Landmannalaugar árið 2019.4 Auk þess hafa um 6–12% Íslendinga ferðast um hálendið á undanförnum áratug.5 Búast má við miklum ferðavilja á helstu markaðssvæðum landsins þegar kór- ónuveirufaraldurinn er yfirstaðinn og laðar náttúra Íslands og fámenni eflaust marga að. Því má gera ráð fyrir að ásókn inn á hálendið aukist enn frekar á næstu árum. Hálendi Íslands er hins vegar einstaklega viðkvæmt. Nú þegar má greina ákveðin hættumerki um að þolmörkum ferðamennsku á sumum stöðum hálendisins sé náð. Náttúran er farin að láta á sjá6 og viðhorf ýmissa ferðamanna benda til að umfang ferða- mennsku sé orðið of mikið.7 Menn hafa jafnframt ólíka sýn á það hvar reisa skuli innviði á hálendinu og hversu mikla, hvaða þjónusta skuli standa til boða og hvort og þá hvernig eigi að stýra aðgengi. Til að forðast náttúruspjöll og rýra ekki þá upplifun sem ferðamenn sækjast eftir er mikilvægt að setja skýrar leikreglur til framtíðar um verndun og nýtingu hálendisins. Sé það ekki gert er hætta á að eiginleikar hálendisins hverfi smám saman með vaxandi ásókn og að þetta einstaka svæði missi aðdráttarafl sitt og sérstöðu. Nú liggur fyrir Alþingi stjórnar- frumvarp um þjóðgarð á miðhálendi Íslands sem nær yfir 30% landsins.8 Þar Þjóðargersemi á miðhálendi Íslands Náttúrufræðingurinn 91 (1–2) bls. 3–4, 2021

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.